Tíska og hönnun

Ný íslensk gullsmíði

Þrjátíu og fjórir íslenskir gullsmiðir eiga verk á sýningunni Ný íslensk gullsmíði sem opnuð verður á morgun í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni. Gullsmiðirnir hafa smíðað gripina sérstaklega fyrir sýninguna að sögn Ásu Gunnlaugsdóttur, formanns Félags íslenskra gullsmiða. "Sýningin er mjög fjölbreytt enda er mikill aldursmunur á fólkinu sem að henni stendur, þar er allt frá nýútskrifuðu fólki upp í gamla jaxla eins og Jens Guðjónsson sem er á níræðisaldri. Áherslurnar eru því auðvitað mismunandi," segir hún. Ekki er það þó svo að þeir elstu séu endilega með elstu hugmyndirnar því yngra fólkið sækir líka í sjóði fortíðar þegar það hannar sína vöru. Sem dæmi um það nefnir Ása víravirki eftir ungan gullsmið, Helgu Einarsdóttur, sem blandar þar saman gömlum hefðum og nýjum.

Mikil áhersla er á alla fylgihluti með fatnaði í dag og þar með skartgripi og Ása kveðst ánægð með íslenska neytendur. "Íslenskar konur eru óhræddar við að nota sýnilegt skart og tileinka sér nýjungar í því eins og öðru," segir hún.

Með sýningunni í Gerðarsafni fagnar Félag íslenskra gullsmiða 80 ára afmæli sínu og það verður Dorrit Moussaieff forsetafrú sem opnar hana.

Hálsmen eftir Jens Guðjónsson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.