Hreinn Jakobsson tekur við ANZA 6. september 2006 00:01 Hreinn Jakobsson
Hreinn Jakobsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ANZA hf. í stað Guðna B. Guðnasonar sem lét af störfum núna um mánaðamótin. Hreinn er viðskiptafræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu bæði í upplýsingatækni og fjármálastarfsemi. Hreinn hefur síðustu níu árin verið forstjóri Skýrr hf., allt frá einkavæðingu fyrirtækisins árið 1997 og á þar að baki farsælan feril. Eftir eigendaskipti á fyrirtækinu í sumar varð þó ljóst að hann ætti ekki samleið með nýrri stjórn og hvarf hann því frá Skýrr. Áður starfaði Hreinn hjá Iðnaðarbanka Íslands hf. og Iðnlánasjóði í fimm ár. Að því búnu réð hann sig til Þróunarfélags Íslands hf. og starfaði þar í alls átta ár, fjögur sem framkvæmdastjóri. Þá hefur Hreinn setið í stjórnum fjölda fyrirtækja bæði í upplýsingatækni og öðrum atvinnugreinum, meðal annars í stjórn Bakkavarar síðastliðin sex ár. Eigendur ANZA ætla að efla fyrirtækið til framtíðar og horfa til útrásar og er ráðning Hreins Jakobssonar sögð liður í þeirri stefnu. Fyrirtækið var stofnað árið 1997 og hefur frá upphafi verið með öflugustu upplýsingafyrirtækjum landsins. Starfsmenn ANZA eru rúmlega 85 og ársvelta áætluð um 900 milljónir króna. Aðaleigandi fyrirtækisins er Síminn, en nokkur fyrirtæki og starfsmenn eiga í því smærri hlut.
Viðskipti Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fleiri fréttir Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Sjá meira