Viðskipti erlent
154 155 156 157 158 159 160 161 162 … 334 ›
Apple sló öll fyrri sölumet með iPhone 5 í Kína Apple sló öll fyrri sölumet sín í Kína um helgina þegar fyrirtækið seldi þar tvær milljónir iPhone 5 síma frá föstudegi og fram á sunnudagssíðdegi. Viðskipti erlent 17.12.2012 08:23
Himinháar tekjur Hobbitans Það stefnir allt í það að myndin Hobbitinn: Óvænt ferðalag setji nýtt tekjumet. Tekjur vegna myndarinnar á föstudaginn, fyrsta sýningardegi í Bandaríkjunum, námu 37,5 milljónum dala. Spár gera ráð fyrir því að tekjur yfir helgina verði að minnsta kosti 85 milljónir dala. Sumir telja að tekjurnar geti farið allt upp í 100 milljónir, eða um 12,7 milljarða íslenskra króna. Aldrei hafa tekjur af nokkurri mynd, sem sýnd er í desember, verið jafn háar. Utan Bandaríkjanna hafa tekjur myndarinnar numið um 27 milljónum bandaríkjadala, eða um 3,4 milljörðum króna. Viðskipti erlent 16.12.2012 14:26
Neysla Dana á skyri hefur margfaldast á síðustu árum Neysla Dana á skyri hefur margfaldast á síðustu árum. Þetta kemur fram í greiningu sem unnin var á vegum danska matvælarisans FDB sem á m.a. Coop verslunarkeðjuna. Viðskipti erlent 15.12.2012 12:19
Píanóið í myndinni Casablanca selt á uppboði Píanóið sem notað var í hinni klassísku kvikmynd Casablanca var selt á uppboði í gærkvöldi hjá Sotheby´s í New York fyrir 600.000 dollara eða 72 milljónir króna. Viðskipti erlent 15.12.2012 10:25
Stofnandi IKEA sagður auðugasti maður heimsins Á árlegum lista um auðugustu einstaklinganna í Svíþjóð kemur fram að Ingvar Kamprad stofnandi IKEA telst nú auðugasti maður heimsins. Viðskipti erlent 14.12.2012 10:12
Bretar versla mest á netinu af stórþjóðum Netverslun er vinsælli hjá Bretum en nokkuri annarri stórþjóð í heiminum Viðskipti erlent 14.12.2012 06:18
Ekkert lát á verðhækkunum á áli Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli. Verðið er komið í 2.132 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London. Viðskipti erlent 13.12.2012 09:32
Porsche slær eigið sölumet Þýski lúxusbílaframleiðandinn Porsche hefur þegar slegið met sitt um fjölda seldra bíla á einu ári. Viðskipti erlent 13.12.2012 07:07
Sömdu um bankaeftirlitsstofnunina í nótt Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna sömdu í nótt um að stofna eina bankaeftirlitsstofnun fyrir evruríkin 17 og á hún að taka til starfa í mars árið 2014. Viðskipti erlent 13.12.2012 06:27
Google tekur saman árið Tæknirisinn Google hefur birt árlega samantekt sína yfir helstu vangaveltur mannkyns. Alls voru 1.2 trilljón leitir framkvæmdar árið 2012. Viðskipti erlent 12.12.2012 22:10
Bakreikningur ógnar framtíð FIH bankans Dómsmál sem er í uppsiglingu gegn Bankaumsýslu Danmerkur (Finansiel Stabilitet) gæti endað með stórum bakreikningi til FIH bankans. Þar með myndu minnka enn frekar möguleikar Seðlabanka Íslands á að fá helminginn af söluverðinu fyrir FIH bankann endurgreiddan. Viðskipti erlent 12.12.2012 10:30
Finnar kaupa Royal Copenhagen Búið er að ganga frá sölunni á dönsku postulínsgerðinni Royal Copenhagen til finnska fyrirtækisins Fiskars. Viðskipti erlent 12.12.2012 09:45
Myndin The Hobbit er hvalreki fyrir Nýja Sjáland Gerð myndarinnar The Hobbit hefur verið sannkallaður hvalreki fyrir ferðamannaþjónustuna á norðurey Nýja Sjálands þar sem Hobbitaþorpið var byggt. Viðskipti erlent 12.12.2012 09:24
Rúmur helmingur fullorðinna á snjallsíma Könnun Rúmlega helmingur landsmanna yfir 18 ára aldri, um 54 prósent, á snjallsíma samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Það er veruleg aukning frá því árið 2010 þegar 43 prósent áttu slík tæki. Viðskipti erlent 12.12.2012 06:00
Flestir farsímaeigendur eiga Nokia Langflestir Íslendinga sem eiga farsíma eru með Nokia síma, eða um 43% þeirra sem eiga síma. Viðskipti erlent 11.12.2012 10:48
Kaupmáttur lækkar þriðja árið í röð í Danmörku Kaupmáttur launa í Danmörku lækkaði á þessu ári og er þetta þriðja árið í röð sem slíkt gerist. Verðlag hækkaði almennt í Danmörku um 2,3% í ár en launin hækkuðu aðeins um 1,4%. Viðskipti erlent 11.12.2012 09:07
HSBC greiðir 240 milljarða í sekt HSBC bankinn mun greiða bandarískum stjórnvöldum 1,9 milljarð dala, eða um 240 milljarða króna, í sekt vegna peningaþvættismáls. Þetta er sagt vera hæsta sekt sem nokkur banki hefur greitt vegna slíkra mála. Bankinn var grunaður um að hafa aðstoðað við að þvo peninga í eigu eiturlyfjahringja og ríkja sem bandarísk stjórnvöld höfðu beitt viðskiptaþvingunum. Viðskipti erlent 10.12.2012 23:32
Metsala í nýjum og notuðum bílum í Danmörku Aldrei áður hafa jafnmargir bílar verið seldir í Danmörku og í ár, hvort sem um nýja eða notaða bíla er að ræða. Viðskipti erlent 10.12.2012 08:57
Stórmarkaðir og hótel í Svíþjóð banna sölu á risarækjum Fjöldi stórmarkaða og hótela í Svíþjóð hafa bannað sölu á risarækjum sem koma úr eldiskvíum í Asíulöndum. Viðskipti erlent 10.12.2012 06:49
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að gefa eftir. Verðið á tunnunni af Brent olíunni var komið undir 107 dollara í morgun eftir að hafa lækkað um 4% í síðustu viku. Viðskipti erlent 10.12.2012 06:22
Minnsta atvinnuleysi í Bandaríkjunum í fjögur ár Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mælist nú 7,7% og hefur ekki verið minna síðustu fjögur árin. Viðskipti erlent 8.12.2012 12:48
Norðmenn kanna olíuleit og vinnslu við Svalbarða Norska ríkisstjórnin hefur falið Olíuráði landsins að kanna möguleikana á olíuleit og olíuvinnslu við Svalbarða. Viðskipti erlent 8.12.2012 10:34
Boeing aftur orðinn stærsti flugvélaframleiðandi heimsins Flugvélaframleiðandinn Boeing, sem nýlega samdi við Icelandair um sölu á 12 nýjum farþegaþotum, er á leiðinni að ná stöðu sinni á ný sem stærsti flugvélaframleiðandi heimsins. Viðskipti erlent 7.12.2012 06:40
Bankaumsýsla Danmerkur fær tekjur frá Hells Angels Bankaumsýsla Danmerkur eða Finansiel Stabilitet er nú í þeirri sérkennilegu stöðu að fá tekjur frá glæpasamtökunum Hells Angels. Viðskipti erlent 7.12.2012 06:34
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðlækkað á síðasta sólarhring og er tunnan af Brent olíunni komin niður í 107 dollara. Viðskipti erlent 7.12.2012 06:29
Apple vill bylta sjónvarpsglápinu Apple mun leggja höfuðáherslu á þróun Apple TV margmiðlunarspilarans eða svipaðrar vöru á næstu misserum. Þetta tilkynnti Tim Cook, framkvæmdastjóri tæknirisans í dag en hann var gestur í fréttaskýringarþætti NBC, Rock Center. Viðskipti erlent 6.12.2012 15:39
Eurostat mælir samdrátt á evrusvæðinu Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat hefur staðfest að samdráttur ríkir nú á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 6.12.2012 10:40
Nær 5.000 Danir bornir út úr íbúðum sínum í ár Nær 5.000 Danir hafa verið bornir út úr íbúðum sínum í ár eftir að íbúðirnar voru settar á nauðungaruppboð. Viðskipti erlent 6.12.2012 09:47
S&P setur lánshæfiseinkunn Grikklands í takmarkað gjaldþrot Matsfyrirtækið Standard % Poor´s (S&P) hefur lækkað lánshæfiseinkunn Grikklands nær alveg niður á botninn eða í SD sem þýða mætti sem takmarkað gjaldþrot. Viðskipti erlent 6.12.2012 06:34
Auðbjörg segir upp 27 manns Útgerðarfyrirtækið Auðbjörg ehf. í Þorlákshöfn hefur sagt upp 27 starfsmönnum fyrirtækisins, 13 í landvinnslu og 14 manna áhöfn á línubátnum Arnarbergi ÁR-150, segir á fréttavefnum dfs. Starfsfólkið í landvinnslunni hættir um áramótin en sjómennirnir hafa hætt nú þegar. Fyrirtækið á fjóra báta en ætlar að selja tvo þeirra. Nú eru eftir 45 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 5.12.2012 10:50