Listamenn heimsóttir 16. desember 2006 12:45 Athyglisverð nálgun en nokkuð eintóna viðtöl við íslenska listamenn þar sem skortir samhengi og frekari skýringar fyrir samtímalesendur. Stjörnur: 1
Í húsi listamanns er safn viðtala sem birtust í Morgunblaðinu á árunum 1980 til 1982 og 1998. Í viðtölunum heimsækir höfundur íslenska listamenn sem flestir eru gengnir og bregður upp svipmyndum af þeim. Í flestum tilfellum setur höfundur sig í stellingar áhorfandans, fylgist með viðkomandi listamanni á heimilinu eða á vinnustofunni og ritar athugasemdir sem frá þeim falla um lífið, listina, samfélagið. Þegar viðtölin eru tekin eru flestir listamannanna komnir nokkuð við aldur og talsvert um svartagallsraus í þeim. Helmingur viðmælendanna er myndlistarmenn og það sem kemur á óvart er hinn nokkuð ríkjandi neikvæði tónn og beiskja þeirra út í hlutskipti sitt og samfélagið. Af þeim tuttugu og fjórum listamönnum sem talað er við, eru þeir sáttastir og glaðastir með sitt sem hafa unnið fullt starf meðfram listsköpun sinni, til dæmis Gísli J. Ástþórsson, Helgi Sæmundsson, Steinþór Sigurðsson og Sveinn Björnsson. Sumir hinna eru líka nokkuð hlutlausir. En á þeim tíma sem viðtölin eru tekin eru flestir hættir að skrifa, hættir að mála, hættir að sýna, hafa sagt allt sem þeir hafa að segja. Vinnubrögð blaðamannsins eru oft ágæt og nálgunin athyglisverð – einkum í viðtalinu við Sigurjón Ólafsson og Kristmann Guðmundsson – en útkoman er ekki alltaf áhugaverð. Komin saman á eina bók verða viðtölin nokkuð eintóna. Þótt listsköpun margra viðmælendanna sé áhugaverð, er ekki þar með sagt að þeir tjái sig í viðtölum þannig að gaman sé að lesa. Ég átta mig ekki alveg á því hver tilgangurinn er með þessari bók. Sum viðtölin eru of innihaldsrýr til að þau geti talist mikilvæg heimild – nema kannski um það hversu dapurlegt er að verða gamall listamaður. Önnur vitna oft á tíðum um gamla geðillskupúka – og það er ekki skemmtilegt lestrarefni, nema helst sem blaðaviðtal og þá í samhengi við það sem er að gerast í lífi listamannsins og í samfélaginu á þeim tíma sem það birtist sem slíkt. Að ósekju hefði höfundur mátt hafa formála um hvern listamann; segja, t.d. frá því af hvaða tilefni viðtalið var tekið, eða hvaða átakamál í listaheiminum eða þjóðfélaginu voru efst á baugi. Þegar blaðamaður riggar upp kvartaldar gömlum viðtölum sínum á bók, hráum og án nokkurra skýringa, læðist að manni sá grunur að hann sé fremur að búa til heimild um sjálfan sig en listamennina sem eru viðmælendur hans. Það ber vott um hégóma og skort á sjálfsgagnrýni. Margir þessara listamanna höfðu töluvert að segja áður en þessi viðtöl voru tekin og árin eftir að þau voru tekin. Sumir þeirra brugðust við hræringum í samfélaginu alla tíð. Væri þeim safnað saman, hefðum við kannski efni sem nýttist sem heimild um viðkomandi listamann. Súsanna Svavarsdóttir
Mest lesið Seldist upp á einni mínútu Lífið Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Lífið Séð og heyrt gæti átt framhaldslíf Lífið Hvers vegna karpa menn í þartilgerðu húsi? Lífið Syngur Cha Cha Cha á Söngvakeppninni Lífið Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Tíska og hönnun Iðjuþjálfi á Nesinu fer sínar eigin leiðir í skólamat Lífið Frumsýning á Vísi: Stórbrotinn sigurvilji Sigurbjörns á hvíta tjaldið Lífið Stjörnulífið: Fáklæddar, í hátísku og Palli rúmliggjandi Lífið Svaraði kallinu frá Ben Stiller Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira