Fastir pennar
185 186 187 188 189 190 191 192 193 … 245 ›
Hugrekki Ómars Frásögn Ómars af samskiptum sínum við valdastéttina í landinu, eða öllu heldur afskipti valdastéttarinnar af honum er með ólíkindum. Ég trúi því þó að í frásögninni sé Ómar sá hófsami fréttamaður sem hann hefur verið alla sína starfsævi og dragi frekar úr hótununum en hitt. Fastir pennar 26.9.2006 00:01
Lægra matarverð Samfylkingin vill að teknar verði upp tímabundnar greiðslur til bænda og umhverfisstyrkir. Þegar slíkar tillögur eru kynntar er nauðsynlegt að fram komi hvaða fyrirkomulag verði viðhaft og hve mikið það muni kosta skattgreiðendur. Að því leyti eru tillögur Samfylkingarinnar vanhugsaðar. Fastir pennar 26.9.2006 00:01
NFS (2005 2006) Stöðin fékk aldrei þann byr sem hún átti skilið og var beinlínis lögð í einelti af ákveðnum fjölmiðlum. Ég skildi aldrei hvernig blaðamenn gátu verið á móti sjónvarpsrás sem flutti þjóðfélagsumræðu og fréttir allan sólarhringinn. Aldrei hef ég heyrt nokkurn íþróttamann tala niðrandi um íþróttarásina Sýn. Þórðargleðin sem heyrist nú úr herbúðum sumra yfir látnum félaga lýsir heldur ekki mikilli stórmennsku. Fastir pennar 25.9.2006 06:00
Sýnir ógöngur Íraksstefnu Bush Þessar niðurstöður koma fáum sem fylgjast með alþjóðamálum á óvart. Þær eru hins vegar í augljósri mótsögn við þá mynd sem ríkisstjórn George W. Bush hefur viljað halda fram um afleiðingar innrásarinnar í Írak. Fastir pennar 25.9.2006 06:00
Sjómennskan er ekkert grín Þá helltist yfir mig sjóveiki, alveg hræðileg sjóveiki. Og þá gerði ég mistök. Í stað þess að fara og borða, sem hefði kannski bjargað mér, þá ákvað ég að fara niður í káetu og sjá hvort þetta rjátlaðist ekki af mér. Við tóku tveir ömurlegustu sólarhringar sem ég hafði lifað. Ég man þetta meira og minna í móðu. Ég reyndi að koma mér í vinnu því ég skammaðist mín fyrir vesaldómin. Fastir pennar 24.9.2006 06:00
Vændi er neyð Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem stunda vændi er konur sem eru afar illa staddar félagslega og oft iðka þær þessa atvinnu til að standa straum af kostnaði vegna fíkniefnaneyslu. Það telst í það minnsta áfangasigur að afnema refsingu fyrir þá neyð sem það er að selja líkama sinn. Fastir pennar 24.9.2006 06:00
Hagsmunir fólks eða flokka? Ýmsir merkir alþingismenn greina frá því um þessar mundir að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Tilkynningar þar um hafa verið tilefni margvíslegra frásagna af uppruna góðra málefna. Fastir pennar 23.9.2006 06:00
Lífið er súludans Sérhverjum frjálslyndum og þjóðhollum manni hlýtur að renna blóðið til skyldunnar þegar nöldurseggir ætla að vega að frjálsum viðskiptum í frjálsasta landi heimsins og banna atvinnugrein sem felst í því að karlkyns athafnamenn leigi stúlkur til að dilla sér berar upp við súlu og selji öðrum körlum aðgang að gjörningnum. Að sjálfsögðu verður að forðast að umræða um þetta mál sé sett í annarlegt samhengi þar sem hún á ekki heima. Fastir pennar 23.9.2006 06:00
Menning og markaðshyggja Friður er þroskanum nauðsynlegur, en frjáls viðskipti eru friðvænlegri en valdbeiting. Hvort skyldi vera betra að fá eitthvað frá öðrum með verði eða sverði? Fastir pennar 22.9.2006 08:27
Tímamót í land- grunnsmálum Þótt nú hafi tekist samkomulag milli þeirra sem eiga hagsmuna að gæta í suðurhluta Síldarsmugunnar, á málið eftir að fara til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna , sem á að gera tillögur um ytri mörk landgrunnsins. Líklegt er talið að landgrunnið og réttindi yfir því fái aukna þýðingu í framtíðinni, því með meiri og breyttri tækni kunna að finnast þar óþekktar auðlindir. Fastir pennar 22.9.2006 06:00
