Skoðun

Er vit í þessu?

Guðmundur Magnússon skrifar
Það var víst sannkölluð þjóðhátíðarstemmning á Siglufirði á laugardaginn þegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, sem einnig er þingmaður kjördæmisins, tilkynnti að hafist yrði handa um gerð Héðinsfjarðarganga á næsta ári og göngin opnuð í árslok 2009.

Þessar framkvæmdir áttu sem kunnugt er að hefjast fyrir tveimur árum en var þá frestað í sparnaðarskyni við við mikil og almenn mótmæli og óánægju Siglfirðinga, Ólafsfirðinga og annarra íbúa á Norðurlandi vestra.

Um það er ekki deilt að göngin sem tengja Ólafsfjörð og Siglufjörð eru mikil samgöngubót, ekki síst að vetrarlagi. Og fleira hangir á spýtunni að sögn sveitarstjórnarmanna fyrir norðan; göngin skapa grundvöll fyrir sameiningu sveitarfélaga á svæðinu, samstarfi fyrirtækja og stóraukinni ferðaþjónustu.

Rök Sturlu Böðvarssonar fyrir framkvæmdunum eru þau að nauðsynlegt sé að landið sé allt byggt. Hann sér göngin sem lið í að efla Eyjafjarðarsvæðið, frá Siglufirði til Akureyrar, sem eðlilegt mótvægi við höfuðborgarsvæðið. Nýta þurfi fjárfestingar á svæðinu og til þess þurfi greiðar samgöngur. Og líklegt er að í kjölfar framkvæmdanna verði ekki aðeins um að ræða aukna nýtingu fjárfestinga sem þegar eru komnar til sögu. Þegar heyrast raddir um að göngin kalli á margs konar uppbyggingu á Eyjafjarðarsvæðinu, fleiri skóli, fleiri sjúkrastofnanir og annað af því tagi,

Eins og með aðrar svokallaðar byggðaframkvæmdir er þverpólitísk samstaða um Héðinsfjarðargöngin. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna höfðu gagnrýnt frestun þeirra á sínum tíma. Þeir fjölmenntu á fagnaðarhátina á Siglufirði og föðuðu samgönguráðherra.

Göngin kosta sitt. Áætlunin hljóðar upp á 7 milljarða króna. Íbúar á Siglufirði, sem helst munu njóta ganganna, eru innan við 1.400 að tölu og hefur farið fækkandi með hverju árinu. Ef heildarupphæðinni er deilt á íbúana koma 5 milljónir í hlut hvers bæjarbúa eða 20 milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu.

Samkvæmt áætlunum Vegagerðarinnar munu 350 bílar fara um Héðinsfjarðargöng á sólarhring. Ekki verða innheimt veggjöld eins og í Hvalfjarðargöngum suðvestanlands. Um þau fara næstum fjögur þúsund bílar á sólarhring og hver og einn bílstjóri sem ekki kaupir miða í áskrift þarf að greiða 1000 krónur fyrir ferðina.

Þær raddir hafa heyrst - og ekki í fyrsta sinn núna þegar endanleg ákvörðun liggur fyrir - að Héðinsfjarðargöng séu tóm vitleysa, sóun almannafjár og jafnvel móðgun við íbúa annars staðar á landinu, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sárvantar samgöngumannvirki. Sumir tala um Héðinsfjarðargöng sem þverpólitíska spillingu á háu stigi. Sagt er að landsmenn hafi enga ástæðu til að fagna með Siglfirðingum. Einn helsti álitsgjafi þjóðarinnar, Egill Helgason, kenndur við Silfrið á Stöð tvö, kallar Siglufjarðargöngin "skrípaleik" á vefsíðu sinni í gær. Hér má lesa pistil Egils og hinar líflegu umræður sem sköpuðust um hann.

Hvað finnst lesendum Skoðana á Visi um málið? Hittir Egill í mark eða eru ummæli hans vanhugsuð, jafnvel fordómafull?

 Orðið er laust til frekari umfjöllunar.

 gm@frettabladid.is.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×