Lögreglumál
40 41 42 43 44 45 46 47 48 … 274 ›
Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er kominn í leitirnar. Innlent 16.1.2024 19:44
Fjórir bílar skemmdust í árekstri á Granda Harður árekstur varð á Grandagarði í Reykjavík í dag þegar bíl var keyrt í veg fyrir annan. Bíllinn kastaðist á tvo aðra bíla og fór utan í hús. Engin slys urðu á fólki. Innlent 16.1.2024 15:15
Reyna að koma á rafmagni og heitu vatni í austari hluta bæjarins Sérsveit ríkislögreglustjóra og sérþjálfaðir viðbragðsaðilar munu fylgja starfsmönnum HS Veitna inn í Grindavík í dag. Starfsmenn HS Veitna ætla að reyna að koma á vatni og rafmagni í austari hluta bæjarins. Innlent 16.1.2024 13:21
„Þetta lítur ekki nógu vel út“ Lögreglustjóri á Suðurnesjum segir ekki mikið um nýjar sprungur inni í Grindavík. Þær sprungur sem fyrir voru hafi hinsvegar stækkað. Forgangsatriði dagsins er að koma rafmagni og hita á austurhluta bæjarins. Innlent 16.1.2024 13:11
Lögregla lýsir eftir Jóhanni Inga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Inga Ögmundssyni, 30 ára. Innlent 16.1.2024 12:50
Tilkynnti sjálfan sig fyrir ölvunarakstur Maður var handtekinn í gær fyrir ölvunarakstur. Maðurinn hafði sjálfur tilkynnt sig til lögreglu eftir að hafa áttað sig á að hann gæti ekki haldið akstri áfram sökum ölvunar og vildi ekki stofna öðrum í hættu. Manninum var sleppt að lokinni blóðsýnatöku. Innlent 16.1.2024 06:55
Margþætt ofbeldi yfir tvo daga leiddi manninn til dauða Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir er talin hafa banað tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík með margþættu ofbeldi í september síðastliðnum. Ákæran hefur verið birt Dagbjörtu og fréttastofa hefur hana undir höndum. Innlent 15.1.2024 17:33
„Met stöðuna tiltölulega örugga“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór ásamt aðstoðarmönnum sínum í skoðunarferð um Grindavík í morgun. Hann segir götur í bænum aflagaðar og nýjar sprungur bersýnilegar. Forgangsverkefni sé að koma rafmagni aftur á. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið segist hann bjartsýnn fyrir hönd Grindvíkinga. Innlent 15.1.2024 15:40
Íslenskt par fannst látið í íbúð á Spáni Íslenskt par, karl og kona, fannst látið í síðustu viku í íbúð í bænum Torrevieja á Spáni. Innlent 15.1.2024 15:22
Eigandi B5 vill hafa hendur í hári brennuvarga Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðarins B5 við Bankastræti og Nýju vínbúðarinnar, hefur heitið 100 þúsund krónum hverjum þeim sem getur komið með traustar ábendingar um hverjir voru að verki í Skipholti sunnudaginn 14. janúar og reyndu að kveikja í Brim hóteli Innlent 15.1.2024 11:07
Vaktin: Lítil virkni í einu gosopi Eldgos hófst norðan Grindavíkur, suðsuðaustan Hagafells, rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun, sunnudag. Fyrst opnaðist sprunga sem lá að stærstum hluta norðan varnargarða, en síðar opnaðist önnur rétt norðan byggðarinnar. Innlent 15.1.2024 04:17
Bæjarbúar ekki bognir heldur brotnir Bæjarstjóri Grindavíkur segir stöðuna sem upp er komin hörmulega. Hörmulegt sé að horfa upp á húsin verða eldinum að bráð. Hús Fannars stendur við Austurhóp og er eitt þeirra húsa sem hraunið flæðir í átt að. Hann segir íbúa Grindavíkur ekki bogna heldur brotna eftir það sem á hefur gengið. Nú treysti hann á yfirvöld að grípa hratt til aðgerða. Innlent 14.1.2024 19:48
„Vinsamlegast gefið okkur vinnufrið“ Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður. Innlent 14.1.2024 10:28
Eldgos er hafið Eldgos er hafið norðan við Grindavík. Fyrsta mat á staðsetningu er nálægt Sundhnúk klukkan 7:57 í morgun. Innlent 14.1.2024 08:00
Unglingur hótaði hópi með hnífi Talverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um hóp ungmenna þar sem einn af hópnum hafði ógnað öðrum hópi ungmenna með hnífi í Kópavogi. Ungmennin voru á aldrinum fjórtán til fimmtán ára. Lögregla afgreiddi málið á staðnum þar sem hnífur var haldlagður og tilkynning send á barnaverndarnefnd. Innlent 14.1.2024 07:25
Gist í um níutíu húsum í Grindavík Gist var í um níutíu húsum í Grindavík og gengur rýming bæjarins vel. Innlent 14.1.2024 05:58
Vaktin: „Ég er að horfa á húsið mitt brenna“ Eldgos hófst norðan Grindavíkur, suðsuðaustan Hagafells, klukkan 7:57 í morgun, sunnudag. Hraun náði til byggða í Grindavík á öðrum tímanum. Innlent 14.1.2024 04:29
Myndir sýna gríðarlegt tjón á Hringbraut Af ljósmyndum af vettvangi að dæma varð mikið eignatjón þegar ungur maður ók á fjölda bíla á Hringbraut í morgun. Ljóst er að einhverjir bílanna eru ónýtir. Innlent 13.1.2024 13:51
Almannavarnir boða til upplýsingafundar Upplýsingafundur almannavarna verður haldinn klukkan 16:30 í dag. Farið verður yfir áhættumat sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur unnið að undanförnu. Innlent 13.1.2024 13:34
Gætum séð aukningu í svipuðum aðgerðum og á Akureyri Handtaka manns á Akureyri sem er tengdur ISIS-hryðjuverkasamtökunum er einsdæmi hér á landi. Afbrotafræðingur segir aðgerðum sem þessari geta fjölgað hér á landi á næstu árum með fjölgun flóttamanna. Innlent 13.1.2024 13:01
Ekki hægt að réttlæta áframhaldandi leit Ekki var hægt að réttlæta áframhaldandi leit að manni sem féll niður um sprungu í Grindavík í gær vegna lífshættulegra aðstæðna við björgun, að sögn lögreglustjóra. Svipað hættulegar sprungur finnist víða í Grindavík. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í bænum. Innlent 13.1.2024 12:10
Kallar eftir tekjutengdum sektum eftir að ekið var á átta bíla Snemma í morgun ók ungur maður, sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, utan í átta kyrrstæðar bifreiðar á Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur. Íbúi við Hringbraut lýsir ófremdarástandi í götunni. Innlent 13.1.2024 12:08
Börn voru í hinum bílnum Lögregla á Suðurlandi rannsakar enn tildrög banaslyss sem varð á þjóðveginum við Skaftafell í gærmorgun. Börn eru á meðal þeirra sex sem flutt voru með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi eftir slysið. Innlent 13.1.2024 11:28
Fékk að gista í fangaklefa eftir að hafa ógnað húsráðanda með hnífi Í gærkvöldi var tilkynnt um hávaða í fjölbýli í Reykjavík. Þegar lögreglu bar að garði tilkynnti gestur í íbúð í húsinu að maður hefði ráðist á húsráðanda og ógnað með hnífi. Maðurinn var að endingu handtekinn og vistaður í fangageymslu. Innlent 13.1.2024 07:51
Hætta leitinni að manninum Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að leitin að manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík sé hætt vegna hve erfiðar aðstæður eru. Innlent 12.1.2024 19:14
Fjölskyldufaðir á Akureyri talinn meðlimur Íslamska ríkisins Þrír karlmenn voru handteknir í lögregluaðgerðum á Akureyri í morgun. Einn þeirra hefur verið fluttur til Grikklands ásamt eiginkonu sinni og sex börnum sem eru á aldrinum 6 mánaða til 16 ára. Sá er talinn vera meðlimur Íslamska ríkisins, ISIS. Innlent 12.1.2024 16:13
Lést eftir hátt fall við Landspítalann Sjúklingur á Landspítalanum í Fossvogi lést við hátt fall út um glugga spítalans um eftir hádegið í dag. Ekki er grunur um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Innlent 12.1.2024 16:13
Tveir létust í slysinu Tveir erlendir ferðamenn létust í alvarlegu umferðarslysi sem varð laust fyrir klukkan tíu í morgun á Þjóðvegi 1 skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli. Tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðum áttum skullu saman, en mikil ísing var á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 12.1.2024 13:48
Hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag Leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík er hafin á ný. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir leit ganga vel og að hann sé hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag. Innlent 12.1.2024 12:15
Hált á vettvangi árekstursins Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir mikla hálku vera við Skaftafell þar sem tveir fólksbílar skullu saman í morgun og átta slösuðust. Tveir eru alvarlega slasaðir og fólkið hefur enn ekki verið flutt á sjúkrahús. Innlent 12.1.2024 12:07