Met í fasteignakaupum á fyrri hluta árs 21. september 2006 11:17 Nýbyggingar.
Fjárfest var í íbúðarhúsnæði fyrir ríflega 32 milljarða krónur á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 4,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Greiningardeild Glitnis segir að aldrei hafi verið fjárfest eins mikið í íbúðarhúsnæði á einum árshelmingi og nú. Greiningardeildin vitnar til nýbirtra talna Hagstofunnar og segir að athygli vaki að fjárfestingar í íbúðarhúsnæði voru ríflega helmingi meiri á fyrri hluta þessa árs en þær voru á fyrri hluta árs 1997. Ástæður eru aukinn kaupmáttur almennings mælt í íbúðarhúsnæði. Laun hafa hækkað hratt, vextir lækkað, aðgengi að lánsfé batnað og eignaverð , svo sem hlutabréfaverð, bætt eignastöðu heimilanna. Þá vekur athygli að fyrir tveimur árum þegar hagkerfið var að koma úr viðlíka niðursveiflu og spáð er á næsta ári stóð íbúðafjárfestingin í stað en dróst ekki saman. Greiningardeildin ítrekar spá sína í Morgunkorni sínu í dag að fjárfesting í íbúðarhúsnæði dragist saman um 4,5 prósent á næsta ári og um 5,8 prósent eftir tvö ár. „Gangi spá okkar um samdrátt í íbúðarfjárfestingu næstu tvö árin eftir verða þessi tvö ár samt meðal þriggja stærstu ára sögunnar í íbúðarfjárfestingum," segir greiningardeild Glitnis.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira