Íslenski boltinn

Upp­gjörið: FH - Þór Ak. 1-1| Úr­slit sem gera lítið fyrir bæði lið

FH og Þór skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í mikilvægum leik í botn­baráttu Bestu deildarinnar í Kapla­krika í kvöld. Úlfur Ágúst Björns­son kom FH yfir í fyrri hálf­leik en Einar Freyr Halldórs­son jafnaði metin úr víta­spyrnu í þeim síðari. Jafn­teflið breytir litlu fyrir liðin í töflunni þar sem FH situr áfram á botni deildarinnar með sex stig á meðan Þór er í 11. sæti með sjö stig.

Íslenski boltinn

Sumarmótin: TM mótið í Vest­manna­eyjum

Veðrið lék við gesti TM mótsins í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Mótið í ár var með þeim stærri sem haldið hefur verið. Þáttur um mótið verður sýndur á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi og hægt er að sjá hann í heild sinni hér neðar í fréttinni.

Íslenski boltinn

Gylfi gerði nýjan samning við Víking

Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti leikmaður fótboltalandsliðsins frá upphafi, hefur skrifað undir samning þess efnis að spila áfram með Víkingi út næsta ár. Þá hefur bakvörðurinn knái Karl Friðleifur Gunnarsson framlengt samning sinn við Víking út árið 2029.

Íslenski boltinn