Ástin á götunni
Figo orðinn leikmaður Inter
Portúgalski miðjumaðurinn Luis Figo hefur skrifað undir tveggja ára samning við ítalska félagið Inter Milan en hann kemur frá spænska risaliðinu Real Madrid. Figo segist eiga nóg eftir í boltanum og hlakkar til að takast á við komandi verkefni hjá Inter.
U17 tapaði fyrir Noregi í dag
U17 landslið Íslands í knattspyrnu karla lenti í neðsta sæti síns riðils á Norðurlandamótinu. Það tapaði 1-0 fyrir Noregi á Kaplakrikavelli í dag. Íslensku strákarnir töpuðu þar með öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, skoruðu ekkert mark en fengu sjö á sig.
Pearce vill fá Malbranque
Forráðamenn Fulham hafa hafnað fimm milljón punda tilboði Man.City í franska miðjumanninn Steed Malbranque. Þetta er í annað sinn á tæpri viku sem Fulham hafnar tilboði frá Stuart Pearce og félögum.
Pandiani til Birmingham
Birmingham hefur loksins gengið formlega frá kaupum á sóknarmanni Uruguay, Walter Pandiani, sem eyddi stórum hluta síðasta tímabils á láni hjá félaginu og stóð sig mjög vel. Hinn 29 ára gamli Pandiani skrifaði undir þriggja ára samning við Birmingham og er kaupverðið talið vera um þrjár milljónir punda, en Pandiani kemur frá Deportivo á Spáni.
Saha verður frá næstu vikurnar
Louis Saha, framherji Man. Utd, verður frá næstu vikurnar og gæti farið svo að hann yrði ekki leikfær fyrr en í nóvember.

Meiðsli hjá Fylki en engin hjá Val
Valsmenn eiga ekki í neinum meiðslavandræðum fyrir undanúrslitaleikinn gegn Fylki í VISA bikarkeppninni í kvöld. Willum Þór Þórsson þjálfari Vals segir tíma kominn til að hið fornfræga bikarfélag Valur láti á sér bera í keppninni. Þorlákur Árnason þjálfari Fylkis segir alla þá menn sem hafa verið að spila í undanförnum leikjum séu leikfærir.
Coco í viðræðum við Newcastle
Francesco Coco, fyrrverandi leikmaður AC Milan og Barcelona, á nú í viðræðum við Newcastle United.

Valsmenn leiða í hálfleik
Valur leiðir 1-0 gegn Fylki þegar flautað hefur verið til hálfleiks í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Garðar Gunnlaugsson skoraði markið á 3. mínútu en leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40. Valsmenn hafa verið ögn sterkari í fyrri hálfleik og verið skynsamari.

Phil Neville til Everton
Phil Neville er genginn til lið við Everton frá Manchester United fyrir 3 milljónir punda. Phil Neville hefur leikið með United allan sinn ferilen. Phil, sem er 28 ára, hefur leikið 52 landsleiki fyrir Englands hönd og lék 392 leiki fyrir Manchester United

Garðar búinn að skora fyrir Val
Garðar Gunnlaugsson hefur komið Val 1-0 yfir gegn Fylki strax á 3. mínútu í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarnum. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hófst kl. 19:40. Mark Garðars kom eftir sendingu frá Bjarna Ólafi Eiríkssyni af vinstri kanti. Þetta er sjöunda mark Garðars fyrir Val í 4 leikjum í bikarkeppninni.
Garðar skorar aftur fyrir Val
Garðar Gunnlaugsson hefur skorað aftur fyrir Val sem er við það að tryggja sig í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla og er nú 2-0 yfir gegn Fylkir á Laugardalsvelli. Markið kom á 82. mínútu og hefur Garðar gert bæði mörk Vals. Daninn Christian Christiansen sem kom inn sem varamaður gerði stutt stopp á vellinum og hefur fengið rautt spjald.

Stoke fær Luke Chadwick
Enska knattspyrnuliðið Stoke City hefur fengið lánaðan kantmanninn Luke Chadwick frá úrvalsedildarliði West Ham. Chadwick sem er fyrrverandi leikmaður Man Utd hefur gert 6 mánaða lánssamning við Íslendingafélagið til að byrja með en hann er samningsbundinn West Ham til ársins 2007.

Solskjær með ManUtd í fyrsta leik?
Stuðningsmönnum Manchester United hlýnar nú um hjartarætur því einn vinsælasti leikmaður félagsins, Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær, er við það að snúa aftur eftir meðsli sem hafa haldið honum utan vallar í tæp tvö ár. Ekki var búist við því Solskjær myndi byrja að leika aftur með aðalliðinu fyrr en í október.
Rangers á eftir Bostjan Cesar
Forsvarsmenn Glasgow Rangers reyna nú að næla í Bostjan Cesar, varnarmann Dinamo Zagreb og slóvenska landsliðsins. Cesar segir forráðamenn skosku meistarana hafa rætt við sig eftir landsleikleik fyrir skömmu.

