Innlent

Sau­tján voru hand­teknir í að­gerðum lög­reglu

Sautján manns voru handteknir í samhæfðum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 22. september. Þetta staðfesti lögreglan í samtali við fréttastofu. Sex þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og eru allir í einangrun. Ellefu manns voru handteknir til viðbótar við sexmenningana, allir sama dag. Lögregla gat ekki að svo stöddu sagt til um stöðu þeirra ellefu í málinu.

Innlent

Inga spurð út í Guð­mund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“

Allt ætlaði um koll að keyra í þinginu þegar Inga Sæland var spurð út í aðdraganda þess að Guðmundur Ingi Kristinsson sagði af sér embætti mennta- og barnamálaráðherra. „Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi,“ sagði Inga meðal annars við formann Sjálfstæðisflokksins.

Innlent

Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast

Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar á milli ára en tilkynningum um ágreining á milli skyldra eða tengdra hefur fjölgað milli ára. Á tímabilinu var tilkynnt um 236 tilvik þar sem þolandi og gerandi tengdust fjölskylduböndum. Þar vóg þyngst ofbeldi foreldris í garð barns, 103 tilvik, og ofbeldi barns í garð foreldris, 102 tilvik.

Innlent

350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa

Verði drög um náttúrupassa að lögum missir þjóðgarðurinn á Þingvöllum bílastæðagjöldin sem hingað til hafa runnið beint til reksturs hans. Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður vill að fjárveitingar til garðsins taki mið af fjölda ferðamanna. Hann segist heldur ekki vita hvort kannað hafi verið hvernig passinn gæti haft áhrif á komur að Gullna hringnum.

Innlent

Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti

Móðir lagði íslenska ríkið í skaðabótamáli á þeim grundvelli að EES-reglur hafi ekki verið innleiddar með réttum hætti. Sérfræðingur í Evrópurétti segir að fleiri gætu leitað réttar síns enda skýrt fordæmi nú fyrirliggjandi. Utanríkisráðherra segir dapurlegt að konan hafi neyðst til að berjast í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti sínum. Ekki hefði verið um vandamál að ræða ef bókun 35 hefði verið innleidd með réttum hætti.

Innlent

Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“

Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi ráðherra opnar sig um samskipti sín við Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur þáverandi aðstoðarmann sinn og eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar eftirmanns hans í ráðherraembætti frá því í janúar þar sem honum var tjáð að tveir kostir væru í stöðinni, uppsögn eða stríð. Guðmundur segir svíða mest að fjölskylda hans hafi verið dregin inn í málið.

Innlent

Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn

Móðir lagði íslenska ríkið í skaðabótamáli á þeim grundvelli að EES-reglur hafi ekki verið innleiddar með réttum hætti. Rætt verður við utanríkisráðherra um málið í fréttatíamnum sem og sérfræðing í Evrópurétti sem segir að fleiri gætu leitað réttar síns vegna málsins.

Innlent

Þakplötur og trampólín á flugi

Björgunarsveitir sinna nú útkalli á Stokkseyri þar sem þakplötur eru að fjúka af bóndabæ. Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, er óttast að þakið kunni að fara af í heild sinni. Björgunarsveitir frá Eyrarbakka og Árborg eru á staðnum.

Innlent

Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg

Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð í smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes og lagningu Búðafossvegar. Tilboð Borgarverks hljóðar upp á liðlega 2,5 milljarða króna og var 87% af kostnaðaráætlun, sem var upp á rétt rúma 2,9 milljarða króna.

Innlent

Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna

Vopnaútköllum sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur fjölgað mikið og álag aukist á undanförnum árum en mönnun sveitarinnar hefur lítið sem ekkert breyst. Auka þarf fjárveitingar til sérsveitarinnar en í fyrra voru einungis 46 sérsveitarmenn starfandi, þótt heimild væri fyrir tíu fleiri. Fjárveitingar skorti til að fylla stöðugildin.

Innlent

Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar

Á Landspítala er nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð er gert ráð fyrir því að færri þunganir verði flokkaðar í áhættuhópi. Á sama tíma verður tólf vikna skoðun gerð hluti af almennri mæðravernd og gerð gjaldfrjáls.

Innlent

Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði

Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 

Innlent

„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“

Tilkynnt var um niðurstöður nýs endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík á þriðjudag. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýjan tón hafi verið í samtali við stjórnvöld síðustu vikur og að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra.

Innlent

Segja upp tveimur sér­fræðingum

Tveimur sérfræðingum í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið sagt upp störfum vegna aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar. Þetta gerist í framhaldi af uppsögnum í dómsmálaráðuneytinu í síðustu viku.

Innlent

Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri

Efnalekinn í fiskvinnslu Hnýfils á Óseyri á Akureyri orsakaðist af því að stíflueyðir sem hellt var í niðurfall í morgun blandaðist við þrifaefni sem notað var á gólfin síðdegis með þeim afleiðingum að klórgas myndaðist. Slökkvilið segir störf hafa gengið vel á vettvangi.

Innlent

Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu

Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.

Innlent

Þúsundir barna bíða mánuðum saman

Yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur um biðlista sýna að staðan hefur víða versnað. Þá fjölgar börnum sem eru viðriðin ofbeldis- og kynferðisbrotamál.

Innlent

„Að mínu mati fyrsta al­vöru haustlægðin“

Siggi stormur segir að nú fari hver að verða síðastur til þess að binda niður trampolínið í garðinum en að hans sögn er von á fyrstu alvöru haustlægðinni á morgun. Gular veðurviðvaranir verða í gildi á morgun á Suðurlandi, Vestfjörðum, Austfjörðum, Miðhálendi og á Suðausturlandi.

Innlent