Menning

Vísitalan hækkar um 0,43%

Vísitala neysluverðs í september hækkar um 0,43% frá síðasta mánuði og er nú 235,6 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,2 stig eða 0,40% hærri en í ágúst. Frá þessu greinir á vef Hagstofu Íslands. Sumarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fatnaði og skóm um 7,5% (vísitöluáhrif 0,38%). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,04% sem jafngildir 0,2% verðhjöðnun á ári (án húsnæðis lækkað um 0,9%). Vísitala neysluverðs í september gildir til verðtryggingar í október 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.652 stig fyrir október.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.