Menning

Almenningur getur kosið

Almenningi gefst nú í fyrsta sinn kostur á að taka þátt í kosningu Miss World með því að greiða einum keppanda atkvæði á netinu. Atkvæðin hafa vægi í úrslitum keppninnar og geta Íslendingar stutt Hugrúnu Harðardóttur með því að greiða henni atkvæði á vefsíðunum missworld.tv eða globalbeauties.com. Alls keppa 109 stúlkur til úrslita í Sanaya í Kína 4. desember næstkomandi. Hugrún er meðal tíu stúlkna sem valdar voru í tíu manna úrslit í hliðarkeppninni Miss Sport Fitness. Á morgun keppa þessar tíu innbyrðis og kemst sigurvegarinn sjálfkrafa í tuttugu manna úrslit á lokakvöldinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.