Fréttir
128 129 130 131 132 133 134 135 136 … 334 ›
Rúmlega 20 slasaðir eftir eld í parísarhjóli Minnst 23 slösuðust þegar tveir eldur kviknaði í tveimur vögnum parísarhjóls á tónlistarhátíð í Leipzig í gærkvöldi. Erlent 18.8.2024 12:35
Stærra svæði aldrei orðið heitavatnslaust Íbúar víða á höfuðborgarsvæði verða að búa sig undir heitavatnsleysi næstu þrjá daga. Aldrei fyrr hefur jafn stórt svæði orðið fyrir truflunum. Innlent 18.8.2024 12:09
„Algjörlega ósammála“ samráðherra sínum Dómsmálaráðherra er ósammála samráðherra sínum í ríkisstjórn og formanni Vinstri grænna um að breytingar á útlendingalögum eigi ekki að vera forgangsmál. Hún boðar frekari breytingar í haust og segir núverandi stöðu ekki ganga til lengdar. Innlent 18.8.2024 11:46
Ósætti meðal ráðherra og víðtækt heitavatnsleysi Dómsmálaráðherra segist ósammála samráðherra sínum og formanni Vinstri grænna um að breytingar á útlendingalögum eigi ekki að vera forgangsmál. Hún boðar frekari breytingar í haust. Innlent 18.8.2024 11:42
Tvö þúsund þegar skrifað undir til stuðnings Helga Magnúsi Búið er að koma upp undirskriftalista á Íslandi.is til stuðnings Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara. Ríkissaksóknari hefur óskað eftir því að hann verði leystur af störfum vegna umdeildra ummæla í garð hinsegin fólks og útlendinga. Innlent 18.8.2024 11:33
Blinken reynir hvað hann getur Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er mættur til Ísraels í þeim tilgangi að hefja viðræður um vopnahlé á Gasasvæðinu milli Ísraela og Hamas-samtakanna. Háttsettir félagsmenn Hamas segja hugmyndir um mögulegt vopnahlé á Gasasvæðinu einungis blekkingu. Það er þrátt fréttaflutning af aukinni bjartsýni um að samkomulag náist. Erlent 18.8.2024 10:47
Framtíð vindorku, gervigreind og staðan í efnahagsmálum Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 18.8.2024 10:07
Kom að heimilinu í ljósum logum Heimili Helgu Skowronski og fjölskyldu hennar varð fyrir stórtjóni í seinasta mánuði þegar eldur kviknaði í húsi þeirra. Talið er að eldurinn hafi átt upptök sín í fitubakka undir útigrilli. Helga var nýlega byrjuð að koma sér fyrir í húsinu og segir erfitt að lýsa tilfinningunni sem fylgdi því að horfa upp á framtíðarheimilið í rjúkandi rúst. Innlent 18.8.2024 10:00
Reykjanesbær endurgeldur greiðann og býður frítt í sund Reykjanesbær býður íbúum í Hafnarfirði, Kópavogi, Álftanesi, Garðabæ, Norðlingaholti, Breiðholti, Hólmsheiði og almannadal ókeypis í sund í Vatnaveröld á meðan heitavatnslaust verður á þessum svæðum frá mánudagskvöldi til miðvikudags vegna viðgerðar á suðuræð Veitna. Innlent 18.8.2024 09:39
Svöl norðlæg átt næstu daga Norðaustur af landinu er 980 mb lægð sem hreyfist lítið og verður fremur svöl norðlæg átt á landinu í dag og næstu daga. Veður 18.8.2024 09:18
Reykur í hrauni ekki eldgos Reykur sést stíga upp úr hrauni á vefmyndavél RÚV á fjallinu Þorbirni. Veðurstofan segir eldgos ekki hafið heldur að líklega sé um vatnsgufu að ræða. Innlent 18.8.2024 09:16
Á harðahlaupum í handjárnum Nokkur erill var á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komu hundrað og fimm mál á borð lögreglu á tólf klukkustunda tímabili frá klukkan fimm síðdegis til klukkan fimm í morgun að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 18.8.2024 09:15
Hundrað ár frá fyrsta flugi milli Íslands og Ameríku Eitthundrað ár eru um þessar mundir frá því flugvélum var í fyrsta sinn flogið milli Íslands og Ameríku. Flugvélarnar sem það gerðu voru tvær og hafa þær báðar varðveist á flugsöfnum í Bandaríkjunum. Innlent 18.8.2024 08:48
Starfsemi skert í tíu leik- eða grunnskólum í Reykjavík í vetur Í Reykjavík eru tíu leik- og grunnskólar að hluta eða alveg óstarfhæfir nú þegar skólastarf er að hefjast. Þar af er um að ræða níu leikskóla og einn grunnskóla, Hólabrekkuskóla. Innlent 17.8.2024 23:40
Vara við versnandi öryggisaðstæðum við Zaporizhzhia kjarnorkuverið Alþjóðakjarnorkumálastofnun, IAEA, varaði við því í dag að öryggisaðstæður við Zaporizhzhia kjarnorkuverið í Úkraínu hafi versnað mikið í kjölfar drónaárásar á vegi nærri kjarnorkuverinu. Sprengjan sprakk á vegi sem liggur á milli tveggja stærstu hliða kjarnorkuversins. Erlent 17.8.2024 22:44
Mesta rúmmálið sem hefur safnast frá því að gosin hófust Enn er óbreytt staða á Reykjanesi og líklegt að annað hvort eldgos eða kvikuinnskot geti hafist á hverri stundu. Meiri virkni er í dag en í gær en ekkert stórt stökk að sögn Minneyjar Sigurðardóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Enn safnast kvika undir Svartsengi. Innlent 17.8.2024 22:09
