Fréttir
304 305 306 307 308 309 310 311 312 … 334 ›
Einlægur samningsvilji ekki dugað til Samtök atvinnulífsins segja einlægan samningsvilja hafa verið til staðar í kjaraviðræðum við breiðfylkingu ASÍ en þrátt fyrir hann liggi fyrir að ekki verði haldið áfram með viðræðurnar í óbreyttu formi. Innlent 24.1.2024 19:41
„Við gefumst aldrei upp“ Tjald á vegum Palestínumanna sem bíða fjölskyldusameiningar sem hefur verið uppi fyrir framan Alþingishúsið í tæpan mánuð var tekið niður í dag. Mótmælendur segjast alls ekki vera að gefast upp og ætla að halda dvölinni áfram án tjaldsins. Innlent 24.1.2024 19:21
Varanlega hreyfihömluð en fær ekki bíl vegna skorts á vottorði Margrét Lilja Arnheiðardóttir, formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra, segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við Tryggingastofnun ríkisins. Hún hefur í tuttugu mánuði undirbúið bílakaup en þarf að byrja upp á nýtt þar sem áður samþykktur styrkur hefur verið felldur úr gildi. Ástæðan er sú að hreyfihömlunarvottorð hennar rann út um áramót. Margrét Lilja er varanlega hreyfihömluð. Innlent 24.1.2024 18:55
Væntanlegir snjallgámar Sorpu eiga að tryggja tímanlega losun Starfsmenn Sorpu munu á næstu vikum koma fyrir skynjurum í grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu sem eiga að tryggja að gámarnir verði losaðir tímanlega. Innlent 24.1.2024 18:43
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kjaraviðræðum breiðfylkingar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefur verið slitið og deilunni vísað formlega til ríkissáttasemjara. Frost er komið í viðræðurnar. Við ræðum við verkalýðsforingja í fréttatímanum. Innlent 24.1.2024 18:01
Rask á flugi í fyrramálið vegna veðurs Flugi Play til Frankfurt í fyrramálið hefur verið aflýst vegna óveðurs en gul viðvörun tekur gildi í nótt. Þá hefur bæði brottförum til Evrópu og komum frá Bandaríkjunum verið seinkað. Innlent 24.1.2024 17:57
Endurtekning á síðustu kosningum í kortunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vann nokkuð öruggan sigur gegn Nikki Haley í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í gær. Kjósendur í ríkinu eru þekktir fyrir að vera óútreiknanlegir en þeir komu ekki á óvart og eru líkurnar á því að Trump mæti Joe Biden, forseta, í kosningunum í nóvember orðnar töluvert meiri. Erlent 24.1.2024 16:54
Samningsviðræðum slitið og deilunni vísað til ríkissáttasemjara Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að kjaraviðræðum breiðfylkingar ASÍ við Samtök atvinnulífsins hafi verið slitið og deilunni verði nú vísað formlega til ríkissáttasemjara. Frost er komið í viðræðurnar. Innlent 24.1.2024 16:51
Skellti upp úr yfir óvæntum hávaðakvörtunum Borgarfulltrúi Pírata segist hafa farið að hlæja þegar hún sá að kvartað hafði verið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna hávaða við snjómokstur. Kvörtunum hafi hríðfækkað vegna skorts á snjómokstri í Reykjavík. Innlent 24.1.2024 16:37
Fundu lungnaorm í innfluttum hundi Lungnaormur greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins frá Svíþjóð á síðasta ári. Engin snýkjudýr greindust í hundinum sem tekin voru á meðan hann var í einangrun. Ormurinn virðist ekki hafa smitast í önnur dýr á heimilinu. Innlent 24.1.2024 16:35
Óvenju margir dauðir auðnutittlingar Óvenju margar ábendingar hafa borist Matvælastofnun að undanförnu vegna dauðra auðnutittlinga. Ábendingarnar hafa borist af öllu landinu frá fólki sem reglulega gefur smáfuglum að éta. Innlent 24.1.2024 15:57
Vill sjá minnisvarða um MeToo rísa í Reykjavík Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, vill sjá minnisvarða um MeToo rísa í Reykjavík. Tillaga Lífar um að farið verði í samkeppni um slíkan minnisvarða fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis, áreitni og nauðgana, hefur verið vísað til meðferðar í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði borgarinnar. Innlent 24.1.2024 14:57
Tilkynningum um heimilisofbeldi til lögreglu fjölgað verulega Ríkislögreglustjóri telur að aukin áherslu á rannsóknir heimilisofbeldismála og stuðning við brotaþola hafi leitt til mikillar fjölgunar tilkynninga um heimilisofbeldi. Þau eru nú tæplega helmingur allra ofbeldisbrota. Innlent 24.1.2024 14:49
Framhjól Boeing 757 féll af flugvélinni Framhjól á Boeing 757 farþegaþotu í eigu bandaríska flugfélagsins Delta féll af þotunni á alþjóðaflugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum á laugardag skömmu fyrir ætlað flugtak. Erlent 24.1.2024 14:47
