Íslenski boltinn

„Frammistaðan gefur okkur byr undir báða vængi hvað framhaldið varðar“
Fylkir tapaði naumlega gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu, lokatölur 2-1 í kvöld. Fylkismenn voru heilt yfir betra liðið og sköpuðu sér mörk marktækifæri sem þeim tókst ekki að nýta.

Sjáðu þegar Björn Zoëga kom úr stúkunni og kippti Ólafi Kristófer aftur í lið
Ólafur Kristófer Helgason varð fyrir því óláni að fara úr lið á fingri þegar Fylkir beið lægri hlut gegn Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld, lokatölur 2-1 Val í vil. Sem betur fyrir Ólaf Kristófer var Björn Zoëga, forstjóri Karólínska-sjúkrahússins í Svíþjóð, á staðnum.

Afturelding áfram taplaust | Leiknir kom til baka
Fimm leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Topplið Aftureldingar vann 1-0 sigur á Þrótti Reykjavík. Þá kom Leiknir Reykjavík til baka gegn Ægi frá Þorlákshöfn.

Umfjöllun, viðtöl, myndir og myndbönd: Valur - Fylkir 2-1 | Valsmenn með nauman sigur á Hlíðarenda
Valur hreppti naumlega sigur gegn Fylki í 14. umferð Bestu deildarinnar. Eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir tókst Fylki að minnka muninn á lokamínútunum og gera úr þessu ansi spennandi leik, lokatölur 2-1 á Hlíðarenda.

Skotfóturinn verið í kælingu
Damir Muminovic var hetja Breiðabliks í leik liðsins við Shamrock Rovers í Dyflinni í gær. Glæsimark hans eykur á tilkall hans til að taka fleiri aukspyrnur.

Hafa skorað sex sinnum hjá Fylki í tveimur leikjum í röð
Það eru meira en þrjú þúsund dagar síðan Fylkismenn unnu síðast Valsmenn í deild þeirra bestu en liðin mætast á Hlíðarenda í kvöld.

„Verst bara að Gylfi sé ekki kominn“
Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, segir spennu á meðal leikmanna liðsins fyrir leik þess við Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Verst sé að Gylfi Þór Sigurðsson sé ekki á meðal andstæðinga kvöldsins.

„Auðvitað er áhugi á mér“
„Ég býst við erfiðum leik. Þeir hafa gefið Víking og Breiðablik hörku leik. Fyrstu sextíu mínúturnar voru þeir mjög flottir og voru nálægt því að gera jafntefli. Þeir eru með gæði innan síns liðs og eru þéttir til baka. Rúnar kann alveg að búa til lið,“ segir Adam Pálsson, sóknarmaður Vals, um leik liðsins gegn Fylki í Bestu deild karla í kvöld.

Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Bestu deild karla
Valur tekur á móti nýliðum Fylkis í eina leik dagsins í Bestu deild karla. Umferðin klárast svo á fimmtudag og sunnudag. Valur er í öðru sæti á eftir Víkingum sem eru með níu stigum meira. Fylkir er í næst neðsta sæti. Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið.

„Ég hef enga trú á því að þeir hafi verið að vanmeta okkur“
Breiðablik sigraði Shamrock Rovers með einu marki gegn engu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og halda heim á Kópavogsvöll með forystuna fyrir seinni leikinn í einvíginu. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum ánægður með þennan sterka útisigur. Hann segir góða byrjun á leiknum hafa lagt grunninn að sigrinum í kvöld.

Segir mikla viðurkenningu að vera kallaða í íslenska landsliðið
„Við eigum alveg skilið að vera hérna,“ segir Sunneva Hrönn, leikmaður FH. Arna Eiríksdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir voru kallaðar inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Finnlandi og Austuríki í tveimur vináttulandsleikjum á næstu dögum.

Hægt að fá sér tattú og horfa á toppliðið í leiðinni
Eins og vanalega er hægt að slá tvær flugur í einu höggi þegar þú mætir á fótboltaleiki með einu heitasta fótboltaliði landsins.

Saga reyndi að taka Audda á taugum í Besta þættinum: „Þessi hæna getur ekki rassgat“
Saga Garðarsdóttir og Auðunn Blöndal mættust í Besta þættinum þar sem lið KR og Tindastóls áttust við. Í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs.

Bestu mörkin: Missa tvo leikmenn á HM en fá samt ekki frestun á leikjum sínum
Þór/KA þurfti ekki aðeins að spila án fyrirliða síns í Bestu deildinni í gær heldur var liðið einnig búið að missa tvær landsliðskonur á HM kvenna.

Bestu mörkin: Þjálfarinn upptekinn á Coldplay tónleikum í Kaupmannahöfn
Konráð Freyr Sigurðsson stýrði liði Tindastóls í mikilvægum leik í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær en aðalþjálfari liðsins, Halldór Jón Sigurðsson, var hvergi sjáanlegur á hliðarlínunni.

