
Innlent

Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga
Viðbragðsaðilum var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga um tvöleytið í dag.

Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar sótti hart að Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra í ræðustól þingsins í óundirbúnum fyrirspurnum nú fyrir stundu.

Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna
Verkstjóri á Bakkafirði hefur ýmislegt við framkomu sérsveitarmanna að athuga sem komu að handtöku pólsks karlmanns og kærustu hans í þorpinu í gær. Hann segir nokkra svarta sauði í samfélaginu gera það að verkum að fimm manna fjölskyldan ætlar að flytja úr bænum eftir fimm ára dvöl. Afskiptasemi og neikvæðni ráði ríkjum á Bakkafirði.

Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet
Aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls, sem hefur verið kennt við skemmtiferðaskip en líka verið kallað stóra fíkniefnamálið, mun fara fram í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur dagana 28. október til 6. nóvember.

Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem nýjan formann stjórnar Matvælasjóðs.

Faðirinn ekki lengur í einangrun
Sigurður Fannar Þórsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 21. október í Héraðsdómi Reykjaness í dag að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti ungrar stúlku.

Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“
Seðlabankinn hefur brugðist lögbundnu hlutverki sínu og vinnur gegn fólkinu í landinu, að mati formanns VR. Hann segir nauðsynlegt að verkalýðshreyfingin komist út úr kjarasamningum sem fyrst, „með góðu eða illu“.

Landris og kvikusöfnun heldur áfram
Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu.

Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata beindi spurningu til Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum; hvort hann sæi ekki eftir því að hafa ekki tryggt nægilegt fjármagn 2020 til þess að vinna að andlegri líðan. Sigurður Ingi sagði vandann meðal annars þann að skortur væri á sálfræðingum.

Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur
Tæpur fjórðungur af heildarkostnaði við forsetaframboð Baldurs Þórhallssonar kom úr hans eigin vasa. Kostnaðurinn nam tæpum 20,4 milljónum króna en framboðið endurgreiddi styrki sem fóru umfram lögbundið hámark.

Maðurinn fannst látinn
Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða.

Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku
Garðabæ var óheimilt að skerða NPA-þjónustu við ellefu ára stúlku á þeim forsendum að foreldrar hennar beri umönnunar- og forsjárskyldu sem slíkir. Faðir stúlkunnar og lögmaður fjölskyldunnar vona að sveitarfélög fari að lögum og málið verði fordæmisgefandi fyrir önnur fötluð börn og fjölskyldur þeirra.

Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir
Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir milli klukkan 13 og 16:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu
Í hádegisfréttum verður rætt við Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra sem sækist eftir formannsembættinu hjá VG.

Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir
Fjarðarheiði hefur verið lokað vegna umferðarteppu, en þar eru hálkublettir, éljagangur og nokkur vetrarfærð. Verkstjóri hjá Vegagerðinni segir þó að ekki ætti að taka langan tíma að opna heiðina aftur.

Bjarkey ekki undir feldi
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.

Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung
Þingkona Sjálfstæðisflokksins furðar sig á að konur sem segist tala fyrir kvenréttindum gagnrýni breytingar sem flokkur hennar gerði í leikskólamálum í Kópavogi. Hún sakar gagnrýnendur breytinganna um tvískinnung.

Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla
Einn var fluttur á slysadeild eftir að tvö rafmagnshlaupahjól skullu saman á göngubrúnni yfir Hringbraut við Njarðargötu í Reykjavík.

Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins
Hæstaréttarlögmaður segir samfélagið þurfa að spyrja sig áleitinna spurninga þegar kemur að kynferðisbrotamálum, og hvort líta eigi svo á að menn teljist sekir þar til annað kemur í ljós. Þar séu stórfyrirtæki á borð við Icelandair ekki undanskilin. Hann rifjar upp mál manns sem hann aðstoðaði, sem var vikið úr starfi hjá fyrirtækinu vegna ásakana, en mál hans síðan fellt niður.

Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti?
Staða heimilanna og fyrirtækja á haustmánuðum, útlitið í efnahagsmálum og efnd loforða í tengslum við kjarasamninga verða til umræðu í Pallborðinu í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 12.15.

Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í formannssæti Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Núverandi formaður hefur þegar tilkynnt að hann taki ekki slaginn við Svandísi.

Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir föðurnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Sigurði Fannari Þórssyni, sem grunaður er um að hafa ráðið tíu ára dóttur sinni bana á sunnudag í síðustu viku. Gæsluvarðhald yfir honum rennur að óbreyttu út í dag.

Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni
Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu.

Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu
Tveir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að nauðga sömu konu aðfaranótt laugardagsins 3. febrúar á þessu ári á heimili annars mannsins.

Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir
Fjárfestarnir Arnar Hauksson, Jón Einar Eyjólfsson og Pétur Árni Jónsson hafa sett fram kröfu á hendur Hjálmari Friðrikssyni blaðamanni Samstöðvarinnar. Þeir vilja að hann greiði þeim þrjár milljónir hverjum í miskabætur auk dráttarvaxta og málskostnaðar vegna ótilhlýðilegra skrifa. Gísli Tryggvason lögmaður Hjálmars krefst sýknu.

Slagsmál, líkamsárásir og ellefu í fangageymslum
Ellefu gista fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið en lögregla var meðal annars kölluð til vegna slagsmála á milli nokkurra einstaklinga.

Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu
Sveitarstjóri í Skagafirði telur ólíklegt að þörf verði á að skerða heitt vatn til notenda í vetur líkt og þurfti að gera í kuldaköstum síðasta vetur. Niðurstöður á nýrri borholu sýna að um öfluga borholu er að ræða.

Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka
Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir á morgun, þriðjudaginn 24. september. Í tilkynningu segir að málþinginu sé ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp.

Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi
Bell's palsy andlitslömun er nokkuð algeng á Íslandi og talið að árlegt nýgengi sé sennilega í kringum tuttugu tilfelli á hverja hundrað þúsund íbúa, að sögn háls-, nef- og eyrnalæknis. Það jafngildi því að í kringum einn greinist í viku hverri að meðaltali.

Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur
Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans.