KR burstaði Grindavík 2. október 2006 01:11
Það verða Njarðvíkingar, Keflvíkingar, Skallagrímsmenn og KR-ingar sem spila í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta eftir að þrjú síðastnefndu liðin tryggðu sér nokkuð örugga sigra í viðureignum sínum í átta liða úrslitunum í gær, sunnudag. Keflvíkingar unnu auðveldan 100-62 sigur á Tindastól á heimavelli sínum í Keflavík. Thomas Soltau skoraði 21 stig og hirti 10 fráköst fyrir Keflvíkinga og Magnús Gunnarsson skoraði 16 stig og hirti 9 fráköst. Lamar Karim skoraði 22 stig fyrir Tindastól og Steve Parillon bætti við 17 stigum og 8 fráköstum. KR-ingar burstuðu Grindvíkinga á heimavelli sínum 108-87. Tyson Patterson var stigahæstur í jöfnu liði KR með 19 stig, gaf 15 stoðsendingar og stal 6 boltum, Peter Heizer skoraði 15 stig, Jeremiah Sola skoraði 14 stig og hirti 9 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði einnig 14 stig og gaf 6 stoðsendingar og Fannar Ólafsson skoraði 12 stig og hirti 15 fráköst. Hjá Grindvíkingum var Steven Thomas stigahæstur með 28 stig, hirti 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar og Páll Axel Vilbergsson skoraði 27 stig og hirti 8 fráköst. Loks vann Skallagrímur sigur á Haukum í Borgarnesi 101-89. Jovan Zdravevski skoraði 22 stig og hirti 7 fráköst fyrir Skallagrím, Dimitar Karadzovski skoraði 19 stig og gaf 6 stoðsendingar og Hafþór Gunnarsson skoraði 15 stig. Kevin Smith var atkvæðamestur í liði Hauka með 26 stig og hirti 12 fráköst, Roni Leimu skoraði 21 stig og Sævar Haraldsson skoraði 11 stig og gaf 7 stoðsendingar. Undanúrslit keppninnar fara fram á fimmtudagskvöldið og þar mætast annars vegar Njarðvík og KR og hinsvegar Keflavík og Skallagrímur.
Dominos-deild karla Innlendar Íþróttir Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira