Hernaður
1 2 3 4 5 6 7 8 … 54 ›
Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hvatt Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, til að horfa fram á við og taka næstu skref í átt að vopnahléi á Gasa, í kjölfar fregna af því að Ísraelsher hefði banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas. Erlent 18.10.2024 07:31
Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31
„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17.10.2024 11:35
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22
Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust. Erlent 16.10.2024 06:44
Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir vera að stofna nýtt herfylki sem skipað verður allt að þrjú þúsund mönnum frá Norður-Kóreu. Kim Jon Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur heitið Vladimír Pútín, kollega sínum, fullum stuðningi vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 15.10.2024 14:14
Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Heimildarmenn Washington Post innan bandaríska stjórnkerfisins segja Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hafa greint Joe Biden Bandaríkjaforseta frá því í samtali þeirra á dögunum að hann hefði í hyggju að ráðast gegn hernaðarskotmörkum í Íran til að hefna fyrir árásir Írana á Ísrael. Erlent 15.10.2024 12:10
Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar. Erlent 14.10.2024 15:29
Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist mögulega vilja siga þjóðvarðliði ríkisins eða bandaríska hernum, gegn „innri óvinum“. Fólki sem hann lýsti um helgina sem „öfga-, vinstri geðsjúklingum“ en slíka orðræðu hefur hann ítrekað notað um pólitíska andstæðinga sína. Erlent 14.10.2024 14:01
Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ísraelskir hermenn hafa ítrekað notað óbreytta Palestínumenn sem handsamaðir eru á Gasaströndinni sem mennska skildi, meðal annars með því að þvinga þá til að fara inn í byggingar og leita að sprengjum og gildrum. Tilfellum sem þessum hefur farið fjölgandi. Erlent 14.10.2024 10:19
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14.10.2024 06:48
Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Forsætisráðherra Ísraels krefst þess að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna dragi friðargæslulið þeirra frá Líbanon nú þegar. Tugir ríkja hafa fordæmt árásir Ísraela á friðargæsluliðana undanfarna daga. Erlent 13.10.2024 13:15
Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Palestínsk heilbrigðisyfirvöld segja að átta manna fjölskylda í Nuseirat-flóttamannabúðunum hafi fallið í loftárás Ísraela á miðri Gasaströndinni seint í gærkvöldi. Ísraelar hafa skipað hátt í hálfri milljón manna að rýma norðanverða Gasa. Erlent 13.10.2024 08:20
Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Japönsku samtökin Nihon Hidankyo sem voru stofnuð af eftirlifendum kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Verðlaunin fá þau fyrir baráttu sína fyrir kjarnorkuvopnalausum heimi og fyrir að sýna með eigin vitnisburði hvers vegna aldrei megi beita kjarnavopnum aftur. Erlent 11.10.2024 09:05
Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10.10.2024 23:09
Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, ræddust við í síma í gær, í fyrsta sinn í sjö vikur. Erlent 10.10.2024 07:37
Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Úkraínumenn gerðu í kvöld árás á vöruskemmu í sunnanverðu Rússlandi sem þeir segja að hafi hýst fjögur hundruð Shahed-sjálfsprengidróna. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi renna stoðum undir frásögn úkraínska hersins. Erlent 9.10.2024 22:34
Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ræða við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gegnum síma í dag um fyrirhugaðar árásir Ísrael á Íran. Erlent 9.10.2024 06:37
Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Hermenn frá Norður-Kóreu verða líklega sendir til liðs við rússneska hermenn í Úkraínu. Sex hermenn frá einræðisríkinu einangraða eru þar að auki sagðir hafa fallið í eldflaugaárás í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Erlent 8.10.2024 19:32
Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8.10.2024 17:58
Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah Ísraelsher gerði umfangsmiklar árásir á Líbanon í gær og sendi meðal annars fjölda herþota gegn um 120 skotmörkum í suðurhluta landsins. Þá voru skömmu síðar gerðar árásir á úthverfin suður af Beirút síðar um daginn. Erlent 8.10.2024 06:40
Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Flugmaður rússneskrar herþotu skaut á laugardaginn niður sjaldgæfan rússneskan dróna yfir Úkraínu. Svo virðist sem að Rússar hafi verið að nota drónann, sem er búinn tækni svo hann sést verr á ratsjám, til að varpa svifsprengjum á Úkraínu þegar þeir misstu stjórn á honum. Erlent 7.10.2024 21:33
Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Eitt ár er liðið frá innrás Hamas-samtakanna í Ísrael, þegar tólf hundruð voru myrt og 250 teknir föngnum og færðir í böndum inn á Gasaströndina. Erlent 7.10.2024 06:29
Lýsa nóttinni sem skelfilegri Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Erlent 6.10.2024 18:50
Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Talið er að hátt í þrjú þúsund Hezbollah-liðar hafi látið lífið eða verið limlestir ásamt óþekktum fjölda óbreyttra borgara þegar fjöldi símboða sprakk þann 17. september síðastliðinn. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem bar ábyrgð á verknaðinum sem hafði verið í undirbúningi í um tvö ár. Erlent 6.10.2024 12:23
Versnandi ástand í Pokrovsk Rússar gera ítrekaðar árásir á bæinn Pokrovsk í austurhluta Úkraínu og eru helstu innviðir bæjarins, þar sem um þrettán þúsund manns búa, ónýtir. Hersveitir Rússa eru um sjö kílómetra frá bænum, sem er mikilvæg birgðamiðstöð fyrir úkraínska herinn og óbreytta borgara í Dónetsk-héraði. Erlent 4.10.2024 15:12
Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 4.10.2024 11:00
Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 4.10.2024 00:12
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18
Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, er í heimsókn í Kænugarði í Úkraínu. Þetta er fyrsta opinbera ferð Rutte frá því hann tók við embættinu á þriðjudaginn en hún var ekki opinberuð fyrr en hann var kominn þangað í morgun. Erlent 3.10.2024 12:13