Fréttir
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 334 ›
Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir Ísland leggja áherslu á að tala fyrir friði og virðingu fyrir alþjóðalögum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur nú yfir í New York. Það séu hagsmunir Íslands og heimsins alls að efla Sameinuðu þjóðirnar og tryggja fullveldisrétt allra ríkja. Innlent 22.9.2026 10:08
Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Repúblikanar eru byrjaðir að verja fúlgum fjár í auglýsingar í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þeir sitja á mun digrari sjóðum en Demókratar. Forsetinn sjálfur situr á rúmum fjögur hundruð milljónum dala í pólitískri aðgerðanefnd sinni og er byrjaður að beita honum til að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Erlent 22.9.2026 08:50
Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Begoña Gómez, eiginkona Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, verður dregin fyrir dóm ásamt aðstoðarkonu sinni vegna ásakana um fjárdrátt og misnota aðstöðu sína. Bæði verjendur og saksóknarar fara fram á að Gómez verði sýknuð. Erlent 22.9.2026 08:39
Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum. Erlent 22.9.2026 07:37
Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Bandaríkjamenn, Grænlendingar og Danir munu í dag skrifa undir samning um varnarmál á Grænlandi en undirritunin fer fram í New York. Samkvæmt danska ríkisútvarpinu hyggjast Bandaríkjamenn reisa tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi. Erlent 22.9.2026 07:17
Rigning, rigning, rigning Það gengur í suðvestan tíu til átján metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld. Veður 22.9.2026 06:54
Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. Innlent 22.9.2026 06:41
„Skólinn okkar er alltof lítill“ Skólastjóri Fjölbrautaskóla Suðurnesja segir stækkun verknámsaðstöðu skólans vera góð fyrstu skref í húsnæðismálum hans. Núverandi skólahúsnæði fyrir bóknám sé hins vegar alltof lítið. Innlent 22.9.2026 06:00
Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni manns á þrítugsaldri, sem var dæmdur í 3,5 ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga þrettán ára stúlku. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun í héraði, þar sem ekki var talið að hann hefði beitt stúlkuna nauðung. Alla jafna fá þeir sem sýknaðir eru í héraði en sakfelldir í Landsrétti áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn taldi ljóst að hann myndi ekki snúa dómi Landsréttar í tilfelli mannsins og hafnaði því beiðni hans. Innlent 21.9.2026 23:30
Sniðganga Hvíta húsið Bandarísku fréttastöðvarnar Fox News, ABC, CBS og NBC hafa samþykkt að hætta að flytja fréttir af Hvíta húsi Donalds Trump Bandaríkjaforseta í mótmælaskyni við ákvörðun Hvíta hússins um að meina fréttafólki CNN, Politico og MS Now inngöngu í Hvíta húsið og á viðburði á vegum þess. Erlent 21.9.2026 22:36
Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, hefur mjög miklar áhyggjur af stöðu mála innan SÁÁ og telur að stjórn samtakanna hafi gengið of langt í afskiptum sínum af faglegu starfi. Það sé ekki hlutverk félagaskipaðrar stjórnar að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustunni sem veitt er undir samningi við Sjúkratryggingar. Innlent 21.9.2026 22:00
Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Þann 1. október verður tekin upp gjaldskylda á bílastæðum við Stúdentagarða vð Háskóla Íslands og mega einungis þeir sem eru með íbúakort leggja í stæðunum. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir íbúa á görðunum hafa verið orðna langþreytta á að geta ekki nálgast stæði við eigin heimili, mikil ásókn hafi verið í stæðin undanfarin ár. Íbúi lýsir yfir miklum áhyggjum vegna málsins. Innlent 21.9.2026 20:36
Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Talsmaður Fagfélaganna segir að farið verði fram á verulegar launahækkanir félagsmanna í kjaraviðræðum sem framundan eru í vetur, félagsmenn séu í bullandi launarýrnun samkvæmt könnun. Plan A sé þó að Samtök atvinnulífsins komi með útspil svo ekki þurfi að fara í hart og hið opinbera hækki ekki gjöld og álögur. Innlent 21.9.2026 18:54
Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Frestun verkfalls flugvirkja myndi ekki draga úr skaða heldur framlengja óvissutímabil og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta segja stjórnendur Icelandair um þá tillögu flugvirkja að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Þær hefjast að óbreyttu á miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Innlent 21.9.2026 18:47
