Mælir andoxunarefni 15. júní 2004 00:01
Nú er hægt að láta mæla magn andoxunarefna í líkamanum á einfaldan hátt. Almennt eru andoxunarefni vörn líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda en skaðleg áhrif þeirra hafa verið tengd við ýmsa sjúkdóma á borð við hjarta- og æðasjúkdóma, taugasjúkdóma, efnaskiptasjúkdóma sem og vissar gerðir krabbameins. Rannsóknir benda til að einstaklingar með hátt hlutfall andoxunarefna í fæðu séu ekki jafn líklegir til að fá slíka sjúkdóma. Einnig hefur of mikið magn stakeinda í líkamanum verið tengt við hröðun öldunarferlis frumna. Því ætti nægjanlegt hlutfall andoxunarefna í líkamanum að hægja á öldrunarferlinu. Andoxunarskanni Pharmanex byggir á lasertækni sem ákvarðar magn karótenóíða í líkamanum. Karótenóíð eru stór og mikilvægur flokkur andoxunarefna sem við fáum aðallega úr ávöxtum, grænmeti og fjölvítamíni með andoxunarefnum. Andoxunarskanninn kom á markað í mars á síðasta ári en hann hefur verið í þróun síðastliðin sex ár. Það er fyrirtækið Pharmanex á Íslandi sem hefur einkaleyfi á skannanum og sér um framkvæmd mælinga. Fyrirtækið er dótturfyrirtæki Nu Skin Enterprises sem er leiðandi á sviði náttúrulegra fæðubótaefna og hefur sérhæft sig í rannsóknum og þróun á næringar- og fæðubótaefnum unnum úr náttúrulegu hráefni. Frekari upplýsingar um andoxunarskannann má nálgast á heimasíðunni pharmanex.com
Heilsa Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið Villi Vill innblástur að ljósmynd, lagi og skúlptúr Tónlist „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira