Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Einhver kemur að máli við þig og færir þér fréttir sem þú átt ekki von á. Þú bregst vel við og heldur þínu striki sem er það eina rétta.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú reynir að breyta ýmsu í kringum þig og tekst bærilega til. Ágreiningur kemur upp í fjölskyldunni en "sáttasemjarinn" á bænum jafnar hann.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Félagslífið blómstrar um þessar mundir og þér gengur vel að umgangast annað fólk. Þú munt bráðlega hitta manneskju sem mun hafa mikil áhrif á líf þitt til hins betra.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú gætir lent í fróðlegum samræðum við ókunnuga í dag og haft mjög gaman af. Gættu þín á persónu sem gæti reynst þér erfiður keppinautur.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Vinur þinn hefur áhrif á hugsanir þínar í dag. Þú ættir að hlusta á hugmyndir hans en varast að taka orð hans of bókstaflega.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Gefðu þér tíma til að sinna áhugamálum þínum þó að þú hafir í mörgu að snúast. Það verður mikið um að vera hjá þér í félagslífinu á næstunni.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Nú er mikið um að vera í kringum þig og eins gott að vera í góðu formi. Fjölskyldan þarfnast þín verulega um þessar mundir.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú þarft að einbeita þér að einkamálunum og rækta samband þitt við manneskju sem þú ert að fjarlægjast. Rómantíkin kemur við sögu í dag.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú átt góð samskipti við fólk í dag og þetta er góður tími til að endurnýja gömul kynni. Þú færð mikla athygli frá einhverjum.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Eitthvað liggur í loftinu sem þú áttar þig ekki fyllilega á. Best er að bíða og sjá til, þá skýrist málið. Kvöldið verður fremur rólegt.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Fyrri hluti dagsins kemur þér á óvart. Þú þarft að glíma við óvenjulegt vandamál. Þú verður þreyttur í kvöld og ættir að taka það rólega.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Það er best að reyna að komast að samkomulagi við fólkið í kringum þig, jafnvel þó það þýði að þú þurfir að hopa aðeins með skoðanir þínar. Aðrir hafa nefnilega margt gott til málanna að leggja.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú átt í mesta basli með að sannfæra vin þinn um að það sem þú sért að gera sé það rétta í stöðunni. Þú þarft kannski að kynna honum málavextina betur.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú sýnir góðvild í garð fólks sem kann vel að meta það. Greiðvikni þín aflar þér vináttu persónu sem þér er mikið í mun að vingast við.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Fólki í kringum þig hættir til að vera kærulaust í dag og það bitnar óþyrmilega á þér. Vertu þolinmóður við þá sem yngri eru í dag.

Menning