Þriðja stéttin rís upp Fyrir 250 árum var svo komið fyrir Frökkum, að aðalsmönnum og klerkum, sem voru að sönnu sárafáir, hafði tekizt að skjóta sér að mestu undan skattgreiðslum til konungs. Allur þorri almennings þriðja stéttin bar hins vegar þunga skattbyrði. Að því hlaut að koma, að þriðja stéttin missti þolinmæðina og risi upp gegn ranglætinu. Það gerðist 1789, og hausarnir fuku í allar áttir. Það var fljótlegt að velja hausa í gálgana, því að sjálftekin forréttindi aðalsins og klerkastéttarinnar langtímum saman birtust meðal annars í því, að forréttindastéttirnar voru yfirleitt orðnar höfðinu hærri en þriðja stéttin. Fastir pennar 21.9.2006 00:01
Refsilaust að stunda vændi Björgvin guðmundsson skrifar Vændi fyrirfinnst í öllum stórborgum vestrænna ríkja. Skiptir engu máli hvaða löggjöf er í gildi á hverjum stað - alls staðar má finna þessa starfsemi þótt missýnileg sé. Þeir sem fjalla um vændi og vilja koma í veg fyrir það hljóta að horfa til þessara staðreynda. Fastir pennar 21.9.2006 00:01
Samsteypa sigrar stjórnarflokk Sósíaldemókrataflokkurinn í Svíþjóð er Stjórnarflokkurinn með stórum staf og ákveðnum greini. Hann hefur farið einn með völdin í landinu í 70 ár að undanskildum tveimur kjörtímabilum sem hægri flokkarnir náðu völdum. Ef eitthvað er hæft í þeirri fullyrðingu að kosningar vinnist ekki af stjórnarandstöðu heldur tapist af ríkisstjórnum hefur það átt við um Svíþjóð þangað til núna. Í fyrri skiptin sem sundraðir borgaraflokkar hafa náð að mynda ríkisstjórn hafa þeir skolast upp í valdastólana nánast fyrir tilviljun og verið sjálfum sér sundurþykkir alla sína stjórnartíð. Fastir pennar 20.9.2006 06:00
Jákvæður ófriður Össur Skarphéðinsson og Björn Bjarnason eru með baráttuglöðustu mönnum íslenskra stjórnmála í seinni tíð. Báðir eru í efstu vigt í sínum flokkum og eftir því er tekið þegar þeir tjá sig. Athyglisvert er að bera saman þau ólíku sjónarmið til prófkjara sem þeir hafa viðrað undanfarna daga. Fastir pennar 20.9.2006 06:00
Til hamingju, Magni Þegar þessi orð eru skrifuð er múgur og margmenni í Smáralind að taka á móti Magna, rokkstjörnunni okkar. Giskað er á átta þúsund manns og líklega á sú tala eftir að hækka. Tilsýndar í sjónvarpi ber mest á börnum og unglingum en í aðdáendahópnum er hinsvegar fólk á öllum aldri, af báðum kynjum og úr öllum stéttum. Fastir pennar 19.9.2006 00:01
Hófsöm en afgerandi sveifla Formlegt og málefnalegt bandalag borgaraflokkanna færði sænskum kjósendum þó óneitanlega tvo skýra kosti til þess að velja á milli. Stjórnarandstöðuflokkanir hér hafa ekki viljað ganga jafn langt. Að því leyti verða þeir ekki jafn skýr málefnalegur kostur andspænis ríkisstjórnarflokkunum eins og gerðist í sænsku kosningunum. Fastir pennar 19.9.2006 00:01
Markaðsöflin og framhaldsskólar Þetta minnir á markaðssóknina varðandi fermingarbörn, sem gengið hefur út í öfgar oft og tíðum, og vakið hefur umræður í þjóðfélaginu. Sjálfsagt má leita hliðstæðra dæma víðar, ef vel er að gáð. Fastir pennar 18.9.2006 06:00
Bleikt og blátt Efinn um hlutleysi saksóknarans kviknar þó einkum af þeirri staðreynd að hann starfar of nærri þeim sem fluttu málið í upphafi. Þegar hann tók við málinu setti Sigurður Tómas upp skrifstofu í húsnæði ríkissáttasemjara að Borgartúni 21 og notaði það heimilisfang í bréfhausum sínum. Hér kviknaði von um að þetta leiðindamál væri nú loks komið í sjálfstæðar hendur. Sjálfstæðið varði hinsvegar ekki lengi. Fyrr en varði var saksóknarinn ferski sestur inn til Ríkislögreglustjóra og situr þar enn Fastir pennar 18.9.2006 06:00
Almenningur og hlutabréf Þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði er mikilvæg fyrir margra hluta sakir. Fyrst ber að líta til þess að ávöxtun hlutabréfa er að jafnaði meiri en annarra fjárfestingakosta, þegar litið er yfir lengra tímabil, enda þótt ávöxtunin geti sveiflast verulega og verið neikvæð á tímabilum. Fastir pennar 17.9.2006 00:01