Eru að slökkva í síðustu glæðunum í Somerset Slökkviliðiðið í London hefur nú náð tökum á eldi í Somerset húsi en tilkynnt var um eld þar um hádegisbil í dag. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að um 125 slökkviliðsmenn hafi verið kallaðir að vettvangi í dag til að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því slökkva í síðustu glæðunum í þaki hússins. Erlent 17.8.2024 20:35
Rafbílaeigendur með sínar leiðir til að svindla Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir að rafmagnsbílaeigendur eigi það til að vera nokkuð lævísir við að leggja í hleðslustæði án þess að greiða bílastæðagjald og án þess að greiða fyrir hleðslu. Framkvæmdastjóri Ísorku segir fyrirtækið verða af tekjum vegna þessa. Innlent 17.8.2024 20:31
Kjörís gaf nokkur tonn af ís í dag Mörg tonn af ís runnu ofan í þá tuttugu þúsund gesti, sem heimsóttu Kjörís í Hveragerði í dag á Ísdegi fyrirtækisins þar sem allir gátu fengið eins mikið af ókeypis ís eins og þeir vildu. Nokkrir furðulegir ísar voru á boðstólnum, til dæmis laxaís, harðfiskís og sinnepsís. Innlent 17.8.2024 20:04
Kuldakastinu muni fylgja töluverð úrkoma Sjaldséð snjókoma er í kortunum í fjöllum Norðanlands á morgun. Veðurfræðingar telja nokkuð ljóst að úr þessari spá rætist. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir allt eðlilegt í íslensku veðurfari en viðurkennir þó að það sé frekar óvanalegt að fá svona kuldakast í ágúst. Rætt var við Harald í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Veður 17.8.2024 19:56
Hamas segir sáttasemjara „selja blekkingar“ Alls létust 18 í loftárás Ísraela á Gasa í dag. Aðeins nokkrum klukkutímum eftir að sáttasemjarar frá Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar luku tveggja daga viðræðum um vopnahlé á Gasa. Unnið hefur verið að samkomulaginu í nokkra mánuði. Erlent 17.8.2024 18:19
Ný lágvöruverðsverslun áskorun og tónlistarframleiðsla Magga Mix Fjöldi fólks lagði leið sína í nýja lágvöruverðsverslun sem var opnuð í Kópavogi í dag. ASÍ bindur vonir við að verslunin veiti aðhald og aðrir líti á verð hennar sem áskorun. Innlent 17.8.2024 18:01
„Ekki sést á þessari öld“ Veðurspákort fyrir morgundaginn eru landanum ekki náðug eins og svo oft áður þetta rigningarsumar. Hins vegar er það ekki rigning sem búist er við á morgun. Spáð er slyddu og snjókomu á morgun vestantil á Norðurlandi og á Hornströndum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir svona spá ekki hafa sést á þessum árstíma á þessari öld. Veður 17.8.2024 15:53
Haraldur baunar á forstjóra Landsvirkjunar Haraldur Þór Jónsson, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ósammála fullyrðingum Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, um umfangsmikið samráð við hagaðila tilætlaðs vindorkuvers í Búrfellslundi við Vaðöldu. Haraldur vænir Landsvirkjun um vindasöm vinnubrögð í stað vandasamra. Innlent 17.8.2024 15:31
Eldur logar í frægu listasafni í Lundúnum Eldur logar í hinu víðfræga Somerset-húsi í miðborg Lundúna og eru um 125 slökkviliðsmenn á vettvangi. Erlent 17.8.2024 14:39
Bílaröð ísþyrstra Löng bílaröð hefur myndast á þjóðveginum vestan Hveragerðis. Þangað hafa fjölmargir gert sér ferð á Blómstrandi daga sem fara fram núna um helgina í Hveragerði. Innlent 17.8.2024 14:28
Bændur opna bú sín á „Beint frá býli deginum“ Bændur í hverjum landshluta munu opna bú sín fyrir gestum og gangandi á morgun, sunnudag á „Beint frá býli deginum” þar sem boðið verður upp á allskonar smakk og kynningu á vörum bænda og búaliðs. Innlent 17.8.2024 14:04
Rekstraraðilar misvel undirbúnir Rekstraraðilar eru misvel búnir undir reglugerðarbreytingu sem gerir þeim skylt að bjóða upp á kynhlutlaus salerni. Varaforseti Trans Ísland segir of mikið gert úr málinu. Innlent 17.8.2024 13:28
Fylgjast náið með barnafjölskyldum í Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þá sem dvelja næturlangt í Grindavík mjög meðvitaða um þá hættu sem steðjar að. Barnaverndaryfirvöld fylgist með þeim fjölskyldum sem dvelji með börn í bænum. Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi en engin skjálftavirkni mælist enn. Innlent 17.8.2024 13:09
Rauðu örvarnar koma síðdegis til Keflavíkur Listflugsveit breska flughersins, Rauðu örvarnar, er væntanleg til Keflavíkurflugvallar síðdegis. Utanríkisráðuneytið segir núna að vegna flugskilyrða frá Bretlandi sé mjög ólíklegt að um verði að ræða eiginlega flugsýningu við komu sveitarinnar til Íslands. Innlent 17.8.2024 12:52