Námskeið um kynverund kvenna 26. október 2004 00:01 "
Konur þekkja að það að vera kynvera snýst ekki bara um kynlífsathafnir eða hvað kynfærin aðhafast hverju sinni, heldur hvernig hjartað hefur það," segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynlífsfræðingur, sem verður með námskeið í næsta mánuði sem ber heitið Kynverund kvenna. Námskeiðið er fyrir konur sem vilja styrkja og læra um eigin kynverund út frá eigin forsendum og reynslu. "Við munum meðal annars fjalla um sjálfstraust í nánum samböndum, einkenni góðra parsambanda, kynsvörun kvenna og eðli og mismunandi birtingu kynlöngunar hjá kynjunum. Þetta snýst um að styrkja konur í því að hafa skoðun á því hvernig þær vilja haga sínu kynlífi, algjörlega á eigin forsendum. Það er alltof algengt að konum sé sagt hvernig þær eiga að upplifa kynlífið, eða þær lesi um það óraunhæfar lýsingar í bókum og blöðum og verði þar af leiðandi óöruggar og hræddar um að þær séu að gera eitthvað rangt. Námskeiðið verður í formi stuttra fyrirlestra, við verðum með verkefni í litlum hópum og umræður. Áherslan er á afslappað andrúmsloft, trúnað og gagnkvæmt traust og takmarkaður fjöldi er á hverju námskeiði," segir Jóna Ingibjörg. Námskeiðið, sem hefst 20. nóvember, er tveir laugardagar, samtals 12 kennslustundir, og hægt er að skrá sig eða fá nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á namskeid@jonaingibjorg.is eða hringja í síma 690-3569 Á vef Jónu Ingibjargar jonaingibjorg.is er boðið upp á nýja þjónustu sem á sér ekki hliðstæðu hérlendis. "Fólk getur sent fyrirspurn í tölvupósti á netrad@jonaingibjorg.is og fengið skriflegt svar frá mér innan viku. Þá er á sama vef hægt að panta símatíma fyrir kynlífsráðgjöf."
Nám Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira