
Veður

Kuldakastinu muni fylgja töluverð úrkoma
Sjaldséð snjókoma er í kortunum í fjöllum Norðanlands á morgun. Veðurfræðingar telja nokkuð ljóst að úr þessari spá rætist. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir allt eðlilegt í íslensku veðurfari en viðurkennir þó að það sé frekar óvanalegt að fá svona kuldakast í ágúst. Rætt var við Harald í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

„Ekki sést á þessari öld“
Veðurspákort fyrir morgundaginn eru landanum ekki náðug eins og svo oft áður þetta rigningarsumar. Hins vegar er það ekki rigning sem búist er við á morgun. Spáð er slyddu og snjókomu á morgun vestantil á Norðurlandi og á Hornströndum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir svona spá ekki hafa sést á þessum árstíma á þessari öld.

Víða bjart og fallegt sunnanlands í dag
Létta á til sunnanlands með morgninum og víða er spáð björtu og fallegu veðri þar. Á norðanverðu landinu er spáð norðvestan- og norðangolu eða kalda og rigningu eða súld með köflum. Snjóað gæti í fjöll fyrir norðan á sunnudag.

Lægð yfir landinu og skúradembur norðan- og austantil
Alldjúp og hægfara lægð er nú yfir norðanverðu landinu. Henni fylgir vestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi og rigning víða um land. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það dragi úr vætu norðvestantil þegar líður á daginn.

Lægð nálgast landið úr suðvestri
Lægð nálgast landið úr suðvestri nú í morgunsárið. Það gengur í austan- og suðaustankalda með rigningu sunnanlands, en dregur úr vindi síðdegis. Yfirleitt hægari og bjart með köflum fyrir norðan, en dálítil væta seinnipartinn.

Lægð við austurströnd en allt að 18 stig norðaustantil
Lægð er nú stödd við austurströnd landsins og þokast norður á bóginn. Þá snýst smám saman í suðvestangolu og dregur úr úrkomu. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að skýjað verði í dag og víða dálítil væta af og til, milt veður.

Djúp lægð fer yfir landið
Alldjúp lægð nálgast nú landið úr suðri. Í dag fer að rigna í norðaustan kalda eða stinningskalda, en hvassviðri suðaustantil seinnipartinn og er gul viðvörun í gildi fyrir það svæði frá klukkan 14 til 21 í kvöld. Í viðvörun Veðurstofunnar segir að veðrið verði varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.

Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun
Gul viðvörun vegna veðurs hefur verið gefin út fyrir Suðausturland á morgun vegna hvassviðris þegar lægð nálgast landið síðdegis. Viðvörunin gildir frá klukkan 14 til 21 á mánudag og spáir Veðurstofan norðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu í landshlutanum.

Skúrir síðdegis í dag
Veðurstofan spáir suðaustlægri og breytilegri átt í dag. Skúrir verða allvíða, sérstaklega síðdegis. Talið er að hiti verði átta til fimmtán stig.

Mildast sunnan heiða
Veðurstofan spáir hægum vindi á landinu í dag, en segir að þó muni blása aðeins úr norðvestri við norðausturströndina þar sem muni þó lægja smá saman. Þá verði súld eða dálítil rigning norðvestantil og einnig norðaustanlands í fyrstu. Annars verður skýjað með köflum og stöku skúrir inn til landsins síðdegis.

Hæglætisveður um helgina
Um helgina verður hæglætisveður um helgina. Það verður skýjað með köflum og lítilsháttar væta af og til í flestum landshlutum og milt. Norðan til á landinu verður hins vegar fremur þungbúið og svalt í dag, en það ætti að birta til og hlýna þar á morgun. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

Milt veður fram að og um helgi en svo tekur djúp lægð við
Það verður hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og á morgun. Það verður fremur þungbúið norðan- og austanlands og svalt, en bjartara sunnan heiða og mildara. Hiti er á bilinu 7 til 17 stig. Þetta kemur frami hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

Ísland gæti kólnað þrátt fyrir hlýnun á heimsvísu
Undanfarið hafa margir eflaust velt því fyrir sér hvernig standi á því að sumarið hafi verið svo alíslenskt í Reykjavík í ár og víðar fyrst hnötturinn okkar hlýnar. Til að mynda var heimshitamet slegið þann 22. júlí síðastliðinn og svo aftur daginn eftir en áhrifa þessarar hlýnunar virðist ekkert gæta hér á landi.

Útlit fyrir rólegt veður fram á föstudag
Spáð er hægu og rólegu veðri á landinu í dag og á morgun. Hiti á Suður- og Suðvesturlandi, þar sem verður bjartara yfir en annars staðar á landinu, gæti náð allt að átján stigum þar sem best lætur í dag.

