Skroll-Viðskipti

Ekki fjallað um virkjanaleyfi vegna ónægra upplýsinga
Orkustofnun fjallar ekki um virkjanaleyfi fyrir HS orku fyrr en fyrirtækið hefur fært henni frekari gögn um nýtingarþol jarðhitasvæðisins úti á Reykjanesi. Málið hefur verið í höndum HS orku síðan í mars.

Árni Páll vill lengja rétt til atvinnuleysisbóta
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, vill að tíminn sem fólk á rétt til atvinnuleysisbóta verði lengdur tímabundið úr þremur árum í fimm. Þetta kom fram á samráðsfundi hans með aðilum vinnumarkaðarins sem haldinn var 16. júní síðastliðinn.

Skaðabótamál gegn fyrrverandi stjórnendum Landsbankans í bígerð
Tvö skaðabótamál slitastjórnar Landsbankans gegn fyrrverandi stjórnendum bankans eru á leið til dómstóla. Skaðabótakröfurnar í málunum skipta tugum milljarða, en ítrasta krafan í stærra málinu nemur um 20 milljörðum króna.

Tilboð Magma dugar ekki VG
Tilboð Magma Energy um að ríkið eignist forkaupsrétt í hlut félagsins í HS Orku dugar ekki að mati Atla Gíslasonar fulltrúa Vinstri grænna í iðnaðarnefnd. Hann vill að orkuauðlindir landsins séu ótvírætt í eigu opinberra aðila.

Vestia áhugaverður fjárfestingarkostur
Framtakssjóður Íslands, fjárfestingarfélag lífeyrissjóðanna, hefur keypt eignaumsýslufélagið Vestia af Landsbankanum á tæplega tuttugu milljarða króna. Inni í Vestia eru nokkur af þekktustu fyrirtækjum landsins.

Bankarnir „teknir yfir af glæpamönnum“
Davíð Oddsson seðlabankastjóri tjáði mönnum sumarið 2008 að íslensku bankarnir hefðu verið „teknir yfir af glæpamönnum", sem ætluðu sér að gera Ísland gjaldþrota. Þetta kemur fram á nýrri vefsíðu Björgólfs Thors sem opnaði í dag.

Töpuðu miklu á Humac en réðu síðan forstjórann í lykilstöðu
Íslandsbanki þurfti að afskrifa rúmlega 800 milljónir króna vegna lána til Humac, sem átti og rak Apple-umboðið, en nú hefur Íslandsbanki ráðið fyrrverandi forstjóra þessa sama fyrirtækis, Humac, í lykilstöðu hjá bankanum.

Skuldir borgarinnar 360 prósent af árstekjum
Skuldir Reykjavíkurborgar nema 360 prósentum af árstekjum borgarinnar. Ef hugmyndir að nýjum sveitarstjórnarlögum verða að veruleika mega sveitarfélög ekki skuldsetja sig meira en sem nemur 150 prósentum af árstekjum þeirra.

Icebank gerði kröfu um greiða gegn greiða og FME rannsakar
Icebank keypti fjárfestingarfélagið Teig af Runólfi Ágústssyni á annað hundrað milljónir króna gegn því skilyrði að hann notaði söluandvirðið til að fjárfesta í Icebank. Fjármálaeftirlitið er að rannsaka heildarviðskipti með hlutabréf í bankanum nokkur ár aftur í tímann.

Skilanefnd og slitastjórn á ofurlaunum
Launakostnaður þrotabús Glitnis fyrstu þrjá mánuði þessa árs vegna 5 starfsmanna skilanefndar- og slitastjórnar nemur 103 milljónum króna. Það gera rúmlega tuttugu milljónir á mann, þar sem hver hefur að jafnaði um sjö milljónir króna á mánuði.

Jóhanna: „Erum líklega að ná samkomulagi við AGS“
Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin sé að ná samkomulagi við Alþjóðgjaldeyrissjóðinn um þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar fyrir Ísland.

Sigmundur Davíð vel lofaður
Sambýliskona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, á 1,3 milljarða króna í hreina eign, ef marka má auðlegðarskattinn sem hún greiddi.

Kaupþingsfólkið með stærstu skuldirnar með minnstan greiðsluvilja
Margir lykilstarfsmenn Kaupþings sem voru með hæstu lánin eru þeir sem sýna minnstan greiðsluvilja og hafna því að þurfa að greiða til baka lánin, en slitastjórn bankans hefur höfðað mál gegn áttatíu fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings vegna lána sem þeir fengu til hlutabréfakaupa.

ESB undir þrýstingi að refsa Íslandi vegna makrílveiðanna
Mikill þrýstingur er nú á stjórn Evrópusambandsins um að beita Íslendinga og Færeyingar refsiaðgerðum vegna makrílveiða þessara þjóða.

Kyrrsettu 111 milljónir í eigu Jóns Ásgeirs
Slitastjórn Glitnis banka hf. fékk í dag úrskurð um alþjóðlega kyrrsetningu í sambandi við kröfur Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Slitastjórn Glitnis segir að kyrrsetningin komi til vegna millifærslna sem framkvæmdar voru daginn eftir að eignir Jóns Ásgeirs voru kyrrsettar í Bretlandi þann 11. maí síðastliðinn.

Magma opið fyrir því að selja erlendum fjárfesti hlut í HS Orku
Magma upplýsti kanadísku kauphöllina um vilja til að selja hlut í HS Orku til annarra erlendra fjárfesta. Fyrirtækið bauð lífeyrissjóðunum fyrir aðeins mánuði að kaupa fjórðungshlut í HS Orku, en ríkissjóður hafði hvatt til þess á fyrri stigum. Þetta var eftir að skrifað hafði verið undir kaup á meirihluta í HS Orku.