Tryggði Víkingum sigur á 90. mín.
Einn leikur fór fram í 1 deild karla í kvöld en þá hófst 13. umferð. Víkingur úr Reykjavík vann nauman sigur á KS, 2-1. Einar Oddsson tryggði heimamönnum sigur þegar 90 mínútur sléttar voru komnar á klukkuna. Víkingar er þar með komnir í 28 stig í 2. sæti deildarinnar, sjö stigum á undan KA sem er í 3. sæti og á leik til góða.

Wenger: Á ég að fara í spilavítið?
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að Chelsea sé að borga tvöfalt markaðsverð á þeim leikmönnum sem þeir kaupa. Wenger hefur verið undir pressu undanfarna daga frá stuðningsmönnum sem vilja að hann kaupi nýja leikmenn á meðan ríku félögin Real Madrid og Chelsea eru að hrifsa hvern leikmanninn á fætur öðrum sem Wenger ætlaði að kaupa.

Kólombíumenn voru líka sviknir
Það var ekki aðeins íslenska knattspyrnusambandsið sem var svikið í landsleikjamálum nýlega. Í ljós hefur komið að ástæðan fyrir því að Kólombíumenn geta komið og leikið á Íslandi með svo skömmum fyrirvara er sú að þeir urðu fyrir sömu reynslu með Ástrala.

"Borgvardt var munurinn"
Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram var í skýjunum með baráttu sinna manna í sigurleiknum gegn FH í gærkvöldi en þá tryggði Fram sér farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarsins. Fram var síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik þó þeir væru tveimur mörkum undir í hálfleik. "<em>Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var bara Allan Borgvardt</em>." sagði Ólafur.

Valur í úrslitaleikinn gegn Fram
Valsmenn unnu Fylki, 2-0 og tryggðu sig í úrslitaleikinn gegn Fram í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. Garðar Gunnlaugsson skoraði bæði mörk Valsmanna í leiknum á Laugardalsvelli, það fyrra strax á 3. mínútu en seinna markið á 80. mínútu. Garðar hefur þar með skorað 8 mörk í fjórum leikjum fyrir Val í bikarkeppninni.
Ekkert enn skorað í framlengingu
Síðari hálfeikur framlenginar var að hefjast í leik Fram og FH í undanúrslialeik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2 og var ekkert mark skorað í fyrri hálfleik framlengingarinnar. Við fylgjumst með gangi mála hér á fréttahlutanum ef eitthvað markvert gerist.

Butt til Birmingham
Miðvallarleikmaðurinn Nicky Butt er genginn til liðs við Birmingham City að láni frá Newcastle. Fyrir hjá Birmingham hittir hann Steve Bruce, knattspyrnustjóra, sem lék með honum hjá Manchester United á tíunda áratugi síðustu aldar. Butt er einn af sigursælustu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar....

Van Persie kannski með
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Robbie van Persie eigi möguleika á að spila leikinn um Samfélagsskjöldin á sunnudag. Van Persie á enn kæru yfir höfði sér vegna nauðgunarmáls en hann þurfti að dvelja í fangelsi ekki alls fyrir löngu vegna málsins.

Fram í úrslitaleik VISA bikarsins
Fram tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir ótrúlega dramatískan sigur á FH í framlengdum leik og þrefaldan bráðabana í vítaspyrnukeppni. Lokatölur urðu 9-8 fyrir Fram.
Fram minnkar muninn gegn FH
Fram hefur minnkað muninn gegn FH á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 2-1. Það var Daði Lárusson markvörður FH sem gerði heldur klaufalegt sjálfsmark en hann náði ekki að halda boltanum eftir harðan ágang Andra Fannars Ottóssonar. Markið kom á 81. mínútu. Framarar sækja nú stíft lokamínúturnar.

Neftchi vann Anderlecht heima
Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik.
Vítaspyrnukeppni í Laugardal
Leikur Fram og FH fer í vítaspyrnukeppni en ekkert mark var skorað í framlengingu. Staðan er því 2-2 eftir vejulegan leiktíma og framlengingu og munu úrslit hennar birtast um leið og hún er afstaðin.

Enn tapar Ísland U17
Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag öðrum leik sínum í röð, nú fyrir Írum, 2-0, á Keflavíkurvelli, í A-riðli á Norðurlandamótinu sem hófst í gær. Ísland hefur þar með tapað báðum fyrstu leikjunum sínum eftir að hafa steinlegið fyrir Dönum á KR-vellinum í gær, 4-0.
Kieran Richardson áfram hjá United
Táningurinn Kieran Richardson sem sló í gegn með W.B.A. á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnunni vill ekki fara aftur félagsins en hann var þar af láni á síðustu leiktíð frá Manchester United. Þess í stað ætlar hann að reyna að berjast fyrir sæti sínu hjá United.

Zidane aftur í franska landsliðið
Franska goðsögnin Zinedine Zidane hjá Real Madrid kom fótboltaheiminum í opna skjöldu í dag þegar hann tilkynnti endurkomu sína í franska landsliðið, um ári eftir að hann tilkynnti að hann væri endanlega hættur að leika með liðinu. Claude Makelele, miðjumaður Chelsea hefur einnig boðið þjónustu sína í landsliðið en hann hafði einnig sagt skilið við landsliðið.

Ólafur Örn fékk rautt með Brann
Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn.