Erlent
25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 334 ›
Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Yfirvöld í Hollandi hafa gefið út viðvörun til fólks með ung börn um að heimsækja ekki skóglendi nærri þorpinu Austerlitz, um það bil 16 kílómetra austur af Utrecht. Erlent 1.8.2024 08:04
Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Þrír menn sem eru sakaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 hafa náð samkomulagi við yfirvöld í Bandaríkjunum um að játa aðkomu sína gegn því að verða ekki dæmdir til dauða. Erlent 1.8.2024 07:22
Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaefni Repúblikanaflokksins, fór mikinn á viðburði Samtaka svartra blaðamanna (NABJ) í gær og sagði meðal annars að Kamala Harris hefði aðeins „orðið svört“ fyrir nokkrum árum. Erlent 1.8.2024 06:55
Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Mótmæli vegna stunguárásarinnar í bænum Southport í Norður-Englandi á mánudag hafa dreift sér út fyrir bæinn. Lögreglan í Lundúnum handtók tugi mótmælenda eftir að óeirðir brutust út við Downingstræti í kvöld. Erlent 31.7.2024 22:57
Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ólíklegt að dráp Ismail Haniyeh muni leiða til meiriháttar milliríkjaátaka þrátt fyrir að þær muni hafa ýmsar afleiðingar í för með sér. Ástæða þess séu þeir miklu hernaðarlegu yfirburðir sem Ísrael hefur yfir nágrannaríkin. Erlent 31.7.2024 21:00
„Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar. Erlent 31.7.2024 18:57
Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist í Japan. Hann var handtekinn við höfnina í Nuuk fyrr í mánuðinum en hann hefur vakið athygli hér á landi fyrir að hafa meðal annars sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. á níunda áratugnum. Erlent 31.7.2024 14:07
Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Sjónvarpsmaðurinn Huw Edwards, 62 ára, hefur játað að hafa „búið til“ kynferðislegar myndir af börnum. Edwards, sem starfaði í áratugi hjá BBC og var einn þekktasti fréttalesari Bretlands, á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Erlent 31.7.2024 11:37
Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh. Erlent 31.7.2024 10:21
Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Breskur þingmaður segir „óþokka“ bera ábyrgð á uppþotunum sem 39 lögreglumenn slösuðust í eftir minningarstund um barnung fórnarlömb hnífaárásarinnar í Southport í gær. Múrsteinum var meðal annars kastað í lögreglumenn og kveikt í lögreglubíl. Erlent 31.7.2024 08:45
Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja dóu í heimavistarskólum í Bandaríkjunum sem reknir voru af yfirvöldum eða trúarstofnunum. Markmiðið með vistun barnanna var að aðlaga þau hvítu samfélagi. Erlent 31.7.2024 07:52
Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegt forsetaefni Demókrataflokksins, mun halda fyrsta kosningafundinn með varaforsetaefni sínu í Philadelphiu í Pennsylvaníu á þriðjudaginn í næstu viku. Erlent 31.7.2024 07:11
Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran. Erlent 31.7.2024 06:46
Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Aurskriður sem féllu í Kerala-fylki í Suðurhluta Indlands í morgun urðu minnst 123 að bana. Hundrað til viðbótar er enn saknað og óttast er að tala látinna hækki enn fremur. Erlent 30.7.2024 23:38
Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. Erlent 30.7.2024 21:30
Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Ísraelar gerðu loftárásir á úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanons, þar sem ísraelski herinn telur háttsetta meðlimi Hezbollah halda til. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir fyrir árásir Hezbollah á byggð Ísraela á Golan-hæðum þar sem 12 börn létu lífið. Erlent 30.7.2024 19:14
Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna. Erlent 30.7.2024 17:38
Skammast sín vegna skotárásarinnar Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda. Erlent 30.7.2024 16:49
Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30.7.2024 15:52
Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, baðst undan að bera vitni í réttarrannsókn á meintri spillingu eiginkonu hans í dag. Hann sakar dómarann sem rannsakar málið um embættisafglöp. Erlent 30.7.2024 14:53
Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt. Erlent 30.7.2024 13:47
Þriðja stelpan látin í Southport Þrjár stelpur á aldrinum sex til níu ára eru látnar og fimm börn til viðbótar eru þungt haldin eftir hnífaárás á dansnámskeiði í Southport í Englandi í gær. Erlent 30.7.2024 12:15
Fjöldamorðingi í My Lai látinn Bandarískur liðsforingi úr Víetnamstríðinu sem var sá eini sem var látinn sæta ábyrgð á fjöldamorðinu alræmda í þorpinu My Lai er látinn, áttræður að aldri. Bandarískir hermenn drápu hundruð óbreyttra borgara í My Lai, þar á meðal konur og börn. Erlent 30.7.2024 11:48
Grunar vinstriöfgamenn um græsku Innanríkisráðherra Frakklands segir að grunur beinist að herskáum hópum vinstriöfgamanna vegna skemmdarverka sem voru unnin á hraðlestakerfi fyrir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í París. Frekari skemmdarverk voru unnin í gær. Erlent 30.7.2024 10:16
Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja flutti ávarp sitt við þingsetningu á Ólafsvöku í Þórshöfn í gær og ítrekaði að Færeyjar ættu að fá fulla aðild að Norðurlandaráði. Erlent 30.7.2024 08:37
Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Um þúsund bréfberar á Bretlandseyjum hafa misst fingur eða framan af fingri á síðustu fimm árum eftir að hafa verið bitnir af hundi þegar þeir voru að setja bréf inn um póstlúgu. Erlent 30.7.2024 08:33
Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Sex börn og tveir fullorðnir liggja enn þungt haldnir á sjúkrahúsi eftir að sautján ára gamall piltur gekk berserksgang með hníf á dansskemmtun fyrir börn í bænum Southport á Englandi í gær. Enn liggur ekki fyrir hvert tilefni árásarinnar var en tvö börn eru þegar látin. Erlent 30.7.2024 08:00
Einn látinn í mótmælunum Mótmælaalda geisar enn í Venesúela eftir að endurkjör Nicolasar Maduro forseta var staðfest á sunnudag. Einn hefur látið lífið í mótmælunum. Erlent 30.7.2024 07:42
Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi hafa gefið út ferðaviðvörun til ríkisborgara sinna og hvatt þá til að ferðast ekki til Líbanon og íhuga að yfirgefa landið ef þeir eru þar. Erlent 30.7.2024 07:16
Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Úkraínumenn segjast hafa átt þátt að málum þegar aðskilnaðarsinnar og jíhadistar í Malí sátu fyrir og drápu fjölda málaliða Wagner. Fram kom á Telegram rás tengdri forystu Wagner í gær að fjöldi liðsmanna hópsins hefði verið drepinn í síðustu viku. Erlent 30.7.2024 06:55