Annáll 2023

Annálar ársins 2023: Það góða, vonda og ljóta
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur á síðustu vikum rifjað upp árið sem er að líða.

Bak við tjöldin: Mistök og hlátursköst
Viðmælendur í hláturskasti, alls konar mistök og óþolandi tæknivesen. Við skyggnumst á bak við tjöldin hjá fréttastofunni í þessum síðasta annál ársins.

Þrautseigja Grindvíkinga
Föstudagskvöldið 10. nóvember var heilt bæjarfélag rýmt í skyndi eftir stanslausa skjálftahrinu. Eldgosið á Reykjanesskaga varði sögulega stutt og íbúar Grindavíkur vita lítið sem ekkert um framhaldið.

Njósnaloftbelgir, stríð og kafbátaleit
Meintur kínverskur njósnaloftbelgur, rándýr leit að kafbáti sem var á leið niður að skipinu Titanic og íburðarmikil athöfn við krýningu Bretlandskonungs.

Deilur um Kristján Loftsson og litla fræðslubók
Farsakennd atburðarás um hvalveiðar. Kristján Loftsson og konurnar í tunnunum. Krafa um afsökunarbeiðni í Karphúsinu og eftirtektarverðir Bomber jakkar Eflingarfólks. Óvænt útspil Heimis Más Péturssonar, sjókvíaeldi og hatrammar deilur um eina litla fræðslubók. Þetta eru deilur ársins 2023.

Þetta eru sorpfréttir ársins
Íslendingar tuðuðu sem aldrei fyrr yfir sorpmálum á árinu sem er að líða. Nýjar margskiptar sorptunnur vöfðust fyrir fólki sem er enn að reyna að muna hvort snakkpokinn fari í plast- eða pappatunnuna.

Eldar í ósamþykktu íbúðarhúsnæði og álag á rannsóknardeildinni
Hver eldurinn kviknaði á fætur öðrum í ósamþykktu íbúðarhúsnæði, sem leiddi til þess að fleiri en einn týndi lífi. Svo margir voru drepnir á árinu að miðlæg rannsóknardeild lögreglu hafði í sumar þrjú manndrápsmál til rannsóknar í einu. Hér verður farið yfir helstu verkefni viðbragðsaðila á árinu, sem er að líða.

Tryllingur í Kringlunni og martröð í Sóltúni
Verðbólga í hæstu hæðum og vextir líka. Allt er orðið svo ótrúlega dýrt en við gefum samt ekkert eftir í neyslunni. Hér lítum við yfir neytendaárið 2023.

Á tæpasta vaði: Deilur og drama á stjórnarheimilinu
Viðburðaríkt ár er að baki á sviði stjórnmálanna og ólga er kannski orð sem nær ágætlega utan um það. Ólga vegna kjaramála, verðbólgu, hvalveiða, laxeldis, stríðsreksturs á Gasa, bankasölu og í sjálfu stjórnarsamstarfinu. Við förum yfir liðið ár sem einkennist af deilum og dramatík.

Versta klúður ársins 2023
Öllum varð okkur á í messunni með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. Í þessari klúðuryfirferð fyrir árið 2023 ætlum við að varpa ljósi á feilsporin sem stigin voru.

Ástföngnu dúfurnar hans Magnúsar Hlyns
Ástfangnar dúfur, einstök vinátta og krummi sem elskar pönnukökur. Hver annar en Magnús Hlynur færir okkur fréttir af hundrað ára konu sem ætlar að fagna deginum með því að detta í það og heyrnarlausri kind? Hér er farið yfir nokkur gullkorn úr jákvæðustu fréttum ársins.

Gróðureldar um allan heim og asahláka á allra vörum
Árið byrjaði eins og það síðasta endaði: Með mestu kuldatíð í manna minnum. Svo tók við hin margumtalaða asahláka, sem setti samfélagið á Suðvesturhorni landsins nánast á hliðina. Svo var vont veður og lægðir fram á sumar og fjöldamörg snjóflóð féllu á Austfjörðum.

Þetta eru sigurvegarar ársins
Íslendingar unnu marga frækna sigra á árinu, saman og hver í sínu lagi. Í þessum fyrsta annál fréttastofunnar fyrir árið 2023 beinum við sjónum okkar að téðum sigrum; stórum, smáum og allt þar á milli.