Menning

Airwaves meiriháttar viðburður

Airwaves tónlistarhátíðin hefur fest sig í sessi sem meiriháttar tónlistarviðburður á alþjóðlegan mælikvarða. Það er sérstök ánægja með hátíðina í ár þar sem mun fleiri erlendir gestir hafa sótt hana. Þetta er í fyrsta sinn sem uppselt er á hátíðina.

Kári Sturluson, umboðsmaður meðal annar Quarashi og Vínils, segir þetta vel heppnað. Aldrei hafi verið meiri áhugi. Hann segir að þeir sem spili á hátíðinni og standi sig vel geti tvímælalaust náð eyrum þeirra sem máli skipta í bransanum. Þar spilar líka inn í smæð Reykjavíkur sem gerir að verkum að „bransa- og fjölmiðafólkið“ kemst yfir að sjá flestar hljómsveitirnar.  

Meðal þeirra sem troða upp í kvöld á Gauknum er bandaríska hljómsveitin The Shins. James Mercer söngvari og Marty Crandall hljómborðsleikari eru spenntir, segja kynninguna góða og vonast eftir að geta kynnt hinn „mikla“ íbúafjölda landsins fyrir tónlist sinni. Að öðru leyti sé þetta ánægjulegt tækifæri fyrir þá að sjá nýtt land, stað sem þeir hefðu annars ekki farið til. Spurðir hvort þeir séu á barmi heimsfrægðar segja þeir svo vera, og að kvöldið í kvöld gæti haft áhrif á hvort af því verði.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.