
Veiði



Stuð á sjóbirtingsslóðum
Ágætlega hefur veiðst í sjóbirtingsám Stangveiðifélags Keflavíkur að undanförnu. Að því er kemur fram á heimasíðu félagsins er mikið magn af fiski í Fossáluum og Geirlandsáin er einnig að gefa.

Gæsirnar falla á ökrunum í Gunnarsholti
Þótt gæsaveiðitímabilið hafi ekki náð hámarki hafa skotveiðimenn setið við akrana um nokkurt skeið með ágætum árangri. Til dæmis í Gunnarsholti eins og lesa má um á vef Lax-ár.

Laxinn hefur gefið sig í Tungufljóti
Samkvæmt veiðibókinni í Tungufljóti í Skaftárhreppi veiddust 23 laxar í þessari rómuðu sjóbirtingsá frá því í byrjun ágúst og fram til 16 september.

Hættið að skarka utanvega á veiðislóð!
Ljót sár eru nú í jarðvegi eftir ökutæki veiðimanna í Hraunsfirði að því er segir á veg Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem skorar á veiðimenn að keyra ekki utan vega í botni fjarðarins.

Laxar og sjóbirtingar streyma upp úr Tungufljóti
Holl sem lauk veiðum í Tungufljóti í Skaftárhreppi í gær landaði nítján fiskum, þar af voru sex laxar - sá stærsti 12 pund.


Eru veiðimenn að upplifa sömu hörmungar og 1984?
Allt stefnir í að veiðin í ár verði 43 prósentum lakari en meðalveiðin hefur verið frá 2002. Er hægt að bera þetta ár saman við hörmungarárið 1984?

Stóra Laxá III: 16 laxar á níu tímum!
Hins vegar verður að viðurkennast að ævintýri veiðimanna á svæði III eru meira en væntingar stóðu til en holl sem hóf veiðar klukkan sjö í gærkvöldi var búið að landa 16 löxum í hádeginu í dag.

Þekkt að bleikju fjölgi þegar laxi fækkar
"Við erum að sjá meira af fiski í sumar en í langan tíma. Við erum að fá miklu meira af bleikju. Á móti kemur að laxinn hefur lítið sem ekkert látið sjá sig, en það er enginn missir að honum,“


Dunká betri en í fyrra - Veiði lokið Straumunum
Veiði í Dunká er þegar orðin betri en í fyrra. Líf er í Gljúfurá í Borgarfirði. Straumarnir og Brennan skila fínni veiði á stöng.

Veiðitölur LV: Yfir 100 laxar í Norðurá
Fjórar ár skiluðu ríflega 100 laxa viku að þessu inni. Athygli vekur að Norðurá er ein þeirra en þar veiddust 103 laxar í síðust viku. Lítið kraftaverk í Aðaldalnum.


Drápa græn verður Hrygnan 2012
Úrslit eru nú kunn í fluguhnýtingarkeppni veiðiverslunarinnar Hrygnunnar. Keppnin var styrktar góðu málefni og runnu 26 þúsund krónur til félagsskaparins "Kastað til bata."

Dágott gengi hjá lokahollinu í Þverá
Síðasta hollið í Þverá þetta haustið veiddi mun betur en hollin á undan og náði ellefu löxum á land auk nokkurra sjóbirtinga


Góðar gangur í Breiðdalsá
85 laxar hafa veiðst frá mánaðarmótum en 364 þegar horft er til sumarsins í heild. Meðalþyngdin vekur athygli en hún er ríflega 9 pund. Meðallengd veiddra laxa er 73,24 sentimetrar segir í veiðibók Breiðdalsár.






Laxinn stökk sjálfur í land í Hallá
Veiðimaður í Hallá við Skagaströnd í lok ágúst sá nokkra laxa en náði ekki að setja í þá. Einn laxinn sá þó aumur á honum og gekk sjálfur á land. Um þetta má lesa á agn.is.


Haustveiði á laxi í höfuðborginni gengur vel
Hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur eru menn ánægðir með haustveiðina í Elliðaánum. Á vef félagsins er sagt frá því að tólf laxar hafi veiðst í gær og urriðar og sjóbirtingar að auki.

Veiðitölur LV: 575 laxa vika í Ytri-Rangá
Haustveiðin er hafin af fullum krafti og Ytri-Rangá skilar þessa vikuna fantaveiði, eða 575 laxa viku. Ytri trónir á toppi veiðilistans eins og löngum í sumar og ljóst að svo verður til enda. 3.507 laxar hafa veiðst miðað við 3.853 laxa í fyrra.

Kreistu tvo laxa upp úr Krossá í Bitru
Veiðin í Krossá í Bitrufirðihefur, líkt og nánast flestum öðrum ám, verið dræm í sumar. Um síðustu helgi voru 37 laxar skráðir í veiðibókina.