Lárus Welding á endastöð hjá MDE Mál Lárusar Welding á hendur íslenska ríkinu verður ekki tekið fyrir í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE). Dómstóllinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn Lárusi í Stím-málinu svokallaða. Innlent 21.9.2026 17:34
Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara. Innlent 21.9.2026 17:16
Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Tilkynnt var um eld í bifreið í Breiðholti í Reykjavík í dag en greiðlega gekk að slökkva eldinn, að sögn lögreglu. Bifreiðin var í kjölfarið fjarlægð með kranabíl. Innlent 21.9.2026 17:16
Litlu nær um peningana í Fljótagöng Enn vantar skýr svör um framlag ríkisins til Fljótaganga að mati Stefáns Vagns Stefánssonar þingmanns. Hann spurði um fjárveitingu til ganganna en innviðaráðherra vísaði til heimildar til að leggja fé eða eignir í innviðafélagið, án þess að nefna fjárhæð. Innlent 21.9.2026 16:33
Hefði þegið samtal við Jóhannes Stofnandi Læsis segir nýlega umræðu um smáforritið að miklu leyti ósanngjarna. Forritið sé ekki samfélagsmiðill og ekki ætlað börnum. Innlent 21.9.2026 16:02
Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Vísbendingar eru um að útgerðir nýti sér reglur gegn brottkasti fisks til að hagnast, að mati atvinnuvegaráðuneytisins. Tekjur Verkefnasjóðs sjávarútvegsins hafa rúmlega fjórfaldast á fimm árum samhliða auknum löndunum á fiski sem ekki dregst frá kvóta skipanna. Innlent 21.9.2026 15:45
„Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Skoða á hvort hlaðvörp þurfi að skrá sig sem fjölmiðla þegar fjölmiðlalögum verður breytt, sagði Logi Einarsson menningarmálaráðherra á Alþingi. Hann sagðist einnig vera að kanna hvort hægt væri að skýra reglurnar með reglugerð. Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann á Alþingi hvort eðlilegt væri að fjölmiðlanefnd hótaði hlaðvarpsfólki dagsektum á meðan beðið væri eftir breytingum á fjölmiðlalögum. Innlent 21.9.2026 14:50
Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma. Innlent 21.9.2026 14:28
Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Donald Trump bað Vólódímír Selenskí um að Úkraínumenn hættu árásum á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi. Í símtali þeirra á milli í gær sagðist Trump hafa áhyggjur af því hvað þessar árásir væru að hafa slæm áhrif á heimsverð díselolíu. Trump sagðist vilja að rússnesk díselolía rataði á heimsmarkað svo verðið gæti lækkað. Erlent 21.9.2026 14:00
Tveir á vinnupalli sem hrundi Tilkynnt var um vinnuslys í Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur upp úr hádegi í dag. Samkvæmt lögreglu hrundi vinnupallur við hús. Innlent 21.9.2026 13:52
Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Embætti landlæknis hefur fellt starfsleyfi sex lækna niður. Að auki var starfsleyfi eins læknis takmarkað. Þetta var gert í kjölfar þess að blaðamaður Heimildarinnar sendi embættinu lista yfir þrettán lækna sem höfðu misst starfsleyfi erlendis en væru samt sem áður með starfsleyfi hér á landi. Innlent 21.9.2026 13:48
Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Hlutfallsleg aukning útgjalda er mest í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu ef marka má fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Þetta segir hagfræðingur Viðskiptaráðs. Niðurskurður til vegamála hafi komið á óvart enda rími það illa við umræðu um mikla innviðauppbyggingu. Innlent 21.9.2026 13:02
Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Kópavogsbær ætlar að skoða hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Bæjarstjóri vísar til danskra reglna og segir hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fá aðstoð hjá bænum hafa hækkað úr 33 í 71 prósent frá árinu 2021. Engar vísbendingar séu þó um misnotkun kerfisins. Innlent 21.9.2026 12:57
Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Mikið áhyggjumál er að börn allt niður í ellefu ára bruni um á allt að hundrað kílómetra hraða um götur og holt og hæðir víða á höfuðborgarsvæðinu að mati lögreglunnar. Börnum á rafmagnskrossurum bregður oftar fyrir en áður sem sé foreldravandamál að mati aðstoðaryfirlögregluþjóns umferðardeildar. Innlent 21.9.2026 11:59
Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Dæmi eru um börn allt niður í ellefu ára gömul sem keyra um höfuðborgarsvæðið á rafmagnskrossurum á allt að hundrað kílómetra hraða. Er algengara en áður að börn aki um á slíkum hjólum og jafnvel á götum borgarinnar. Innlent 21.9.2026 11:49
Sigmar í veikindaleyfi Varaþingmaður tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Sigmar hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar og er kominn í veikindaleyfi. Innlent 21.9.2026 11:46