Innlent
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana á Edition-hótelinu í Reykjavík í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, sendi nýkaledónskum miðli yfirlýsingu vegna umfjöllunar hans um málið. Innlent 5.6.2026 15:38
Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Tímasetning er ekki enn ljós en kappinn stefnir á að láta til skarar skríða um leið og veður leyfir eftir sjómannadag. Tilgangurinn er að vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna á Austurlandi og um land allt. Innlent 5.6.2026 15:29
Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Unnið er að því að koma skiptiskjólum fyrir á þremur stöðum í borginni. Skiptiskjól er vettvangur fyrir íbúa til að skiptast á nytjahlutum og styrkja hringrásarhagkerfið um leið. Innlent 5.6.2026 15:00
Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Hurð skall nærri hælum á Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur gær þegar bíl var ekið í veg fyrir gangandi vegfarendur á leið yfir götuna við Hofsvallagötu. Lögregla biðlar til ökumanna um að sýna gangandi vegfarendum virðingu og hlýta rauðum ljósum. Innlent 5.6.2026 14:55
Rafbyssum aldrei beitt oftar Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku. Innlent 5.6.2026 14:49
Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Ný bæjarstjórn í Fjallabyggð fundaði í fyrsta sinn í gær. S-listi Jafnaðarfólks og H-listi Fyrir heildina í Fjallabyggð mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn. Innlent 5.6.2026 14:19
Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna Haukur Arnþórsson stjórnmálafræðingur segir almenning reiðan vegna sjálftöku á opinberu fé. Hann telur að Alþingi hljóti að verða að koma á réttlátari ramma um opinber störf. Innlent 5.6.2026 13:35
„Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ „Beinskeytt var yfirlýsingin en við erum bara komin þangað. Það er bara auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur. Innlent 5.6.2026 13:04
Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að karlmaður á þrítugsaldri hefði gerst sekur um nauðgun með því að hafa samræði við þrettán ára stúlku. Í héraði var hann sýknaður á þeim forsendum að stúlkan hefði veitt samþykki. Talskona Stígamóta gagnrýnir að barnið hafi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt fyrr en rúmum fjórum árum eftir nauðgunina. Innlent 5.6.2026 13:02
Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Karlmaður á fimmtugsaldri var kærður í gær fyrir að löðrunga hund sinn rétt fyrir ellefuleytið í gærkvöldi, samkvæmt lögreglu í samtali við fréttastofu. Innlent 5.6.2026 12:55
Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa. Innlent 5.6.2026 12:01
Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs Í hádegisfréttum verður rætt við formann samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu sem segir að Kvika banki sendi starfsfólki skýr skilaboð en félagið greiddi milljarða í arð sama dag og ellefu starfsmönnum var sagt upp. Innlent 5.6.2026 11:52
„Erum við að fara að deyja?“ Íslensk fjölskylda var að kaupa í matinn í sólstrandarferðalagi sínu í Constanța á Svartahafsströnd Rúmeníu þegar stærðarinnar sprenging reið yfir. Það reyndist vera sjávardróni frá vígstöðvunum skammt undan. Innlent 5.6.2026 11:47
Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur sakar stjórnvöld um að beita Þórkötlu vísvitandi fyrir sig til að tefja endurreisn Grindavíkur og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim. Innlent 5.6.2026 10:03
Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Reykvíkingar vöknuðu með heldur óvenjulegt fley við ankeri fyrir utan Reykjavíkurhöfn í morgun. Þarna er á ferðinni ný lúxussnekkja frá Hollandi sem ber nafnið Emotional. Innlent 5.6.2026 09:19
Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lætur að öllum líkindum af þingmennsku á mánudag sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann tók við sem bæjarstjóri í Reykjanesbæ í vikunni en hefur setið á þingi frá árinu 2013. Innlent 5.6.2026 09:18
Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur verður í þjónustuheimsókn við Ísland í dag. Varðskipið Þór mun fylgja kafbátnum við Reykjanes og munu þar fara fram áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn, sem ber nafnið USS Oregon. Innlent 5.6.2026 08:49
Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk. Innlent 5.6.2026 08:33
Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu var kærður í gærkvöldi eða nótt fyrir að hafa „misþyrmt“ gæludýrinu sínu, eins og það er orðað í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni næturinnar. Innlent 5.6.2026 06:19
Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Hilmar Gunnarsson hefur tekið við sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu nýjan meirihluta í sveitarfélaginu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar en Hilmar er oddviti Sjálfstæðismanna. Innlent 4.6.2026 23:26
Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Framleiðsla á fyrsta raðsmíðaða íslenska bílnum er að hefjast. Honum er lýst sem blöndu smárútu og ofurjeppa. Von er á fyrstu eintökunum eftir tólf mánuði. Innlent 4.6.2026 22:10
Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Rödd unga fólksins hefur upplýst um fjárdráttarmál innan flokksins sem upp kom snemma á síðasta ári. Grunur hafi þá vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið til sín töluverða fjármuni og málið kært til lögreglu. Rödd unga fólksins hefur átt fulltrúa í sveitarstjórn Grindavíkur síðastliðin tvö kjörtímabil. Innlent 4.6.2026 21:40
Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Lögreglan handtók ökumann miðsvæðis í Reykjavík grunaðan um að keyra undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn reyndi að skipta um sæti við mann í farþegasætinu í miðjum akstri eftir að lögregla varð þeirra vör. Innlent 4.6.2026 18:38
Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Fundur samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefst klukkan sjö hjá ríkissáttasemjara. Við verðum í beinni frá Karphúsinu í kvöldfréttum og förum yfir stöðuna í harðri deilu. Innlent 4.6.2026 18:05
Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, Sigrún Björk Jakobsdóttir, telur Reykjavíkurflugvöll hæfan til að taka á móti Airbus-þotum og segir burðarþol flugvallarins nægilegt til að taka við þeim. Hún segir það mat Isavia innanlands að ekkert í regluverkinu eigi að koma í veg fyrir notkun Airbus-véla Icelandair á Reykjavíkurflugvelli til vara. Innlent 4.6.2026 17:17
Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Lögreglan í Hafnarfirði brást við tilkynningu um meðvitundarlausa unglingsstúlku fyrir utan verslunarmiðstöðina Fjörð á laugardagskvöld. Málið er rannsakað sem líkamsárás. Innlent 4.6.2026 16:55
Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Kröfum tónlistarkonunnar Bríetar Ísis Elfar á hendur þrotabúi Roks records, upp á tæpar átta milljónir króna, hefur verið vísað frá dómi vegna mikilla annmarka á kröfugerð. Pálmi Ragnar Ásgeirsson var eini eigandi Roks records og fór fram á frávísun málsins. Þrotabúið sjálft gerði ekki kröfu um frávísun en tók þó undir málatilbúnað Pálma Ragnars. Öðru máli þeirra á milli var þó ekki vísað frá. Innlent 4.6.2026 16:41
Mótmæli við Austurvöll Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. Innlent 4.6.2026 16:03
Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að stóri flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða liggi í því hvernig tengikostnaður nýrra virkjana er reiknaður. Hann boðar frumvarp næsta haust sem eigi að greiða leið fyrir Hvalárvirkjun, Austurgilsvirkjun og mögulega Skúfnavatnavirkjun. Innlent 4.6.2026 16:01
Hátt á þriðju milljón á mánuði Berglind Ósk Guðmundsdóttir nýr bæjarstjóri hefur gert ráðningarsamning við Akureyrarbæ. Föst dagvinnulaun eru rúmlega 1,8 milljónir króna en við það bætist 45% stjórnendaálag. Alls nema launin rúmum 2,6 milljónum króna. Innlent 4.6.2026 15:32