Stj.mál
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 187 ›
Engar séraðgerðir vegna verðbólgu Ríkisstjórnin grípur ekki til sérstakra aðgerða þótt verðbólga sé meiri en hún hefur verið undanfarna 40 mánuði og hafi farið fram úr þolmörkum Seðlabankans. Innlent 14.10.2005 06:42
Tekst ekki að ljúka hringvegi Þrátt fyrir að 15 milljörðum króna af Símapeningum eigi að verja til vegamála á næstu fimm árum tekst ekki að ljúka malbikun hringvegarins. Samkvæmt langtímaáætlun til ársins 2014 á heldur ekki að klára hringinn fyrir þann tíma og virðist sem enn muni líða minnst áratugur þar til þau tímamót verða. Innlent 14.10.2005 06:42
Hafi tapað miklu á lánabreytingum ASÍ segir hjón á verkamannalaunum með dæmigert íbúðarlán frá Byggingasjóði verkamanna hafa tapað eitt hundrað þúsund krónum frá breytingunum á lánamarkaðnum í fyrra. Segir ASÍ að greiðslubyrgði þeirra væri um fimm þúsund krónum minni á mánuði ef engar breytingar hefðu orðið á lánamarkaðnum. Innlent 14.10.2005 06:42
Davíð skoðaði Heimssýningu í Japan Davíð Oddsson utanríkisráðherra skoðaði í dag Heimssýninguna í Aichi í Japan. Hann fór meðal annars í norræna sýningarskálann og þann japanska. Á morgun mun utanríkisráðherra eiga fund með Nobutaka Machimura, utanríkisráðherra Japans. Á miðvikudaginn tekur utanríkisráðherra þátt í viðskiptaráðstefnu þar sem íslensk fyrirtæki munu kynna starfsemi sína. Innlent 14.10.2005 06:41
Samskiptin verða áfram góð "Ég tel að hvor sem niðurstaðan verður í þessum kosningum verði samskipti Íslendinga og Norðmanna áfram góð," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þegar leitað var álits hjá honum í gærkvöldi en þá var búið að telja um helming atkvæða. Flest benti þá til þess að stjórn Kjell Magne Bondevik myndi falla. Innlent 14.10.2005 06:42
Stefnir í sigur vinstriflokkanna Norðmenn kusu til þings í dag og skoðanakannanir sýna að mjótt er á mununum milli ríkisstjórnar Kjells Magnes Bondeviks og vinstri flokkanna í stjórnarandstöðu. Samkvæmt útgönuspám virðist stjórnin fallin og það nokkuð afgerandi. Erlent 14.10.2005 06:42
Kjarasamningar séu í uppnámi Kjarasamningar eru í uppnámi að mati ASÍ vegna gríðarlegrar verðbólgu og hækkunar á vísitölu neysluverðs. Verðbólgan hefur ekki verið meiri í 40 mánuði. Innlent 14.10.2005 06:42
Sættir sig við takmarkað rými Foreldraráð í Korpuskóla hefur sætt sig við að nýi skólinn rúmi ekki öll börnin í hverfinu en þrír efstu árgangarnir þurfa að vera í þar til gerðum skúrum sem komið hefur verið fyrir við skólann. Foreldraráðið treystir á að formaður fræðsluráðs og skólastjórinn muni sjá til þess að betri skúrar verði fengnir í stað þeirra sem nú eru. Innlent 14.10.2005 06:41
Verðbólga ekki meiri í 40 mánuði Verðbólga hefur ekki meiri í 40 mánuði að því er fram kemur í vef Alþýðusambands Íslands. Verðbólga mælist 4,8 prósent nú í september og er komin langt yfir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Við þessar aðstæður ber bankanum að gera ríkisstjórninni opinberlega grein fyrir ástæðum verðbólgunnar og leiðum til úrbóta. Innlent 14.10.2005 06:42
Mikil spenna í kosningum í Noregi Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar í dag. Stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkarnir eru hnífjafnir í skoðanakönnunum og enginn treystir sér til að spá fyrir um úrslitin. Erlent 14.10.2005 06:41
Koma að hreinsistöð í Pétursborg Norræni fjárfestingarbankinn og umhverfisfjármögnunarfyrirtækið NEFCO eru meðal stærstu þátttakenda í umhverfisverkefni í Pétursborg í Rússlandi. Þar er hreinsistöð fyrir hartnær eina milljón íbúa nú tilbúin til notkunar. Talið er að hreinsistöðin muni hafa mikil áhrif á vatnsgæði í Finnskaflóa sem og annars staðar í Eystrasaltinu. Erlent 14.10.2005 06:42
Guðný Hildur í 3. til 6. sæti Guðný Hildur Magnúsdóttir félagsráðgjafi hefur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja til sjötta sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Innlent 14.10.2005 06:42
Verðbólgumörk Seðlabankans rofin Verðbólgumörk Seðlabankans hafa verið rofin með áberandi hætti að mati greiningardeildar Íslandsbanka. Verðbólgan á landinu er 7,6 prósent miðað við vísitöluhækkun síðustu þriggja mánaða, en 4,8 prósent miðað við síðustu tólf mánuði. Innlent 14.10.2005 06:41
Kosið um sameiningu eftir um mánuð Þriðjungi kosningabærra manna í landinu býðst að kjósa um sameiningu sveitarfélaga eftir fjórar vikur. Kosið verður meðal annars um að gera Eyjafjarðarsvæðið að einu sveitarfélagi, Árnessýslu að tveimur og um sameiningu Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandar. Innlent 14.10.2005 06:42
Bjarni ekki í varaformanninn Bjarni Benediktsson þingmaður ætlar ekki að bjóða sig fram sem varaformann Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. "Ég var aldrei þeirrar skoðunar að ég ætti að fara í þetta framboð," segir Bjarni, sem er formaður allsherjarnefndar Alþingis. Innlent 14.10.2005 06:41
Líklega stórsigur Koizumis Útgönguspár benda til þess að flokkur Koizumis, forsætisráðherra Japans, hafi unnið stórsigur í þingkosningunum sem fram fóru í dag. Endanleg úrslit verða ekki tilkynnt fyrr en á morgun en spár sýna að LPD, flokkur Koizumis, hafi unnið á bilinu 285-325 þingsæti af 480. Erlent 14.10.2005 06:41
Kjörsókn góð í Japan Japanir gengu til þingkosninga í dag. Þar er nú komið kvöld og kjörsókn hefur verið góð. Búist er við að Junichiro Koizumi forsætisráðherra styrki sig í sessi en kannanir sýna litla fylgissveiflu flokkanna. Erlent 14.10.2005 06:41
Bjarni og Árni styðja Þorgerði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir virðist hafa yfirgnæfandi stuðning í þingliði sjálfstæðismanna til að verða varaformaður flokksins. Bæði Bjarni Benediktsson og Árni M. Mathiesen sem voru taldir líklegastir til að fara gegn henni hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við hana. Innlent 14.10.2005 06:41
Gæti ráðist á örfáum atkvæðum Úrslit í þingkosningunum í Noregi gætu oltið á örfáum atkvæðum, svo lítill er munurinn á fylgi vinstri flokkanna og bandalagi miðju- og hægriflokkanna samkvæmt skoðanakönnunum, daginn fyrir kosningar. Erlent 14.10.2005 06:41
Koizumi mun láta af embætti Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, sagði nú síðdegis að hann myndi láta af embætti þegar kjörtímabili ríkisstjórnar hans lýkur á næsta ári, þrátt fyrir að allt stefni í öruggan sigur flokks hans í kosningunum sem fram hafa farið í Japan í dag. Erlent 14.10.2005 06:41
Björn mun sitja út kjörtímabilið Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir allar vangaveltur um að hann ætli ekki að sitja út þetta kjörtímabil úr lausu lofti gripnar. Á pistli á heimasíðu sinni segir Björn að hann muni fyrir þingkosningarnar 2007 taka ákvörðun um hvort hann bjóði sig fram að nýju eða snúi sér að öðru. Innlent 14.10.2005 06:41
Björn ekki á útleið "Fyrir þingkosningarnar 2007 mun ég taka ákvörðun um, hvort ég býð mig fram að nýju, eða sný mér að öðru. Allar vangaveltur um, að ég ætli ekki að sitja út þetta kjörtímabil eru úr lausu lofti gripnar," segir Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, í pistli á heimasíðu sinni. Innlent 14.10.2005 06:41
Rafmagnað andrúmsloft á kjördag Nokkur atkvæði geta ráðið úrslitum um það hvort mynduð verður hægri- eða vinstristjórn að loknum kosningum til norska Stórþingsins sem fram fara í dag. Erlent 14.10.2005 06:41
Vill eitt af efstu sætunum Sóley Tómasdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík næsta vor og sækist eftir einu af efstu sætunum. Sóley segist leggja áherslu á jafnréttismál, dagvistarmál, menntamál og íþrótta- og tómstundamál. Innlent 14.10.2005 06:41
Mubarak hlaut 88,6% atkvæða Hosni Mubarak sigraði með yfirburðum í fyrstu lýðræðislegu forsetakosningunum í Egyptalandi. Mubarak hlaut 88,6% atkvæða og hefur því brátt sitt fimmta kjörtímabil sem forseti. Erlent 14.10.2005 06:41
Mikilvægt að koma á jafnvægi Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs telur brýnt að gripið verði til samræmdra aðgerða til að tryggja efnahagslegan stöðugleika og átelur ríkisstjórnina fyrir andvaraleysi. Þetta er meðal þess sem fram kom á flokksráðsfundi vinstri grænna dagana 9. til 10. september. Innlent 14.10.2005 06:41
Vaxandi yfirgangur framkvæmdavalds Formaður Vinstri - grænna segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um hvernig verja beri ágóðanum af símasölunni dæmi um vaxandi yfirgang framkvæmdavaldsins gagnvart Alþingi. Þarna sé verið að ráðstafa gríðarlegum fjármunum í eigu þjóðarinnar fram yfir næstu tvennar alþingiskosningar, án þess að málið sé rætt annars staðar en í stjórnarflokkunum. Innlent 14.10.2005 06:41
Spenna fyrir kosningarnar í Noregi Mikil spenna ríkir fyrir þingkosningar í Noregi sem fara fram á mánudaginn. Nýjar skoðanakannanir benda til þess að ríkisstjórn Kjells Magne Bondeviks bæti við sig fylgi og nú virðist fylgi hennar og bandalags stjórnaranstöðuflokkanna nærri hnífjafnt. Innlent 14.10.2005 06:41
Árni gefur ekki kost á sér Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ætlar ekki að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag segist Árni ætla að styðja Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra í varaformannskjörinu enda komi það sér best fyrir flokkinn. Innlent 14.10.2005 06:41
Prófkjörið fer of hratt af stað Júlíus Vífill Ingvarsson hefur enn ekki tilkynnt um framboð sitt til prófkjörs sjálfstæðisflokksins. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Júlíus mjög fljótlega gera grein fyrir því hvaða sæti hann hyggðist taka. Innlent 14.10.2005 06:41