Konur með fulla poka af fræjum 8. febrúar 2005 00:01
Í gömlum húsakynnum Rósakrossreglunnar og síðar heilunarskóla Erlu Stefánsdóttur, Lífssýnar, í Bolholti 4, hefur verið opnuð ný stöð fyrir óhefðbundnar lækningar. Húsnæðið hefur verið endurnýjað í hólf og gólf og hlotið nafnið Rósin og nú hafa þar aðstöðu sjö konur sem sérhæfa sig í ýmsum greinum óhefðbundinna lækninga. Erlu Stefánsdóttur þarf ekki að kynna fyrir Íslendingum, hún hefur auðgað líf okkar með frásögnum af álfum og fjallatívum, en hún er ein þeirra sem hefur aðstöðu í Rósinni. "Ég er búin að vera hér með skóla frá 1984, en námskeiðin mín byggjast á því að læra að þekkja sjálfan sig og heiminn sem við lifum í. Við viljum gjarnan vita eitthvað um önnur lönd, en vitum svo minnst um okkur sjálf," segir Erla. "Ég er bæði með námskeið og einkatíma. Það er svo margt sem hægt er að hjálpa fólki með, bæði drauma og langanir. Mér finnst ég hafa fengið fullan poka af fræjum í veganesti og er ánægð með að fræin mín hafa farið víða og blómgast vel." Ólöf Einarsdóttir er með BCc-gráðu í nálastungufræðum frá Brighton-háskóla og er meðlimur í The British Acuapuncture Counsil og Nálastungufélagi Íslands. "Það er útbreiddur misskilningur að nálarstungur gagnist bara við sársauka eða reykinga- eða eiturlyfjafíkn," segir Ólöf. "Þetta er lækningakerfi sem hefur þróast í þúsundir ára í Austurlöndum og hefur frá fornu fari verið notað við krónískum heilsufarsvandamálum." Fjórir heilarar starfar við Rósina, þær Helga Guðnadóttir, Svala S. Jónsdóttir, Sveinrós Sveinbjarnardóttir og Sigurborg Sigurbjarnadóttir. Þær hafa allar hlotið menntun og þjálfun í Guðspeki-Heilunarskólanum. Guðrún Garðarsdóttir býður upp á meðferð í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, meðferð sem í daglegu tali er nefnd cranio. Guðrún lauk námi frá College of Cranio Sacral Therapy árið 2002 og hefur sótt margvísleg framhaldsnámskeið. "Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun er ákaflega mild en öflug meðferð sem getur hjálpar flestum, hvort sem um er að ræða minniháttar óþægindi eða alvarlega kvilla," segir Guðrún. "Líkaminn hefur innbyggða hæfleika til halda jafnvægi á öllum sviðum, en við áverka og áföll skapast ójafnvægi sem getur leitt af sér sjúkdóma. Meðferðaraðilinn hjálpar líkamanum að ná djúpri slökun og spennulosun til að ná aftur jafnvægi og heilbrigði." Stór samkomusalur er í húsnæði Rósarinnar sem hægt er leigja út og sömuleiðis er boðið upp á aðstöðu fyrir nuddnema sem geta leigt aðstöðuna fyrir 2.500 krónur á dag. Svanhildur Sigurðardóttir myndhöggvari og eiginmaður hennar Haraldur Erlendsson geðlæknir eru ábyrgðarmenn Rósarinnar, en þau eru búsett í Englandi. "Það er sterk hefð fyrir óhefðbundnum lækningum í bland við hefðbundnar undir sama þaki í Englandi," segir Svanhildur. Það er auðvitað stefnan hér heima þegar fram líða stundir. Haraldur vinnur einmitt á slíkri stöð í Englandi og er meðlimur í Félagi geðlækna á andlegri leið, en félagið telur nú 200 meðlimi. Það er eðlilegt og gott að allir starfi hlið við hlið og í einingu því öll stefnum við að sama marki, að bæta líf og heilsu fólks." Aðstaðan er mjög góð.Hari
Heilsa Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Tónlist Það er komið gó hjá Bó Lífið „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Svala minnist pabba síns Lífið Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Tíska og hönnun Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lífið Fleiri fréttir Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist