Prófanir á hjartalyfi tefjast 7. október 2006 06:00 Lyfjarannsóknir Útlit er fyrir að rannsóknir á því lyfi sem lengst er komið í prófanaferli hjá DeCode tefjist um 6 til 12 mánuði.
Decode Genetics, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, hefur gert hlé á þriðja fasa prófana á tilraunalyfinu DG031 meðal bandarískra hjartasjúklinga. Hléð kemur til af því að tíminn sem tekur lyfið að losna úr töflunum hefur lengst. Í umfjöllun greiningardeildar Morgan Stanley er gert ráð fyrir að prófanir tefjist um hálft til heilt ár meðan DeCode leitar nýs samstarfsaðila til töfluframleiðslunnar. Greiningardeildin mælir með kaupum í DeCode fyrir langtímafjárfesta og er þeirrar skoðunar að fyrirtækið gæti á endanum náð árangri og skilað verulegum arði. Þriðjafasaprófanirnar hófust um miðjan maí á þessu ári og var fyrirfram ætlað að þær tækju tvö til þrjú ár og kostuðu upp undir 60 milljarða króna. DG031, sem er forvarnarlyf gegn hjartaáföllum, er lengst komið allra lyfja Decode í lyfjaþróun. Ekkert bendir til að þetta hafi haft áhrif á upptöku lyfsins hjá þátttakendum, né á öryggi lyfsins, segir í tilkynningu DeCode, en þar er einnig haft eftir Kára Stefánssyni forstjóra að áfram verði unnið að þróun greiningarprófs og annars lyfs sem beindist að áhættuþættinum, meðan framleiðsluferlið yrði endurbætt og nýjar töflur framleiddar fyrir áframhaldandi prófanir á DG031.
Viðskipti Mest lesið Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira