KB banki gerir ráð fyrir 23,8 milljarða hagnaði 14. september 2006 10:44 KB banki.
KB banki gerir ráð fyrir því að hagnaður bankans á þriðja ársfjórðungi vegna hlutafjárútboðs Exista nemi 23,8 milljörðum króna sé miðað við útboðsgengi. Bankinn seldi 1.100 milljónir hluta í Exista í tengslum við skráningu fyrirtækisins í Kauphöll Íslands og færir 10,8 prósenta eignarhlut sinn í Exista á gangvirði. Í tilkynningu frá KB banka segir að hann hafi selt 130 milljónir hluta eða sem nemur 1,2 prósentum af heildarhlutafé í Exista í vel heppnuðu almennu útboði og útboði til starfsmanna Exista á genginu 21,5 krónur á hlut í gær. Hafi bankinn selt samtals um 1.100 milljónir hluta í Exista eða 10,1 prósent af heildarhlutafé félagsins í ágúst. Bankinn átti í lok annars ársfjórðungs 20,9 prósent heildarhlutafjár í félaginu. Þann 1. ágúst seldi bankinn 6,1 prósentu eignarhlut til níu íslenskra lífeyrissjóða og þann 8. september seldi bankinn 2,8 prósent til fagfjárfesta. Innleystur hagnaður af sölu hlutanna á ársfjórðungnum nemur samtals 10,6 milljörðum króna. Eignarhlutur Kaupþings banka í Exista eftir sölu hlutanna í gær nemur nú 10,8 prósentum af heildarhlutafé en við skráningu Exista í Kauphöll Íslands verður allur eignarhlutur bankans í félaginu bókfærður á gangvirði. Miðað við gengið sem hlutirnir í Exista voru seldir á í almenna útboðinu er óinnleystur gengishagnaður 10,8 prósenta eignarhluta bankans í Exista 13,2 milljarðar króna.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent