Innlent
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 334 ›
Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Afkoma samstæðu Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3,4 milljarða króna í fyrra samanborið við sex milljarða króna hagnað árið 2022. Afkoma A-hluta batnar þó um tæplega ellefu milljarða á milli ára. Innlent 2.5.2024 14:47
Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli. Um 80% félagsmanna FFR greiddu atkvæði með aðgerðunum. Innlent 2.5.2024 14:29
Útimarkaðurinn í Mosó hættir Ákveðið hefur verið að útimarkaði Mosskóga í Mosfellsdal, þar sem hægt hefur verið að kaupa varning frá ræktendum og framleiðendum í nágrenninu, verði hætt nú í sumar. Innlent 2.5.2024 14:20
Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Atli Þór Fanndal, sem hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, hefur verið ráðinn samskiptastjóri Pírata. „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn,“ segir hann. Innlent 2.5.2024 13:33
Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Rúmlega ellefu þúsund hafa leitað til Stígamóta frá upphafi starfsemi þeirra fyrir 34 árum. Körlum sem leituðu til Stígamóta fjölgaði milli ára en biðlisti eftir fyrsta viðtali styttist í fyrsta sinn í þrjú ár. Talskona Stígamóta segir mikið ánægjuefni. Innlent 2.5.2024 13:21
Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 2.5.2024 13:18
Áfram landris og óvissa um framhaldið Enn mælist landris við Svartsengi og heldur þrýstingur því áfram að byggjast upp í kvikuhólfinu. Hraunflæði úr gígnum sem gýs úr hefur farið minnkandi síðustu daga, en skjálftavirkni á svæðinu aukist. Innlent 2.5.2024 12:39
Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Þingmaður Viðreisnar segir ekki nóg að gera rekstrarleyfi til fiskeldis tímabundin til þess að sátt skapist um frumvarp matvælaráðherra um lagareldi. Málið sé skýrt dæmi um að gera þurfi breytingar á stjórnarskrá. Innlent 2.5.2024 12:31
Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Viktor Traustason skilaði í morgun inn forsetaframboði sínu í annað sinn eftir að hafa fengið aukafrest til að safna meðmælum. Formaður Landskjörstjórnar segir verulega ágalla hafa verið á meðmælalistum Viktors í fyrstu atrennu. Það sé óvenjulegt að veittur sé frestur þegar ágallar eru meiriháttar, eins og í tilfelli Viktors. Innlent 2.5.2024 11:57
„Það er norskur sigur í dag“ Í dag klukkan eitt í dag fer Gunnar Örn Hauksson flugmaður til sýslumanns og gerir honum grein fyrir því að hann eigi ekki hundrað milljónir króna til að greiða tryggingu vegna lögbannskröfu á sjókví úti fyrir landi hans á Snæfjallaströnd. Innlent 2.5.2024 11:45
Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á málefnum Grindvíkinga en í morgun opnaði bakarí bæjarins og veitingastaður. Innlent 2.5.2024 11:35
Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2.5.2024 11:11
Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Friðrik Jónsson, sendifulltrúi og fyrrverandi formaður BHM, tekur við stöðu sendiherra Íslands í Póllandi þann 1. ágúst næstkomandi. Innlent 2.5.2024 11:10
Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var í Spjallinu hjá Frosta Logasyni og viðraði þar þá hugmynd sína að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta til árs fyrir unga fólkið. Innlent 2.5.2024 10:26
Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Íslenskur karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborg fyrir rúmum fimm vikum. Innlent 2.5.2024 09:42
Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Prófessor í stjórnmálafræði segir betra fyrir forsetaframbjóðendur að hafa allt uppi á borðum. Í litlu samfélagi séu margar furðusögur á sveimi og mikilvægt fyrir viðkomandi að fá tækifæri til að leiðrétta þær. Þá segir hún forseta í raun gefa upp frelsi sitt þegar hann er kjörinn, þar sem hann sé á sólarhringsvakt alla daga ársins. Innlent 2.5.2024 09:14
Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan átta í morgun eftir að eldur kom upp í ruslageymslu fjölbýlishúss í Hafnarfirði. Innlent 2.5.2024 08:20
Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Seinni umferð biskupskjörs hefst klukkan 12 í dag og stendur yfir til klukkan 12 þriðjudaginn 7. maí næstkomandi. Í kjöri eru Guðmundur Karl Brynjarsson og Guðrún Karls Helgudóttir. Innlent 2.5.2024 08:12
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1.5.2024 23:00
Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1.5.2024 22:01
„Það er hart sótt að okkar fólki“ Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur. Innlent 1.5.2024 21:01
Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Hópur stúdenta tók þátt í samstöðulautarferð fyrir Palestínu á túninu fyrir framan Háskóla Íslands seinni partinn í dag. Skipuleggjandi segir mikilvægt að hreyfingin fái leyfi fyrir viðburði af þessu tagi svo hægt sé að krefja skólann aðgerða sem snúa að samstöðu með Palestínu. Innlent 1.5.2024 18:12
Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði um stöðuna við Svartsengi. Innlent 1.5.2024 18:00
Úrskurðurinn felldur úr gildi Landskjörstjórn braut á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar þeir úrskurðuðu að meðmælalisti forsetaframbjóðandans Viktors Traustasonar væri ógildur. Úrskurðarnefnd kosningamála hefur því fellt úrskurðinn úr gildi. Innlent 1.5.2024 17:20
Vill hinn almenna launamann á þing Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist vilja hinn almenna launamann á þing. Hún segist telja það mikilvægt að framboðslistar flokksins endurspegli breyttan flokk. Innlent 1.5.2024 16:30
Sinueldur í Munaðarneslandi Sinueldur logar í Munaðarneslandi á Vesturlandi. Viðbragðsaðilum hefur tekist að ná tökum á brunanum en enn logar í einhverjum glæðum. Svæðið sem brann var ekki stórt en á mjög erfiðu svæði þar sem eldurinn átti upptök sín í birkiskógi. Innlent 1.5.2024 16:15
Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var harðorð í garð íslenskra stjórnvalda í ræðu hennar á útifundi á Ingólfstorgi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins í dag. Hún segir íslensk stjórnvöld haldin sjúkri undirgefni gagnvart Bandaríkjunum. Innlent 1.5.2024 15:27
Barn á Akureyri greindist með kíghósta Kíghósti hefur greinst í barni í Brekkuskóla á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu Landlæknis. Minnt er á mikilvægi bólusetninga gegn sjúkdómum sem kíghósta, en þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár. Innlent 1.5.2024 14:14
Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Eystri-Fellsfjara við Jökulsárlón er á lista yfir bestu strandir heims að mati ferðamálasérfræðinga. Þar er hún í fertugasta og fyrsta sæti af fimmtíu. Listinn er uppfærður á hverju ári og áður var Reynisfjara einnig á honum. Innlent 1.5.2024 13:24
Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Hatíðarhöld ASÍ í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí 2024 verða víða um land í dag. Á Ingólfstorgi verður samstöðufundur Alþýðusambands Íslands, með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Innlent 1.5.2024 13:01