Fyrstir með afglæpavæðingu en draga nú í land Þingmenn á ríkisþingi Oregon í Bandaríkjunum lögðu í gær fram frumvarp þar sem fyrri lög ríkisins varðandi afglæpavæðingu fíkniefnanotkunar eru felld úr gildi. Oregon var fyrsta ríki Bandaríkjanna til að taka stór skref í afglæpavæðingu en viðhorf íbúa ríkisins hefur tekið miklum breytingum samhliða mikilli fíkniefnanotkun á almannafæri og umfangsmikilli notkun fentanyls. Erlent 24.1.2024 14:31
Tjaldið tekið niður Tjaldbúðir palestínskra mótmælenda verða að öllu óbreyttu teknar niður af Austurvelli í dag eftir tæplega mánaðarviðveru. Yfirvöld hafa beðið mótmælendurna um að fjarlægja búðirnar, og segjast þeir ætla að verða við því. Innlent 24.1.2024 14:00
Orban gefur grænt ljós á inngöngu Svía Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segist styðja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið. Þá segist hann ætla að hvetja ungverska þingið til að samþykkja aðildarumsókn Svía eins fljótt og auðið er. Erlent 24.1.2024 13:45
Halda fast í fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar Hafrannsóknastofnun mun ekki breyta fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar á þessari vertíð eftir mælingar síðustu vikuna. Ástæða þess er að lítið mældist og sterkar líkur á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi. Innlent 24.1.2024 13:11
Séra Friðrik felldur af stalli sínum Starfsmenn borgarinnar eru í þessum skrifuðu orðum að fella séra Friðrik Friðriksson af stalli sínum. Innlent 24.1.2024 12:07
Óánægður með viðbragðsleysi vegna lögbrota flugfélaganna Tíu flugfélög afhenda ekki íslenskum yfirvöldum farþegalista við komuna hingað til lands frá Schengen-löndum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir listana mikilvæga fyrir lögregluna en dæmi eru um að erlendir brotamenn komist hingað til lands með þessum hætti. Innlent 24.1.2024 12:07
Óvissustigi vegna jökulhlaups úr Grímsvötnum aflýst Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur aflýst óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Grímsvötnum. Innlent 24.1.2024 12:04
Færri leituðu til Stígamóta og fækkar á biðlista Færri einstaklingar leituðu til Stígamóta árið 2023 en árin tvö þar á undan. Þá hefur fækkað nokkuð á biðlista sem lengdist töluvert árin 2021 og 2022. Innlent 24.1.2024 11:54
Fékk níu fíkniefnasendingar á örfáum mánuðum Karlmaður hefur fengið sextíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur, skilorðsbundin til tveggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Á nokkrum mánuðum árið 2021 fékk hann níu sendingar erlendis frá sem innihéldu ýmis fíkniefni sem tollverðir fundu í póstmiðstöð í Reykjavík. Innlent 24.1.2024 11:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegifréttum verður rætt við jarðeðlisfræðing um ástandið á Reykjanesi en verulega hefur dregið úr skjálftavirkni síðustu daga. Innlent 24.1.2024 11:34
Viðbrögð við Júró-útspili RÚV: „Galið“ að leggja ákvörðunina á sigurvegarann Ákvörðun Ríkisútvarpsins um að bíða þar til eftir Söngvakeppni sjónvarpsins um að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision í Svíþjóð hefur fallið misvel í kramið hjá landsmönnum. Margir segja þetta útspil galið og vinsælla væri ef Söngvakeppnin væri haldin án möguleika á að fara til Svíþjóðar. Innlent 24.1.2024 11:12
Pallborðið í dag: Hvað heldur stjórnarflokkunum saman? Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn hafa nú verið saman í ríkisstjórn í 62 mánuði og farið að gæta spennu og þreytu í stjórnarsamstarfinu. Þrír stjórnarþingmenn mæta í Pallborðið klukkan 14 til að ræða stöðuna á stjórnarheimilinu við Heimi Má Pétursson fréttamann í beinni útsendingu. Innlent 24.1.2024 11:01
Spá stormi og varasömu ferðaveðri á morgun Veðurstofan spáir sunnan stormi í flestum landshlutum á morgun. Gular veðurviðvaranir verða í gildi. Innlent 24.1.2024 10:18
Herflugvél féll til jarðar í Belgorod Flutningaflugvél rússneska hersins hrapaði til jarðar í Belgorod-héraði í morgun og sprakk. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir Il-76 flugvélina hafa borið 65 úkraínska stríðsfanga sem til stóð að skipta við Úkraínumenn, auk áhafnar, alls 74 manns. Erlent 24.1.2024 10:08
Kársnesskóla skipt upp í tvo skóla Kársnesskóla verður skipt upp í tvo sjálfstæða skóla á skólaárinu 2024 til 2025 samkvæmt tillögu menntasviðs Kópavogsbæjar sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Kópavogs. Meginástæðan er fjölgun nemenda. Innlent 24.1.2024 10:04
„Við rekum atvinnugreinar sem við sjálf viljum ekki taka þátt í“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist ekki geta borið ábyrgð á öllu sem Samfylkingin hefur gert sögulega. Hún segir áríðandi að gæta að mannúð og sanngirni í útlendingamálum á sama tíma og send séu skýr skilaboð um stjórn á landamærum. Kristrún ræddi þetta, og annað, í Bítinu í morgun. Innlent 24.1.2024 09:03