Næturfrost dregur úr sprettu 22. maí 2005 00:01
Veðurstofa Íslands segir frostanætur hafa verið alltíðar það sem af er maímánuði, en gróður vex hægar af þeim sökum. "Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt," segir í tilkynningu Veðurstofunar. Þannig eru frostnætur sagðar hafa verið tólf á Hjarðarlandi í Biskupstungum og þrettán á Staðarhóli í Aðaldal, það sem af er mánuðinum. "Í Reykjavík hefur næturfrost einnig verið oftar en venja er til eða átta sinnum líkt og á Akureyri." Hingað til hefur mánuðurinn verið heldur kaldari en í meðalári á landinu, en á Norðurlandi hefur meðalhiti undanfarin þrjú ár verið svipaður á saman tíma, frá 1. til 21. maí. Veðurstofan segir að það sem af er mánuðinum hafi einnig verið þurrt og úrkoman mælst um eða innan við 10 millimetrar í flestum landshlutum, að undanskildu Norðausturlandi, og tiltekur að af þessum völdum hafi gróðurframvinda verið heldur hæg þetta vorið, þar sem bæði næturfrostið og þurrkarnir hægi á vexti gróðurs. Jafnframt er þó bent á að maímánuð einkenni jafnan hár loftþrýstingur með björtu veðri og lítilli úrkomu, þar sem norðanátt er gjarnan ríkjandi.
Fréttir Innlent Veður Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Sjá meira