Virkjum kennarana Ég hef áður bent á hversu rangt það hlýtur að vera að rjúfa að mestu tengsl á milli þess hvernig kennarar standa sig í starfi og hvað þeir fá í laun. Það segir sig sjálft að til langs tíma dregur það úr hvatanum til að standa sig vel ef launin eru þau sömu hvort sem vel er gert eða ekki. Fastir pennar 17.9.2006 00:01
Sjálfshjálp hræddrar þjóðar Engum hugsandi manni dylst að hér er á ferðinni harkaleg gagnrýni, ef ekki stórskotahríð, á þá stefnu stjórnvalda, sem ráðið hefur för undir nafninu stóriðjustefna. Undirtektir, athygli og sala Draumalandsins segir okkur ekki endilega að þessi stefna hafi verið skotin í kaf. Fastir pennar 16.9.2006 00:01
Ný fjárfestingarhugsun Skýrslur OECD um íslenska skóla hafa verið afar gagnlegt framlag til almennrar umræðu um íslenska skólastefnu. Þar hafa verið dregnar fram nokkrar einfaldar staðreyndir í þessum efnum. Ein sú mikilvægasta er að við verjum hærra hlutfalli af þjóðarframleiðslunni í hvern nemanda en aðrar þjóðir. Fastir pennar 16.9.2006 00:01
Frelsi til þróunar Við Íslendingar jusum á sínum tíma fé í Grænhöfðaeyjar, en landið er enn bláfátækt. Þróunaraðstoðarinnar sér vart stað, nema hvað hún hefur auðvitað eflt valdastéttina þar. Fastir pennar 15.9.2006 00:01
Allir til ábyrgðar í umferðinni Samgönguyfirvöld ætla ekki að staðnæmast við hugarfarsátakið, Við segjum stopp, heldur efla eftirlit á vegum og vinna að því að þyngja refsingar við hraðakstursbrotum. Hvort tveggja er gott og gilt. Hitt er ljóst að til viðbótar við ábyrgan akstur hvers og eins þá eru bætur á umferðarmannvirkjum það sem best nýtist í baráttunni gegn umferðarslysum. Fastir pennar 15.9.2006 00:01
Álitamál um íslenzkt réttarfar Fyrir viku rifjaði ég upp fáein atriði úr valdatíð Richards Nixon, forseta Bandaríkjanna 1969-74. Nixon gerði ýmislegt gagn um sína daga, batt til dæmis enda á stríðið í Víetnam og tók upp stjórnmálasamband við Kína, en samskipti landanna höfðu nær engin verið frá 1949, þegar kommúnistar brutust til valda þar eystra. Fastir pennar 14.9.2006 00:01
Enn þenslumerki Verðbólgan virðist vera á undanhaldi, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í fyrradag. Almennar verðhækkanir náðu hámarki í ágúst og miðað við þróun neysluverðsvísitölunnar í september hægist á hækkununum. Verðbólgutölur eru þó hærri en Íslendingar hafa átt að venjast og langt frá verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Fastir pennar 14.9.2006 00:01
Möguleg kosningaháttabót Í tengslum við fund Samfylkingarinnar í Skjólbrekku um síðustu helgi lýsti flokksformaðurinn því yfir að rétt væri að stjórnarandstöðuflokkarnir mynduðu ríkisstjórn að loknm næstu kosningum. En hvað þýðir slík yfirlýsing þegar til kastanna kemur? Hefur hún eitthvert raunverulegt pólitískt gildi? Fastir pennar 13.9.2006 00:01
Haust fyrir fimmtíu árum Nú fimmtíu árum síðar stendur breska stjórnin enn með Bandaríkjunum í öllum málum en önnur leiðandi ríki í Evrópu reyna enn að ná saman um öðru vísi stefnu í vaxandi fjölda alþjóðlegra málefna, allt frá umhverfisvernd til mannréttinda, stríðsglæpa og málefna einstakra heimshluta. Fastir pennar 13.9.2006 00:01
Reykvísk börn gjalda Á tíu árum hafa kynferðisbrotamál gegn börnum sem til rannsóknar koma liðlega tvöfaldast. Þrátt fyrir þetta hefur ákærum í slíkum málum ekki fjölgað og segir það sína sögu um lyktir þessara mála. Fastir pennar 12.9.2006 00:01
Um gönguferð og virkjanaáætlanir Það er skylda stjórnmálflokka á að upplýsa kjósendur rækilega um hver stefnan er, hvað á að virkja, hverjum á að selja orku og á hvaða verði. Fólk á rétt á því að vita hvaða leið á að fara til komast ekki að því á miðri leið að þeir hefðu kosið aðra, eins og henti okkur hjónakorn í Alfama forðum. Fastir pennar 12.9.2006 00:01
Um hvað snýst yfirvofandi læknaverkfall - hvað ber eiginlega á milli samningsaðila? Theódór Skúli Sigurðsson Skoðun