Tekur slaginn við ráðherra 20. október 2006 06:45 Kristinn og Magnús Kristinn átti í deilum við þingflokk Framsóknar fyrir tveimur árum. Öldurnar voru lægðar á kjördæmaþingi 7. nóvember árið 2004 og við það tilefni tókust Kristinn og Magnús í hendur. „
Ég tel mig eiga bærilega möguleika,“ segir Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sem sækist eftir 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningar til Alþingis næsta vor. Gera má ráð fyrir því að Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sem var efstur á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í kosningunum 2003 sækist áfram eftir því sæti. Kristinn sem þá var í öðru sæti vill þannig fá forystusæti ráðherrans. „Það verður auðvitað bara að setja sér markmið, stefna að þeim og sjá svo til hvernig til tekst. Það er fátt annað að gera,“ segir Kristinn og bendir um leið á að í prófkjörinu fyrir síðustu alþingiskosningar hafi verið notað annað fyrirkomulag en nú verði beitt: „Þær reglur voru óvenjulegar – og ekki víða við hafðar – að sá fékk ekki 1. sætið sem fékk flest atkvæði nema hann fengi hreinan meirihluta. Þegar kosið var fékk ég flest atkvæði í 1. sæti en ekki hreinan meirihluta svo það var kosið aftur og þá fékk Magnús 1. sætið. Núna er ekki krafa um hreinan meirihluta og sá vinnur sem fær flest atkvæði,“ útskýrir Kristinn. Prófkjör Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fer fram 3. til 17. nóvember.
Innlent Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri kjósa að fæða án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Sjá meira