Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Fjárhagsstaðan er fremur erfið um þessar mundir en með þrautseigju má komast yfir þann hjalla. Þú slakar á í kvöld.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Eitthvað óvænt kemur upp á og þú gætir þurft að breyta áætlunum þínum á síðustu stundu.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú færð fréttir sem þú hefur beðið eftir í nokkurn tíma. Þær eru mun betri en þú áttir von á og kæta þig mikið.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú færð fréttir sem þú ert ekki nógu ánægður með en þú ættir að geta fengið hjálp til að leysa vandamálið. Kvöldið verður annríkt.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú hefur áhrif á ákvarðanir fólks og verður að gæta þess að misnota þér það ekki.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú ert mjög sjálfstæður í hugsun um þessar mundir og lætur best að starfa einn. Þú fær heilmiklu áorkað. Kvöldið verður skemmtilegt.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þú átt í einhverjum erfiðleikum í dag í samskiptum þínum við fjölskylduna. Með kvöldinu slaknar á spennunni.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Einhver vonbrigði verða á vegi þínum í dag. Framfarir sem verða núna munu koma sér vel í framtíðinni.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú hefur í mörgu að snúast í dag og það verður lítill tími fyrir félagslífið. Einhverjum finnst þú vanrækja sig og þú þarft að bæta honum það upp.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Eitthvað sem þú vinnur að um þessar mundir gæti valdið þér hugarangri. Taktu þér góðan tíma í að íhuga hvað gera skal. Þú færð bráðlega góðar fréttir.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ættir að hvíla þig í dag ef tími gefst til og reyna að hafa frið og ró í kringum þig. Einhver streita hefur gert vart við sig að undanförnu.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Það ríkir glaumur og gleði í kringum þig og er fleira í boði en þú getur með góðu móti sinnt.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú hefur í mörg horn að líta og ekki er víst að þú hafir tíma fyrir allt sem þú ætlaðir. Fjárhagsstaðan fer batnandi.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Það verður erfitt hjá þér að finna tíma til að slaka á og hugsa um einkamál í dag þar sem vinnan og félagarnir munu krefjast mikils af tíma þínum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þér berast fréttir sem þú hefur beðið eftir lengi. Fréttirnar eru ekki alveg eins góðar og þú hafðir vonast eftir en engu að síður viðunandi.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú ert ekki einn á báti í vandamáli sem þú stendur frammi fyrir. Vinir þínir eru fullir velvilja.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Það verður auðvelt að fá fólk til að taka þátt í breytingum á vissum sviðum. Vertu þolinmóður þó ekki gangi allt strax upp.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Láttu sem ekkert sé þó að einhver sé að gera lítið úr því sem þú ert að fást við. Farðu varlega í að gefa ráð.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér finnst ef til vill sem fólk ætlist til mikils af þér. Þú hefur í mörg horn að líta og tímaskortur hrjáir þig.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Eitthvað óvænt kemur upp á í byrjun dagsins og þú sérð fram á að það raski öllum degnum. Það er þó engin ástæða til að örvænta.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Sérviska þín getur gengið of langt stundum og gert þér erfitt fyrir á ýmsum sviðum. Þú þarft að taka ákvörðun án þess að hugsa þig um.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú finnur fyrir þrýstingi frá vinum sem vilja stuðning þinn í ákveðnu máli. Vertu eins hlutlaus og þú getur.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Það er ekki víst að ástandið sé eins og þér virðist það vera vegna þess að eitthvað er hulið og sannleikurinn kemur ekki í ljós fyrr en síðar.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Nú er mikilvægt að þú getir slakað vel á. Með því móti er miklu auðveldara að fást við það sem þú þarft að gera.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur ákvörðun í máli sem varðar fjölskylduna. Heimilislífið á hug þinn allan um þessar mundir.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú þarft að endurgjalda gamlan greiða sem vinur þinn á inni hjá þér. Þú lærir af reynslu einhvers annars í dag.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Fréttir sem þú færð koma róti á hug þinn. Vinur þinn reynist þér betri en enginn við að leysa úr vanda sem upp kemur í kvöld.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Gefðu gaum að fjölskyldu- og heimilislífinu. Þar er þín virkilega þörf um þessar mundir.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ættir að sýna meiri þolinmæði, sérstaklega unga fólkinu í kringum þig. Þú þarft að sýna útsjónarsemi við úrlausn erfiðs verkefnis.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Fjárhagsstaðan batnar til muna á næstunni ef þú heldur rétt á spilunum. Gefðu þér tíma til að sinna útivist og heilsurækt.