James vill hjálpa Hermanni og ÍBV: „Vonandi get ég aðstoðað“
Fyrrum enski landsliðsmarkvörðurinn David James var heiðursgestur á leik ÍBV gegn Fram í Bestu deild karla í fótbolta á laugardag, áratug eftir veru hans í Vestmannaeyjum. Hann segir engan í Eyjunni hafa breyst og þá eigi hann til að vinna fyrir félaga sinn Hermann Hreiðarsson frá Bretlandseyjum.

Markasúpa og dramatík í Keflavík, Alex Freyr hetja ÍBV og öruggt hjá Blikum
Topplið Víkings gerði 3-3 jafntefli við Keflavík á laugardag á meðan Alex Freyr Hilmarsson tryggði ÍBV 1-0 sigur á Fram. Íslandsmeistarar Breiðabliks fóru svo illa með nýliða Fylkis. Mörkin úr leikjunum þremur má sjá hér að neðan.

„Þessi deild er bara klikkuð“
Todor Hristov, þjálfari ÍBV, var ánægður með sigur síns liðs á Þór/KA á Akureyri í Bestu deild kvenna í dag.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Tindastóll 1-0 | Spútnik liðið aftur á sigurbraut
FH hafði tapað þremur leikjum í röð í deild og bikar þegar Tindastóll mætti í Kaplakrika í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Leiknum lauk með 1-0 sigri heimaliðsins og spútnik lið deildarinnar því komið á sigurbraut. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - ÍBV 0-2 | Óvæntur sigur Eyjakvenna
ÍBV vann mikilvægan 2-0 sigur á Þór/KA norður á Akureyri í Bestu deild kvenna fyrr í dag. Lyftu Eyjakonur sér upp úr fallsæti með sigrinum. Olga Sevcova og Holly Taylor Oneill skoruðu mörk ÍBV í síðari hálfleik og þar við sat.

Alltaf erfitt á Selfossi
„Þetta eru alltaf mjög erfiðir leikir, sérstaklega á Selfossi. Þetta verður bara hörkuleikur,“ segir Lillý Rut Hlynsdóttir, leikmaður Vals, um verkefni dagsins. Valur og Selfoss mætast í Bestu deild kvenna klukkan 14:00.

Alex Freyr ósáttur hjá Blikum og vill burt
Vefmiðillinn 433.is greindi frá því í gær að Alex Freyr Elísson, leikmaður Breiðabliks í Bestu deildinni, væri ósáttur með spiltíma sinn í Kópavoginum og vildi komast á lán frá félaginu sem fyrst.

„Ef góður leikmaður vill koma og reyna sig með Keflavík er bara að hafa samband“
„Bara svekkelsi, áttum að vinna þennan leik,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 3-3 jafntefli sinna manna gegn toppliði Víkings.

„Mjög vond byrjun á leiknum hjá okkur“
„Þetta var mjög vond byrjun á leiknum hjá okkur, það er svona fyrsta sem fer í gegnum hugann á mér núna eftir leik,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-0 tap gegn Þrótti Reykjavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þróttur 0-2 | Gestirnir sóttu þrjú stig í Garðabæ
Þróttur Reykjavík vann góðan 2-0 útisigur á Stjörnunni í 12. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu. Mörkin skoruðu Katla Tryggvadóttir og Sierra Marie Lelii. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Víkingur 3-3 | Hansen bjargaði stigi fyrir toppliðið
Botnlið Keflavíkur tók á móti toppliði Víkings í 14. umferð Bestu deildar karla nú í kvöld. Það var ekki að sjá að þessi lið væru á sitthvorum enda töflunnar í dag og eftir afar dramatískar lokamínútur varð niðurstaðan 3-3 jafntefli.

„Það verður gaman í kvöld, það er öruggt mál“
„Vorum frábærir í dag. Töluðum um það í vikunni að við vildum gefa Eyjunni og fólkinu á Eyjunni sem er búið að berjast fyrir tilveru þessa fallegu Eyju, sigur. Endurspegluðum vonandi þennan tíðaranda,“ sagði sigurreifur Hermann Hreiðarsson eftir 1-0 sigur ÍBV á Fram í Bestu deild karla.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 1-0 Fram | Alex Freyr tryggði ÍBV dýrmætan sigur
ÍBV vann Fram 1-0 í 14. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Keflavík 2-0 | Katrín sökkti Keflavík
Breiðablik bar sigurorð á Keflavík í 12. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Leikurinn endaði 2-0 og skoraði Katrín Ásbjörnsdóttir bæði mörkin í síðari hálfleik.

„Verðum að fara nýta færin betur“
Jonathan Glenn, þjálfari Keflavíkur, þurfti að sætta sig við 2-0 tap á móti toppliði Breiðabliks í tólftu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Leikurinn var markalaus í hálfleik og var Jonathan sáttur með frammistöðuna framan af.