Nýr stjórnarformaður Excel Airways Group 5. september 2006 09:48 Magnús Þorsteinsson. Mynd/E.Ól.
Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, mun taka við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska flugfélagsins Excel Airways. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem taka gildi í lok október. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að Excel Airways, sem er dótturfélag Avion Group, hafi verið stofnað í nóvember árið 2000. Eamonn, sem jafnframt er stjórnarmaður í Avion Group, hætti sem starfandi stjórnarformaður í upphafi árs og hefur síðan verið stjórnarformaður Excel Airways Group. Með þessu stytti hann vinnuviku sína í þrjá daga og undirbjó fyrirhuguð starfslok í lok sumarvertíðar. Haft er eftir Magnúsi Þorsteinssyni, stjórnarformanni Avion Group, að félagið óski Eamonn alls hins besta í framtíðinni. Eigi hann að baki gjöfula og langa starfsævi í flugiðnaðinum. „Eamonn hefur frá upphafi stýrt hröðum og miklum vexti Excel Airways og átti mikinn þátt í uppbyggingu félagsins. Fyrirtækið kveður Eamonn með þakklæti og óskar honum alls hins besta," segir Magnús í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira