Eiður Smári stal senunni í sigri Barcelona 30. september 2006 22:00 Eiður Smári minnti rækilega á sig á 44. afmælisdegi þjálfara síns í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Eiður Smári Guðjohnsen gaf þjálfara sínum Frank Rijkaard góðan sigur í afmælisgjöf í dag þegar hann var í fyrsta skipti í byrjunarliði Barcelona í spænsku deildinni. Eiður skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar Barcelona vann sigur á þrjóskum Böskunum í Athletic Bilbao 3-1 á útivelli eftir að vera manni fleiri í 70 mínútur. Heimamenn komust yfir snemma leiks með glæsilegu marki, en á 20. mínútu fiskaði Eiður Smári varnarmann Bilbao útaf eftir að hann var við það að sleppa einn inn fyrir vörn heimamanna. Dómur þessi var mjög strangur og létu stuðningsmenn Bilbao dómarann heyra skoðun sína á því það sem eftir lifði leiks. Eiður Smári lagði upp jöfnunarmark Börsunga þegar komið var fram í uppbótartíma í fyrri hálfleik en það var fyrirliðinn Carles Puyol sem jafnaði metin. Í síðari hálfleiknum var það svo Eiður Smári sem kom Barcelona loksins yfir gegn 10 leikmönnum Bilbao með góðu skoti og kom meisturunum þar með í góða stöðu. Hann fékk svo að víkja fyrir argentínska landsliðsmanninum Javier Saviola þegar skammt var til leiksloka og sá skoraði þriðja og síðasta mark Barca undir lokin með sínu fyrsta marki í óratíma.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Sjá meira