Gott uppgjör Bakkavarar 1. mars 2006 00:01 Lýður og Ágúst Guðmundssynir. Hagnaður Bakkavarar var 3,5 milljarðar á síðasta ári sem er í góðu samræmi við væntingar greiningardeilda.
Bakkavör Group skilaði 3,5 milljarða hagnaði árið 2005 og var uppgjörið í góðum takti við væntingar markaðarins. Á fjórða ársfjórðungi, sem var besti hluti ársins, skilaði félagið um 1.229 milljóna króna hagnaði. Arðsemi eigin fjár var 30 prósent samanborið við 16,4 prósent árið 2004. Bakkavör tók stakkaskiptum á síðasta ári með 73,7 milljarða yfirtöku á Geest og því er félagið varla samanburðarhæft á milli ára. Þó sést að hagnaður á hlut jókst úr 0,8 pensum í 2,0 pens en ekkert nýtt hlutafé var gefið út í tengslum við kaupin. Tekjur félagsins á árinu námu tæpum 78,6 milljörðum króna og var hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 9,4 milljarðar króna. Yfirtakan á Geest var skuldsett og því skiptir sjóðsstreymið miklu máli til að geta staðið undir afborgunum af lánum. Frjálst fjárflæði var 7,1 milljarður en það er sú upphæð sem er til frjálsrar ráðstöfunar. Handbært fé fyrir skatta og vexti var 11,3 milljarðar í árslok. Eignir félagsins voru 123,5 milljarðar í árslok en eigið fé tæpir fjórtán milljarðar króna. Stjórn félagsins gerir í fyrsta skipti tillögu um að greiddur verði arður og leggur hún til 25 prósenta arð af nafnvirði hlutafjár.
Innlent Viðskipti Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira