Fréttir
106 107 108 109 110 111 112 113 114 … 334 ›
Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Lægð stödd fyrir vestan okkur og úrkomusvæði frá henni fer yfir landið í dag með sunnan strekkingi. Í hugleiðingum veðurfræðings spáir mjög hvössum vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og hefur verið gefin út gul viðvörun vegna þess. Viðvörunin er í gildi frá klukkan átta til 15 í dag. Hiti verður líklega á bilinu 8 til 16 stig og verður hlýjast norðaustantil. Veður 4.9.2024 07:23
Sjö látnir í árásum Rússa á Lviv og utanríkisráðherrann að hætta Að minnsta kosti sjö létu lífið, þeirra á meðal þrjú börn, þegar Rússar gerðu loftárás á borgina Lviv í Úkraínu í nótt. Lviv er í vesturhluta landsins, nálægt landamærunum að Póllandi, og hefur að miklu leyti sloppið við átökin undanfarin misseri. Erlent 4.9.2024 07:05
Yfir áttatíu milljónir í reiðufé haldlagðar á landamærum Tollayfirvöld hafa það sem af er þessu ári lagt hald á tæplega 82,5 milljónir í reiðufé á landamærum Íslands. Það er meira fjármagn en haldlagt var á landamærum allt árið í fyrra þegar lagt var hald á rúmar 75 milljónir króna. Innlent 4.9.2024 07:03
Áforma 20 þúsund tonna laxeldi í Fjallabyggð Fyrirtækið Kleifar áformar eldi á ófrjóum laxi í Fjallabyggð en áætlað er að framleiðslugetan gæti orðið 20 þúsund tonn árlega, veltan 26 milljarðar króna og heildarfjárfestingin 30 milljarðar. Innlent 4.9.2024 06:46
Einn handtekinn í tengslum við líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi eða nótt mann í tengslum við líkamsárás í póstnúmerinu 104. Þolandi árásarinnar er sagður hafa hlotið minniháttar meiðsli. Innlent 4.9.2024 06:18
Útreikningur FÍB standist enga skoðun Færsla á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda þar sem flutningsgeta strætisvagns er borin saman við flutningsgetu einkabíla hefur vakið mikil viðbrögð. Reiknifræðingur segir útreikningana ekki standast skoðun sama hvernig á þá er litið. Innlent 3.9.2024 23:15
Fyrsta einkaflugvélin endaði sem sleði í Þingvallasveit Fyrsta einkaflugvél Íslendinga var nefnd Vífilsstaðaflugvélin og flaug hún fyrst á Íslandi sumarið 1930. Aðeins tveimur árum síðar taldi nýr eigandi best að nýta flugvélina með því að breyta henni í vélsleða. Innlent 3.9.2024 22:44
Fresta tónlistarhátíð eftir tilmæli frá lögreglu Stíflunni, tónlistarhátíð sem átti að fara fram í Árbæ um helgina, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Einn skipuleggjenda segir að ákveðið hafi verið að fresta Stíflunni eftir tilmæli frá lögreglu. Innlent 3.9.2024 22:07
Vistunardagar barna í gæsluvarðhaldi 520 á árinu Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir gríðarlegan vanda ríkja á Stuðlum, sérstaklega í neyðarvistun. Vistunardögum barna í gæsluvarðhaldi hefur fjölgað verulega frá árinu 2022. Hún segir álag á neyðarvistuninni valda því að ekki er hægt að sinna meðferðarhluta Stuðla eins vel og áður. Innlent 3.9.2024 21:06
Það hafi víst verið haft samráð og samtal Fyrrverandi innviðaráðherra hafnar því að ekki hafi verið haft samráð við húseigendur og leigjendur þegar unnið var að breytingum á húsaleigulöggjöfinni. Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda hafa lýst yfir mikilli óánægju með breytingarnar og kalla eftir nýrri löggjöf. Innlent 3.9.2024 20:46
Pósturinn dreifir áfengi Pósturinn hefur frá því í vor dreift áfengi fyrir Smáríkið, netverslun sem selur áfengi. Fólk sem fær áfengi sent heim með póstinum er krafið um rafræna auðkenningu við afhendingu. Innlent 3.9.2024 20:30
Boða hertar aðgerðir gegn vopnaburði Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og hefur skipað starfshóp sem á að skila tillögum að aðgerðum á næstu dögum. Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við og svara ákalli þjóðarinnar. Lögregla hefur aldrei lagt hald á eins mikið magn hnífa og annarra vopna og síðustu ár. Innlent 3.9.2024 19:33
Öll ríki Evrópu eru smáríki í alþjóðlegu samhengi Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu segir öll ríki Evrópu vera smáríki, sem verði undir í alþjóðlegri samkeppni vinni þau ekki nánar saman. Mikilvægi Íslands og Noregs hafi aukist eftir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Innlent 3.9.2024 19:21
Aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og mikilvægi EES-samningsins Dómsmálaráðherra boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna. Lögregla hefur lagt hald á hundruð vopna á síðustu árum. Rætt verður við forstjóra Barna- og fjölskyldustofu í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 3.9.2024 18:11
Nota málmleitartæki á busaballi MR Notast verður við málmleitartæki í öryggisgæslu á busaballi Menntaskólans í Reykjavík sem fer fram á fimmtudag. Rektor skólans segir viðbótina gerða til að ungmenni á ballinu upplifi sig örugg. Innlent 3.9.2024 16:57
