Straumsvíkurmálið

Fréttamynd

Reki fyrir­tæki og séu ná­lægt því að missa allt frá sér

„Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu

Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í  Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 

Innlent
Fréttamynd

„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“

Lögregluþjónn hjá rannsóknardeild spyr sig hvers vegna svona mikil eftirspurn sé eftir kókaíni og amfetamíni á Íslandi enda ekki um ódýr fíkniefni að ræða. Þegar sé búið að slá met í fíkniefnahaldlagninu í ár en met var síðast slegið í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni

Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna.

Innlent