Bílaverð í hæstu hæðum á eBay 20. september 2006 00:01 Ferrari enzo Ein af ástæðum þess að bílar af gerðinni Ferrari Enzo eru dýrir er sú að einungis 400 slíkir bílar voru framleiddir. MYND/Njáll
Rauður Ferrari Enzo sportbíll er við það að slá verðmet í útibúi uppboðsvefsins eBay í Bretlandi Hæsta boð í bílinn nú stendur í rúmum 300.000 pundum eða um 40 milljónum íslenskra króna. Dýrasti hluturinn sem fram til þessa hefur selst á uppboðsvefnum er handtaska sem eitt sinn var í eigu Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Hún fór á 103.000 pund eða tæpar 13,6 milljónir króna fyrir sex árum. Þetta er engu að síður nokkuð lægra verð en fékkst fyrir bíl sömu tegundar hjá uppboðsvefnum í Sviss fyrir tveimur árum en sá fór á 540.000 pund eða rúmlega 71 milljón króna á núvirði. Ástæðan fyrir svo háu verði fyrir bílinn er sú að einungis voru framleiddir 400 bílar af þessari gerð. Á meðal þeirra sem eiga bíla sem þessa eru leikarinn Nicolas Cage, tónlistarmennirnir Eric Clapton og Rod Stewart og formúlukappinn Michael Schumacher. Bíllinn, sem er tveggja ára gamall, hefur nær einungis verið notaður í auglýsingaskyni og því fremur lítið ekinn eða um 800 kílómetra. Tilboðsfrestur rennur út á morgun. Núverandi eigandi tekur það hins vegar skýrt fram að verði bíllinn ekki í Bretlandi verði sá sem kaupir hann að sjá sjálfur um flutning á bílnum og greiða flutningskostnaðinn.-
Viðskipti Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira