Erlent
51 52 53 54 55 56 57 58 59 … 334 ›
Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Joe Biden Bandaríkjaforseti stöðvaði vopnasendingu til Ísraelsmanna í síðustu viku til að koma í veg fyrir að innihaldið, um 3.500 sprengjur, yrðu notaðar á Rafah. Erlent 8.5.2024 06:30
Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Að minnsta kosti einn lét lífið þegar hvirfilbylur reið yfir nærri borginni Tulsa í Oklahoma-ríki í Bandaríkjunum í dag. Minnst þrjátíu heimili eyðilögðust og íbúar í bænum Barnsdall, nærri Tulsa, var gert að rýma heimili sín. Erlent 7.5.2024 23:35
Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að gera þurfi þá kröfu á ráðamenn í Bandaríkjunum að þeir beiti ríkisstjórn Ísraels mun meiri þrýstingi um að leggja niður vopn. Það sé besta leiðin til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Erlent 7.5.2024 16:28
Skotárás við heimili Drake Öryggisvörður kanadíska rapparans Drake var skotinn við heimili stórstjörnunnar í Toronto í nótt. Áverkar öryggisvarðarins eru ekki taldir lífshættulegir og rapparinn sjálfur er sagður ómeiddur. Erlent 7.5.2024 15:08
Stormy Daniels í dómsal með Trump Stormy Daniels, fyrrverandi klámmyndaleikkona, mun bera vitni í réttarhöldunum gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York í dag. Búist er við því að hún muni segja kviðdómendum frá því þegar Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, greiddi henni 130 þúsund dali í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 7.5.2024 14:16
Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Ráðamenn í Úkraínu segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg um að ráða Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu, og aðra háttsetta embættismenn af dögum. Ráðabruggið er sagt eiga rætur í Rússlandi og þá sérstaklega hjá rússnesku leyniþjónustunni FSB. Erlent 7.5.2024 12:48
Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Bandarísku lögregluna grunar að sá sem sendi falska tilkynningu um morð á heimili vitnis í sakamáli á hendur Donald Trump hafi með henni reynt að siga vopnuðum sérsveitarmönnum á vitnið. Tilkynningin barst daginn sem vitnið kom fyrir dóm í New York. Erlent 7.5.2024 12:06
Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Starfsmenn öryggisstofnana Póllands fundu hlerunarbúnað í herbergi þar sem pólskir ráðherrar áttu að funda í dag. Búnaðurinn fannst við hefðbundna leit í aðdraganda fundarins en Pólverjar hafa ekki sagt hvort þeir telji sig vita hverjir komu honum fyrir. Erlent 7.5.2024 11:29
Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Fimmta kjörtímabil Vladimírs Pútín í embætti forseta Rússlands hefst í dag. Hann stendur frammi fyrir sex árum í embætti til viðbótar, hið minnsta, og hafa ítök hans í Rússlandi líklega aldrei verið meiri. Erlent 7.5.2024 10:41
Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Áströlsk kona sem er ákærð fyrir að valda dauða þriggja manna með því að gefa þeim eitraða sveppi lýsti yfir sakleysi sínu þegar málið kom fyrir dómara í dag. Hún heldur því fram að hún hafi ekki eitrað vísvitandi fyrir fólkinu. Erlent 7.5.2024 08:59
Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Ríkisstjórn Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, hefur séð sig neydda til að útskýra það á samfélagsmiðlum hvers vegna það verður sífellt dýrara að kaupa sér kebab. Erlent 7.5.2024 08:41
Geimskoti Starliner var frestað í nótt Fyrirhuguðu geimskoti Starliner geimfarsins frá Boeing var frestað í nótt, tveimur tímum fyrir flugtak frá Canaveral höfða í Flórída. Erlent 7.5.2024 07:23
Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Aðgerðasinnar í Skotlandi mótmæla nú harðlega ákvörðun yfirvalda um að heimila fyrirtækjum í laxeldi að hætta að merkja vörur sínar sem „eldislax“. Erlent 7.5.2024 07:14
Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Ísraelsher stendur nú í aðgerðum í Rafah og hefur tekið yfir landamærastöðina í borginni, sem aðskilur Egyptaland og Gasa. Landamærin virðast vera lokuð eins og er. Erlent 7.5.2024 06:40
Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ísraelsher hóf loftárásir á Rafah-borg á Gasa stuttu eftir að í ljós kom að Ísraelar kæmu ekki til með að samþykkja þá vopnahléstillögu sem Hamas-samtökin samþykktu fyrr í dag. Erlent 6.5.2024 23:26
Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í. Erlent 6.5.2024 23:09
Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Starfsmenn Boeing og Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), ætla í nótt að skjóta geimförum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Þeir verða ferjaðir til geimstöðvarinnar um borð í CST-100 Starliner-geimfari og er þetta fyrsta mannaða geimferð geimfarsins, eftir langt og erfitt þróunarferli. Erlent 6.5.2024 23:02
Hamas samþykkir vopnahléstillögu Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt. Erlent 6.5.2024 16:55
Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders ætlar að bjóða sig fram aftur í kosningunum í nóvember. Sanders, sem er 82 ára gamall, hefur þegar verið annar tveggja öldungadeildarþingmanna Vermont-ríkis í þrjú kjörtímabil, eða átján ár. Erlent 6.5.2024 15:56
Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sektaður enn einu sinni fyrir að brjóta gegn þagnarskyldu sem hann hefur verið beittu vegna réttarhalda yfir honum í New York. Juan M. Merchan, dómarinn í málinu, hótaði enn einu sinni að fangelsa Trump ef hann léti ekki af ummælum sínum. Erlent 6.5.2024 15:02
Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í morgun að halda ætti heræfingar með svokölluð taktísk kjarnorkuvopn ríkisins. Æfingar þessar eiga að vera viðbrögð við ummælum vestrænna leiðtoga um innrás Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega orð Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ekki ætti að útiloka það að senda hermenn til Úkraínu. Erlent 6.5.2024 11:44
Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband sem sýna á vel heppnaða drónaárás á hraðbát rússneska hersins undan ströndum Krímskaga í nótt. Sveit sem kallast „Group 13“ notaði Magura V5 dróna til að sökkva bátnum á Úskaflóa. Erlent 6.5.2024 09:54
Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins John Swinney verður að öllum líkindum næsti formaður Skoska þjóðarflokksins eftir að mótframbjóðandi hans hætti við framboð á síðustu stundu. Þá verður hann einnig líklegast næsti fyrsti ráðherra Skotlands. Erlent 6.5.2024 09:53
Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Donald Trump, forsetaefni Repúblikanaflokksins, sakaði Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stýra „Gestapo-ríkisstjórn“ á lokuðum fundi með bakhjörlum sínum. Hann beindi einnig spjótum sínum að saksóknurum sem sækja sakamál gegn honum. Erlent 6.5.2024 09:07
Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Um það bil 70 prósent 705 þingmanna Evrópuþingmenns sinna öðrum störfum meðfram þingstörfunum og í um 26 prósent tilvika fá þeir greitt fyrir aukastarfið. Erlent 6.5.2024 08:03
Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Yfirvöld í Mexíkó hafa fundið lík þriggja túrista, tveggja Ástrala og Bandaríkjamanns, sem hurfu á dögunum þegar þeir voru í brimbrettaferð á Baja-skaganum. Erlent 6.5.2024 07:03
Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Xi Jinping, forseti Kína, kom í morgun í opinbera heimsókn til Parísar í Frakklandi þar sem hann mun hitta kollega sinn Emmanuel Macron. Þetta er fyrsta heimsókn Xi til Evrópu frá árinu 2019 en hann mun einnig heimsækja Serbíu og Ungverjaland. Erlent 6.5.2024 06:54
Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Ísraelsher segist þurfa að flytja 100.000 manns frá Rafah inn á nærliggjandi svæði, al Mawasi, sem Ísraelsmenn hafa skilgreint sem „mannúðarsvæði“. Þetta hefur Associated Press eftir talsmanni hersins. Erlent 6.5.2024 06:45
Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Hluti útsendingarbúnaðar katarska miðilsins Al Jazeera var gerður upptækur þegar lögregla réðst inn á hótelherbergi útsendara í Jerúsalem í dag. Miðlinum hefur verið bannað að starfa í landinu í að minnsta kosti 45 daga. Erlent 5.5.2024 19:50
Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að, þó Ísraelsmenn séu tilbúnir til þess að gera hlé á átökunum til að Hamasliðar afhendi þá gísla sem enn eru í þeirra haldi, komi það ekki til greina að binda endanlegri enda á átökin. Erlent 5.5.2024 13:17