Skjálfti að stærð fimm í Bárðarbungu Jarðskjálfti af stærð 5,0 reið yfir í Bárðarbunguöskju á fimmta tímanum í dag. Nokkur virkni hefur verið þar síðustu daga en engin merki um gosóróa. Fáir eftirskjálftar hafa mælst. Innlent 3.9.2024 16:50
Ákvörðun handan við hornið Dómsmálaráðherra ætlar að tilkynna ákvörðun sína varðandi Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara á allra næstu dögum. Þetta sagði hún eftir fund ríkisstjórnar í morgun. Innlent 3.9.2024 16:30
Enn einn eldflaugavísindamaðurinn dæmdur í fangelsi Alexander Shiplyuk, eldflaugavísindamaður, var í morgun dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Rússlandi. Hann er að minnsta kosti fjórði vísindamaðurinn sem komið hefur að þróun nýrra ofurhljóðfrárra eldflauga Rússa sem dæmdur er í fangelsi. Erlent 3.9.2024 16:13
„Ég ætla ekki að fara með þér niður í bæ ef þú ert með hníf“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir mikilvægt að skólasamfélag, heimilin og allt samfélagið komi að þjóðarátaki gegn vopnaburði og ofbeldi meðal ungmenna. Jafningjastuðningu sé einnig mikilvægur. Besta forvörnin fyrir ungmennin sé þó alltaf að ganga ekki með vopn á sér. Afleiðingarnar af því geti verið svo alvarlegar. Innlent 3.9.2024 15:01
Þénuðu hvorki né eyddu meiru en 550 þúsund Eiríkur Ingi Jóhannsson og Viktor Traustason, sem báðir gáfu kost á sér til embættis forseta Íslands, eyddu hvorki né þénuðu meiru en 550 þúsund krónum í tengslum við framboð sín. Þeir hafa báðir skilað inn yfirlýsingu þess efnis til Ríkisendurskoðunar. Innlent 3.9.2024 14:47
Börnin sem borðuðu kannabis-bangsana enn á spítala Börnin sem flutt voru á slysadeild eftir að hafa borðað gúmmíbangsa með THC eða kannabis eru enn á spítala en ekki talin í lífshættu. Börnin eru yngri en tíu ára gömul. Valtýr Stefánsson Thors yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir þau vita hvernig börnin komust í bangsana. Hann á von á því að börnin verði útskrifuð fljótlega. Innlent 3.9.2024 14:34
Allt á suðupunkti í flokki utanríkisráðherrans Moteraterne, flokkur Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur, er í krísu og hefur vinnustaðasálfræðingur verið kallaður til til að bregðast við eitraðri vinnustaðamenningu sem sögð er viðgangast innan flokksins. Þá hefur verið ákveðið að koma upp nafnlausu ábendingakerfi þar sem hægt verður að tilkynna um óæskilega háttsemi, áreitni eða ofbeldi í kjölfar hneykslismála sem upp hafa komið hjá flokknum. Erlent 3.9.2024 14:10
Stuðlar orðnir að gæsluvarðhaldsfangelsi fyrir börn Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við stöðu sem upp sé komin á Stuðlum sem nái ekki að sinna hlutverki sínu sem meðferðarúrræði vegna þess að meðferðarheimilið sé orðið að gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún hefur mikla trú á samfélagslögreglu til að bregðast við vopnaburði barna. Innlent 3.9.2024 14:06
Skýr mynd komin af atburðum á Skúlagötu Lögregla telur sig vera komna með skýra mynd af atburðum á Skúlagötu á menningarnótt, þegar sautján ára stúlka varð fyrir stunguárás sem dró hana til dauða. Innlent 3.9.2024 14:00
Undrandi að enn séu seldar íshellaferðir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir það koma sér á óvart að enn sé verið að selja ferðir í íshella, eftir slysið í íshellinum á Breiðamerkurjökli í síðasta mánuði. Hann spurði á ríkisstjórnarfundi í morgun hvort ástæða væri til að stöðva slíkar ferðir að sumarlagi. Innlent 3.9.2024 13:55
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3.9.2024 13:12
Tæki marga mánuði fyrir hraun að ná innviðum Engir innviðir eru í hættu á Reykjanesskaga miðað við hraða hraunflæðis. Fastjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands segir að innflæði í kvikuhólfið undir Svartsengi sé jafn mikið og flæðir úr í eldgosinu. Hættumat verður uppfært síðar í dag. Innlent 3.9.2024 12:52
Mál tveggja áfengisnetverslana komin á borð ákærusviðs Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á kærum á hendur tveimur netverslunum sem selja áfengi er lokið. Mál þeirra eru nú á borði ákærusviðs embættisins. Innlent 3.9.2024 12:41
„Við erum búin að sitja í ríkisstjórn þar sem við höfum gefið ýmislegt eftir“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn þurfa að leita í ræturnar. Óánægju kjósenda megi meðal annars rekja til þess að flokkurinn hafi þurft að lúffa í ýmsum málaflokkum í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi. Innlent 3.9.2024 12:36
Fjörutíu og sjö fallnir og rúmlega tvö hundruð særðir í skotflaugaárás Að minnsta kosti 47 féllu og 206 eru særðir eftir að tvær skotflaugar hæfðu skóla, þar sem nýir hermenn fá þjálfun, og sjúkrahús í Poltava í Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir marga hafa lent undir braki húsa sem skemmdust í árásinni. Erlent 3.9.2024 11:54