Menning

Ber virðingu fyrir fæðu og peningum

"Fyrst og fremst gæti ég þess að fá peninganna virði. Mér finnst til dæmis afburðaslæmt þegar ég fer á veitingastað og fæ vondan mat þó að hann hafi verið á lágu verði" segir Jónas og bætir við að hann hendi aldrei mat heldur nýti hann allan upp til agna. "Ég hugsa hagkvæmum þegjandi þörfina" segir Jónas því hann skrælir meira að segja þann part úr epli sem byrjaður er að skemmast til þess að geta borðað það. "Ég kaupi yfirleitt skó sem eru frekar dýrir en sem endast mér lengi og ég versla mér mjög góð föt og þá sjaldan," segir Jónas um fatakaupin og honum finnst jafnframt ánægjulegt að eiga föt í langan tíma sem eru ennþá að skila miklu til hans. "Ég sé meira eftir ódýrum hlutum sem hafa takmarkaða lífdaga og set meiri pening í það sem endist mér vel og lengi" segir Jónas að lokum um sparnaðaraðferðir sínar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.