Silja hlýtur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember 2004 00:01
Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur, hlaut í dag verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2004 fyrir starf sitt í þágu íslenskrar tungu. Verðlaunin eru veitt í tilefni af degi íslenskrar tungu, sem er í dag. Verðlaunin eru 500 þúsund krónur og ritsafn Jónasar Hallgrímssonar í skinnbandi. Í rökstuðningi ráðgjafarnefndarinnar sem valdi Silju segir: „ Silja hefur lengi sinnt íslenskri tungu og menningu af dugnaði, metnaði og alúð. Árið 1981 kom út eftir hana íslensk barnabókmenntasaga, sú eina sem skrifuð hefur verið hér á landi og mikið brautryðjendaverk en þar er fjallað um íslenskar barnabækur 1780-1979. Silja vakti mikla athygli ungs fólks fyrir bók sína um Bubba árið 1990 en eitt merkasta rit hennar er án efa ævisaga Guðmundar Böðvarssonar en fyrir þá bók hlaut hún Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1994. Silja var ritstjóri Tímarits Máls og menningar á miklum blómatíma þess. Þegar til stóð að leggja niður TMM í fyrra tók hún það upp á arma sína og sér nú ein um að koma því út. Silja hafði í allmörg ár umsjón með menningarsíðum DV og var í forsvari fyrir menningarverðlaunum blaðsins. Hún skrifaði sjálf fjölda greina og sinnti gagnrýni. Umfjöllun blaðsins um menningarmál vakti athygli langt út fyrir lesendahóp blaðsins og hafði mikil áhrif á umræðu í landinu. Silja hefur verið barnabókaritstjóri, afkastamikill þýðandi og er afbragðs upplesari. Einkennandi fyrir allt hennar starf er víðsýni, frjó hugsun og, umfram allt, smitandi áhugi."
Lífið Bókmenntir Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Lífið samstarf Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira