Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Rómantíkin blómstrar á næstu dögum en þú skalt vera á verði og gæta þess að særa ekki tilfinningar annarra.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Eitthvað óvænt kemur upp á og þú gætir þurft að breyta áætlunum þínum á síðustu stundu. Haltu ró þinni.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þér finnst kunningi þinn vera skilningslaus og tekur það frekar nærri þér. Þú mátt ekki vera svona viðkvæmur -- það er erfiðast fyrir þig sjálfan.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Einhver breyting verður á sambandi þínu við ákveðna manneskju. Haltu gagnrýni fyrir sjálfan þig þar sem fólk gæti tekið hana óþarflega nærri sér.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Vinur þinn leitar ráða hjá þér og segir þér jafnvel leyndarmál. Mikilvægt er að þú bregðist ekki trausti hans þar sem málið er mjög viðkvæmt fyrir hann.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú ert algjörlega upptekinn af einhverju einu máli og sérð ekkert annað. Farðu varlega í að gefa yfirlýsingar og það skiptir einnig máli hvernig þú kemur þeim frá þér.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Vinir þínir eru þér ofarlega í huga í dag og þú nærð góðu sambandi við fólkið í kringum þig.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú færð fréttir sem koma róti á hug þinn. Ekki er þó ástæða til að hafa áhyggjur. Ástin blómstrar hjá þér.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Gefðu þér góðan tíma til að hugsa um og skipuleggja verkefni sem þú ert að byrja á áður en þú hefst handa.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú færð endurgoldinn greiða sem þú gerðir kunningja þínum fyrir löngu og varst búinn að gleyma. Ástvinir eiga saman rómantískt kvöld.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Einhver sýnir þér viðmót sem þú áttir ekki von á. Þó að þú sért ekki sáttur við það skaltu ekki láta það koma þér úr jafnvægi.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Það er einhver spenna í loftinu fyrri hluta dagsins. Þú ættir ekki að skipta þér af því heldur sinna eigin málum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þér hættir til að vera þrjóskur en stundum er betra að láta af ákveðninni í dálitla stund.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Blandaðu þér ekki í deilur annarra og farðu varlega í að taka afstöðu ef eftir því verður leitað. Heimilislífið gengur mjög vel.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Karlar í þessu stjörnumerki ættu að hugsa sinn gang varðandi konurnar og konurnar hugsa sig enn meira um varðandi karlpeninginn.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þér gengur vel að vinna úr því sem þú hefur og ert fljótur að vinna verkefni sem þú tekur þér fyrir hendur.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Dagurinn byrjar vel og þú ert bjartsýnni en þú hefur verið lengi. Ekki láta neitt uppi um áætlanir þínar fyrr en þær eru komnar í höfn.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Fjármálin standa vel og það er góður tími núna til að gera kaup sem staðið hafa til lengi. Vertu þó skynsamur í sambandi við samninga.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Gamlir vinir kætast saman í dag og fréttir berast af gömlum vini. Þú sinnir trúarþörf þinni meira en þú hefur gert undanfarið.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú ættir að huga að persónulegum málum þínum í dag og lofa öðrum að bjarga sér á eigin spýtur.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Ástin verður afar áberandi í lífi þínu á næstunni. Þú þarft að ætla henni tíma og leyfa henni að þróast í rólegheitum en ekki ana að neinum ákvörðunum.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Hætta er á einhverjum ágreiningi milli ástvina en hann ætti að vera fremur auðleystur ef viljinn er fyrir hendi til að leysa hann.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér hættir til að velta þér óþarflega mikið upp úr lítilfjörlegum vandamálum og hafa af þeim meiri áhyggjur en vert er. Gerðu þér glaðan dag.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Lífið virðist brosa við þér þessa dagana og um að gera að njóta þess. Viðskiptin ganga afar vel og nú er rétti tíminn til að fjárfesta.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Ímyndunarafl þitt er frjótt í dag og þú ættir að nýta þér það sem best. Þú þarft að treysta á sjálfan þig því samvinna gengur ekki vel.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Ekki vera of viss um að þú hafir á réttu að standa í ágreiningsmáli. Þú værir maður að meiri ef þú viðurkenndir ósigur þinn strax og þú uppgötvar hann.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Dagurinn verður fremur viðburðarsnauður en þú hittir þó verulega áhugaverða persónu sem gefur þér nýjar hugmyndir.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ekki vera með látalæti við þína nánustu, þeir sjá í gegnum þig. Þú ættir frekar að leita eftir aðstoð þeirra og stuðningi.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þetta verður góður dagur á vettvangi félagsmála. Þeir sem hafa gengið í gegnum erfiðleika í ástarlífinu fara nú að sjá bjartari tíð á því sviði.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú nýtur þín einstaklega vel ef þú ert á ferðalagi eða að skipuleggja ferðalag, þó gætu minniháttar vandkvæði skotið upp kollinum.