Rólegra veður en líkur á síðdegisskúrum
Spáð er rólegra veðri í dag en undanfarna daga með hægri austlægri eða breytilegri átt. Bjart verður með köflum en líkur á síðdegisskúrum allvíða. Áfram er þó spáð leiðinlegu veðri á Suðausturlandi með norðaustan kalda eða strekkingi og rigningu öðru hverju.

Dregur úr vindi með morgninum
Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, í Breiðafirði, Ströndum, Norðurlandi vestra, Faxaflóa og á Austfjörðum. Spáð er norðaustan 10 - 18 m/s, hvassast norðvestan til, og talsverðri eða mikilli rigningu á Austfjörðum og Ströndum.

Leiðindaveður um allt land vegna djúprar lægðar
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða rigningar taka gildi á landinu sunnan- og austanverðu í dag. Djúp lægð stefnir að landinu og veldur leiðindaveðri um landið allt

Önnur djúp lægð á leiðinni
Önnur djúp lægð er á leiðinni til landsins á morgun með tilheyrandi leiðindaveðri um allt land, að því er fram kemur í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar.

Gul viðvörun í Eyjum fram á kvöld og leiðindaspá áfram
Austan eða norðaustan hvassviðri er nú á landinu sunnanverðu og Miðhálendinu og eru gula viðvaranir í gildi vegna þess. Viðvörun tekur gildi í Vestmannaeyjum og Suðurlandi nú klukkan 10:00 og gildir til 18:00. Varað er við að tjöld gætu fokið.

Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun
Gul viðvörun hefur verið gefin út vegna veðurs á Suðurlandi og Suðausturlandi á morgun vegna hvassviðris. Viðvörunin er í gildi frá klukkan sex í fyrramálið til fjögur á Suðurlandi þar sem gert er ráð fyrir fimmtán til tuttugu metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum syðst á svæðinu, einkum í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. Varað er við því að tjöld og lausamunir geti fokið.

Byrjar að rigna fyrir norðan en dregur úr vætu fyrir sunnan
Spáð er rigningu norðanlands en minnkandi vætu sunnan heiða í dag. Við upphaf verslunarmannahelgar er útlit fyrir rigningu í flestum landshlutum og stífri austan- og norðaustanátt.

Besta veðrið um verslunarmannahelgina?
Útlit er fyrir nokkuð úrkomusama verslunarmannahelgi, þar á meðal í Vestmannaeyjum. Á Vesturlandi og suðvesturhorni verður ágætis veður að sögn Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings hjá blika.is. Hann vill ekkert gefa upp um það hvar hann verður staddur um helgina.

Viðvaranir í gildi og vindasamt og blautt framundan
Gular viðvaranir vegna hvassviðris tóku gildi við Breiðafjörð í nótt og við Faxaflóa og á Suðurlandi í morgun. Reikna má með vindasömu og blautu veðri en nokkuð hlýju næstu daga.

Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina
Illvænlegar vendingar hafa orðið á veðurspánni fyrir verslunarmannahelgina að mati Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings.

Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni
Spáð er hægri vestlægri átt og úrkomulitlu veðri á landinu í dag. Myndarleg og óvenju djúp lægð er hins vegar sögð taka völdin á morgun og næstu daga.

Enn hætta á vatnavöxtum en dregur úr rigningunni
Dregið hefur úr rigningu á sunnanverðu landinu en enn má búast við vatnavöxtum í Þórsmörk og nágrenni vegna hennar. Vatnsmagn jókst í ám á svæðinu í nótt samkvæmt mælitækjum og gæti haldið áfram í dag á þeim svæðum sem Veðurstofan telur ástæðu til að fylgjast með á Suðurlandi, Suðausturlandi og miðhálendinu.

Gul viðvörun vegna mikillar rigningar
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi, Suðausturlandi og á Miðhálendinu vegna mikillar rigningar.

Áfram vætusamt og skýjað um helgina
Spáð er suðlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s í dag. skýjað að mestu og dálítil væta á víð og dreif. Bætir í rigningu á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Hiti víða 10 - 15 stig.

Áfram rigning í kortunum
Veðurfræðingar spá suðvestlægri átt í dag, dálítilli vætu um mest allt land og rigningu sunnan- og vestanlands eftir hádegi.

Kröpp og djúp lægð veldur hvassviðri
Kröpp og djúp lægð miðað við árstíma er viðvarandi skammt norður af landinu og veldur vestan hvassviðri norðanlands með talsverðri vætu. Hægara og úrkomuminna er á sunnanverðu landinu.