Viðskipti erlent

Samdráttur í nýskráningum

Nýir bílar Nýskráningar bifreiða drógust saman um 16,9 prósent hér á landi í síðasta mánuði borið saman við sama tíma í fyrra.
Nýir bílar Nýskráningar bifreiða drógust saman um 16,9 prósent hér á landi í síðasta mánuði borið saman við sama tíma í fyrra. MYND/GVA
Nýskráningar bifreiða í Evrópu drógust saman um 2,6 prósent í september frá sama mánuði í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá samtökum evrópskra bílaframleiðenda, sem birtar voru í síðustu viku. Nýskráningum fækkaði um 16,9 prósent hér á landi á sama tíma. Samtals voru rétt rúmar 1,4 milljónir bifreiða nýskráðar í Evrópu í mánuðinum samanborið við tæplega 1,5 milljónir bifreiða í sama mánuði fyrir ári.

Ef litið er til fyrstu níu mánuða ársins fjölgaði nýskráningum hins vegar um 0,1 prósent á árinu í Evrópu en um 2,3 prósent hér á landi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×