Flensan ekki komin 12. október 2004 00:01
Byrjað var um síðustu mánaðamót að bólusetja fólk gegn inflúensu hér á landi og eru þær aðgerðir í fullum gangi. Enda þótt fréttir berist um hörgul á bóluefni í Bandaríkjunum og víðar, vegna mistaka í framleiðslu þess hjá stóru lyfjafyrirtæki í Bretlandi, mun skorts ekki gæta hér á landi. "Við erum með nægar birgðir handa öllum sem þess óska því við erum ekki í viðskiptum við þetta breska fyrirtæki," segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Hann segir flensu ekki hafa orðið vart hér á landi á þessu hausti en aðeins hafi hún bankað á dyr í Noregi og Svíþjóð í einu og einu tilfelli. Hann telur þó ekki að hún verði fyrr á ferðinni hér en venjulega. "Það tekur flensu alltaf tíma að vinna sér land og yfirleitt er það ekki fyrr en upp úr áramótum sem hún verður að faraldri," segir hann. Flensan á yfirleitt uppruna sinn í Asíu þar sem mannfjöldinn er mestur. Hún fer um suðurhvel jarðar þegar haustið er þar og lætur svo á sér kræla á norðurhvelinu þegar kólna tekur í veðri. Í millitíðinni hefur lyfjaframleiðendum tekist að greina stofnana og búa til bóluefni gegn henni. "Sú sem nú er á ferðinni er flensa af hefðbundnum A og B stofnum og svo eru alltaf sérstakir undirflokkar því hún breytir sér alltaf frá ári til árs," segir sóttvarnalæknirinn. Haraldur segir ýmsa atvinnurekendur panta bóluefni handa öllu sínu starfsfólki en annars séu það vissir hópar sem ráðlagt sé að láta sprauta sig. Þótt fólk sé bólusett þýði það þó ekki algera vörn gegn flensu. "Vörnin er svona 60-90% og því fær fólk mun vægari einkenni en ella ef það lætur bólusetja sig," segir hann og spurningu um hvort brögð séu að því að fólk veikist af sprautunni svarar hann svo: "Fólk getur fengið smá hita og örlítil eymsli á sprautustaðnum. En það er allt mjög vægt og á ekki að trufla neinn." Ráðlagt er að bólusetja: Alla eldri en 60 ára Börn (eldri en 6 mánaða) og fullorðna... *með undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma (þar á meðal astma). *sem eru ónæmisbældir *með langvinna efnaskiptasjúkdóma (þar á meðal sykursýki). *börn og unglinga sem taka aspírin að staðaldri (vegna hættu á Reye heilkenni). *Einstaklinga sem sýkt geta aðra sem eru í hættu að fá alvarlega inflúensusýkingu, það er: *starfsfólk á sjúkrahúsum sem annast sjúklinga. *starfsfólk á elli- og hjúkrunarheimilum. *heimilisfólk þar sem áhættuhópar dvelja.
Heilsa Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fleiri fréttir Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira